Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 58

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 58
Nr. 40 Símastrengur Hægt að veiða frá báðum bökkum. Að vestanverðu má fara í gegnum hlið rétt norðan við bæinn Dæli og þar niður vegslóða sem liggur að ánni. Að austanverðu er einnig slóði alveg niður á bakka. Laxinn liggur frekar nær landi vestan megin og gott er að byrja mjög ofarlega og veiða niður fyrir grjótið sem brýtur áberandi á neðarlega á staðnum. Ef veitt er að vestanverðu þarf að fara varlega og vaða ekki langt út. Einnig er hægt að veiða að austanverðu, vaðið er út í miðja á og veitt með vesturlandinu. Þá er bleikja oft á grynningunum að austan, gott en að strippa silungaflugu niður breiðuna. Nr. 41 Melbreiða Lítið stundaður veiðistaður en gefur einstaka fisk. Helst er að reyna beint út af skiltinu þar sem brýtur á nokkrum grjótum. Farið er að staðnum að vestanverðu upp frá Símastreng og vaðið út í miðja á. Nr. 42 Stekkjarhylur Farinn er sami slóði og að Símastreng og keyrt upp með ánni, einnig er hægt að fara inn á sama slóða aðeins ofan við bæinn Dæli í gegnum hlið við veginn þar. Hægt að veiða báðum megin frá en flestir veiða að vestanverðu. Þá er vaðið aðeins út í fyrir ofan steinana sem standa þarna upp úr og kastað yfir á vatnið hinum megin við strenginn niður af steinunum en þar getur laxinn legið töluvert langt niður eftir. Nr. 43 Straumar Ólgur og stórir steinar á löngum kafla þar sem áin rennur þvert á dalinn og einnig í sjálfri beygjunni þegar hún er að snúa til norðurs og stefnir á Stekkjarhyl. 44 - 45 Vatnsleysuhylur og Bakkahylur Þetta svæði hefur breyst mikið og er nú Vatnsleysuhylur horfinn sökum þess að grjótgarður var settur fyrir hann til að hindra landbrot en veiðistaðir hafa myndast víða við þennan grjótgarð og einhverjir laxar verið skráðir þarna. Sett var upp sleppitjörn á þessu svæði þar sem vatn rennur úr gamla Vatnsleysuhylnum og um það bil 4.000 gönguseiðum sleppt vorið 2004. Því verður fróðlegt að sjá hvernig veiðin verður þarna sumarið 2005. Bakkahylur er við efri enda grjótgarðsins og er þar ennþá álitlegur veiðistaður þó aðeins sé um efri hluta upphaflegs Bakkahyls að ræða. Einnig hafa myndast fleiri staðir neðar og falleg breiða neðarlega við grjótgarðinn sem er vel þess virði að kasta á. Nr. 46 Eyrarbreiða Eyrarbreiða er oftast veidd að austanverðu og er þá ekið niður veg við bæinn Veisusel og þaðan í túnjaðrinum þar til hægt er beygja og keyra niður brekku að veiðistaðnum. Efst í veiðistaðnum er ævinlega bleikja og liggur hún helst í straumskilunum og aðeins inn á dauða vatnið. Fyrir miðri breiðu er steinn sem stendur upp úr og er gott að byrja aðeins ofan við hann þegar reynt er við laxinn. í kringum þennan stein og utan við hann eru fleiri steinar og liggur laxinn við þá en einnig í miðjum strengnum frá þessum steinum og alveg niður á brot. Einn af betri stöðunum í uppánni og heldur fiski allt tímabilið. Nr. 47 Litlabreiða Nafnið er ekki réttnefni á veiðistaðnum enda líklega vandfundin stærri breiða. Ekið er frá sama slóða og liggur niður á Eyrarbreiðu en þegar komið er niður brekkuna er farið upp með ánni þangað til komið er að girðingu, þaðan er gengið upp að veiðistaðnum en ekki er ráðlegt að vera uppi á háa kantinum. Hægt er að veiða staðinn frá báðum bökkum en þó kjósa flestir að veiða hann að austanverðu, þar er laxinn nær landi. Ef staðurinn er veiddur að vestanverðu þarf að vaða töluvert út í ána. Gott er að byrja fremur ofarlega og kasta ofan við ólgur sem myndast af stórum steinum úti í ánni. Rétt ofan við og neðan við þessa steina eru aðallegustaðir laxanna þegar líða tekur á sumar en þegar fiskur er að ganga af krafti má fá fiska alla leið niður á brot. Fiskur á í Ferjupolli. Nr. 49 Þvergarðsbreiða Flestir veiða staðinn að austanverðu en einnig er hægt að vaða út í miðja á að vestanverðu og kasta þaðan. Ofarlega eru grjót á grynningunum og er ráðlegt að byrja aðeins ofan við þau en út af þeim og aðeins ofar má finna laxa, sérstaklega ef gott vatn er í ánni. Neðan við grjótin er renna meðfram austurlandinu og niður að steini sem stendur upp úr neðarlega. Þarna getur fengist silungur mjög nálægt landi og neðan við steininn sem stendur upp úr. Nr. 50 Hrísgerðisbreiða Laxinn liggur hér nær vesturlandinu og getur verið nálægt landi. Erfitt er þó að athafna sig þar sem hár bakki truflar köstin og auðvelt er að styggja fiskinn. Því kjósa flestir að veiða staðinn frá austurlandinu, vaða út í miðja á og veiða vesturbakkann þaðan. Gott er að vaða út í þar sem steinn stendur upp úr nálægt vesturbakkanum og veiða niður eftir. Á miðri breiðu sést brjóta á steini aðeins vestan við miðju, niður af honum liggur oft lax. Gott er að veiða niður að stórum steini sem stendur upp úr að austanverðu og vaða þaðan aftur í land. 58 Veiðimaðurinn Júni 2005

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.