Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Qupperneq 59
Veiðisvæði 4
Almennt um veiðisvæðið
Veiðisvæði fjögur byrjar við merki ofan við Hrísgerðisbreiðu
og nær upp að merki sem er í landi Steinkirkju og eru merktir
veiðistaðir nr. 51 - 65. Bestu veiðistaðir 2004 voru nr. 52 -
56 og nr. 59.
Sumarið 2004 var fyrsta sumarið sem veiðisvæði fjögur
var fellt inn í laxveiðina en áður hafði það verið selt stakt
sem silungasvæði með laxavon. Þetta tókst vonum framar
og veiddust 93 laxar á svæðinu eða töluvert fleiri en á
veiðisvæði eitt. Eitthvað er um rugling á nöfnum veiðistaða
og eru nokkrir veiðistaðir nefndir öðrum nöfnum í daglegu
tali veiðimanna en þeir raunverulega heita. Einnig eru litlar
upplýsingar til um veiðistaðina á efri hlutanum en við nýja
fyrirkomulagið ætti þetta að breytast til batnaðar. Veiðimenn
skipta svæðinu á milli sín eftir samkomulagi.
Sett var upp sleppitjörn efst á svæðinu, í landi Steinkirkju, og
í hana sleppt um 4.000 gönguseiðum vorið 2004 svo gaman
verður að fylgjast með veiðinni þarna sumarið 2005.
Nr. 51 Hálspollur
Fyrst og fremst bleikjustaður og veiddur að austanverðu. Þó
fæst þarna einstaka lax ef heppnin er með og göngufiskur
hefur staldrað þar aðeins við. Veiðistaðurinn er smáflati sem
myndast rétt ofan við þar sem Þingmannalækurinn rennur
út í Fnjóská og sjálfur lækjarósinn. Gott er að strippa hér
silungaflugur og byrja nálægt landi.
Nr. 52 Flúðir
Mjög góður veiðistaður rétt neðan við brúna yfir Fnjóská.
Hægt er að veiða staðinn frá báðum bökkum en flestir kjósa
austurlandið. Þar er byrjað aðeins ofan við stóran stein sem
er nokkra metra út í á. Best er að vaða aðeins út í og kasta
löngum köstum yfir á helluna að vestanverðu. Á þessari
hellu og í brún hennar liggja laxarnir. Gott er að veiða sig
niður að lítilli sandvík við austurlandið og jafnvel niður fyrir
hana. Þegar veitt er að vestanverðu þarf lítið að vaða, þar
eru pyttir sem göngufiskur stansar gjarnan í.
Nr. 53 Nesbugða (Neslækur)
Einnig kallaður Neshylur og dregur nafn sitt af bænum
Nesi sem stendur beint ofan við veiðistaðinn. Ekið er að
veiðistaðnum rétt sunnan við bæinn. Þessi hylur hefur
breyst töluvert og nú er betra að veiða austan megin og
er þá vaðið yfir ána 50-100 metrum ofan við veiðistaðinn.
Gott er að byrja við stóru grjótin ofarlega í veiðistaðnum og
veiða niður. Staðurinn skýrir sig að mestu sjálfur þegar að
honum er komið, straumharður strengur með vesturlandinu
en rólegra vatn að austanverðu og botninn stórgrýttur. Þar
geta laxar legið milli steinanna en einnig mjög nálægt landi
alveg frá stórgrýtinu og niður breiðuna.
Nr. 54 Ferjustrengur
Einnig kallaður Nesbreiða á meðal veiðimanna. Veiddur að
vestanverðu og er þá byrjað aðeins ofan við raflínuna er
liggur yfir ána og vaðið út í ána. Aðeins neðan við þessa
raflínu eru ólgur frá stórum steinum. Breiðan er frekar
grunn en í kringum ólgurnar er lúmskt dýpi og þar liggur
laxinn. Einnig getur hann verið nálægt landi að austanverðu
aðeins neðar.
Nr. 55 - 56 Skógargilsbreiða og
Búðarbreiða
Þessir veiðistaðir eru við gömlu bogabrúna yfir í Vaglaskóg
en hún er nú aðeins notuð sem göngubrú eftir að nýja brúin
var tekin í gagnið. Ekinn er vegslóði frá þjóðveginum niður
að brúnni en einnig er hægt að fara yfir nýju brúna ofar og
gegnum skóginn. Hægt er að veiða af báðum bökkum en
flestir velja austurlandið og er þá ráðlegt að byrja alveg við
brúna og veiða niður eftir. Ofarlega er stórgrýti við bakkann
og djúpt og er ráðlegt að reyna vel þar. Aðeins neðar er svo
Skógargilsbreiða en segja má að frá brú og töluvert niður
eftir sé einn samfelldur veiðistaður.
Nr. 59 Systrahvammur (Fellibrú)
í daglegu tali er þessi veiðistaður nefndur Fellibrú en hann
er við nýju brúna. Fyrir nokkrum árum var byggð ný brú á
þessum stað en hún gaf sig undan klakastíflu og féll í ána. Við
breytingar og uppsetningu á nýrri brú í kjölfarið myndaðist
svo veiðistaðurinn. Hægt er að veiða hér frá báðum bökkum.
Gott er að byrja að austanverðu aðeins ofan við brúna og
veiða niður að henni og undir henni. Neðan við brúna er
mikil breiða, býsna djúp efst. Vaða þarf út í ána og þeim
mun meira ef veitt er vestan frá og breiðan veidd niður eftir.
Einna besti tökustaðurinn er fyrir miðri breiðu og þar niður
af. Ágæt silungsveiði er á þessum veiðistað en bleikjuna er
helst að finna á grunnu vatni beggja megin á breiðunni.
Nr. 60-65
Dýjabreiða, Merkurbreiða, Skjólbreiða,
Hnsárbreiða, Urðarpollur og
Mógilsbreiða
Nokkrir fallegir staðir eru á þessum kafla sem fáir þekkja vel
en eru merktir og var nokkuð af laxi skráð á þeim sumarið
2004. Flestir staðanna eru veiddir að vestanverðu og með
tilkomu sleppitjarnarinnar við efsta veiðistað á þetta svæði
vafalaust eftir að verða numið af fleiri veiðimönnum og mun
væntanlega skila veiði í sumar.
Júni 2005 Veiðimaðurinn 59