Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Qupperneq 57
Horft niður á Helluna. Þar liggur oft mikið af fiski.
leið og veiða ólgurnar sem
myndast frá grjótunum austan
til í ánni. Gott er að byrja
aðeins ofan við veiðiskiltið
og fara rúmlega 50 metra
niður eftir eða þegar agnið
fer að nálgast grjótgarðinn á
austurbakkanum. Þar neðan
við er svo annar veiðistaður
sem heitir Grjótgarðshylur.
Nr. 33 Ferjupollur
Ferjupollur er einn af betri
og skemmtilegri stöðum í
ánni. Best að veiða hann að
vestanverðu og byrja ofarlega
en oft má sjá fisk stökkva um
allt svæðið á góðum stundum
í ágúst. Þá er vegslóðinn frá
Sandi ekinn og beygt inn
á gamalt tún við útihús og
keyrt þar niður að á. Við háan
malarbakka að vestanverðu
eru grjót nálægt landi og þar
fást oft laxar. Varast ber að vaða
þar heldur veiða aðeins frá landi. Frá þessum malarbakka og
niður að steini sem brýtur á neðarlega í hylnum fást einnig
fiskar en aðaltökustaðurinn er í kringum þennan stein og
niður af honum. Þar eru fleiri smærri grjót í kring og þarna
eru alltaf laxar. Varast skal að vaða of mikið í fyrstu en
þegar reynt hefur verið nálægt landi er gott að vaða aðeins
út, kasta út fyrir steininn og veiða vel niður fyrir hann.
Nr. 34 Sandur
Eftir tilkomu sleppitjarnarinnar hefur þessi veiðistaður tekið
við sér. Ekið er niður að Draflastöðum og þar sem vegurinn
skiptist að bæjunum tveimur er vegslóði sem liggur niður að
hliði rétt ofan við veiðistaðinn. Við þetta hlið er sleppitjörnin.
Ekið er lítillega niður fyrir hliðið og má þá finna vik í
sandhólinn þar sem leggja má bílnum efst við veiðistaðinn.
Best er að byrja aðeins neðan við þetta vik og hafa verið að
veiðast fiskar alveg niður að skilti, sem er á sama stað og
klakkistan hefur verið. Aðalsvæðið byrjar aðeins ofar en þar
sem grasbakkinn tekur við af grýtta bakkanum, þar liggja
grjót frá bakkanum út í ána. Vænlegt er að byrja á því að
veiða frá landi áður en farið er að vaða, sérstaklega snemma
á morgnana og í miklu vatni. Þegar það hefur verið reynt
er ráð að vaða þriðjung út í á og veiða aðalstrenginn niður.
Gott er að einbeita sér vel að steinum sem sést brjóta á en
fara hraðar yfir á öðrum stöðum. Gott er að miða við að
veiða niður að stórum steini sem stendur upp úr ánni við
grasbakkann að vestan. Margir veiða alveg niður að skiltinu
og jafnvel niður fyrir það, von er á fiski alla leið.
Nr. 35 Böðvarsneshylur
Einn af betri veiðistöðum til margra ára en eyðilagðist fyrir
nokkrum árum vegna breytingar á farvegi en virðist nú vera
að lagast aftur.
Nr. 36 Hringsbreiða
Gefur einstaka lax. Gott er að byrja um það bil 50 metrum
fyrir ofan skiltið eða rétt ofan við staur sem stendur á
árbakkanum og veiða aðeins niður fyrir skiltið.
Veiðisvæði 3
Almennt um veiðisvæðið
Veiðisvæði þrjú nær frá Flúðaseli og upp að merki ofan við
Hrísgerðisbreiðu, númer 50. Merktir veiðistaðir eru nr. 37-
50. Þetta veiðisvæði er bæði skemmtilegt og fjölbreytilegt,
flestir veiðistaðirnir halda laxi allt tímabilið. Snemmgengni
fiskurinn virðist fara rakleitt upp á svæði þrjú og leggjast þar
og oftar en ekki veiðast fyrstu laxarnar á efri hluta árinnar
á þessu svæði. Misjafnt er hvorum megin veiðimenn veiða
staðina en algengast er að veiðistaðir 46-50 séu veiddir
austan frá og er þá ekinn jeppaslóði á austurbakkanum.
Veiðistaðir 40-45 eru frekar veiddir að vestanverðu.
Sumarið 2004 veiddust 138 laxar á svæði þrjú og var
Símastrengur með 35 laxa, Litlabreiða með 29 laxa,
Stekkjarhylur með 24 laxa og Eyrarbreiða með 24 laxa.
Veiðimenn skipta svæðinu á milli sín eftir samkomulagi.
Nr. 37 Végeirsstaðaklif (Efraklif)
Þessi veiðistaður er ónýtur en vert er að skoða nýjan stað
sem hefur myndast aðeins ofar og einhverjir laxar fengist í.
Stuttur malarslóði liggur þar af veginu og niður að ánni en
þar er strengur sem breiðir úr sér niður í litla breiðu áður en
áin fellur niður af broti.
Nr. 39 Kvíslardjúp
Einn af albestu veiðistöðum í ánni fyrr á árum en er nú
ónýtur vegna farvegsbreytinga.
Júní 2005 Veiðimaðurinn 52