Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 61
Afmælisfundur:
Veiða og sleppa aðferðin
Það var vel mœtt á afmœlisfund SVFR á Grand Hótel Reykjavík. Ljósmynd Loftur Atli Eiríksson.
SVFR hélt fund á afmælisdegi félagsins 17. maí s.l. á Grand
Hótel Reykjavík.
Yfirskrift fundarins var VEIÐA OG SLEPPA - Hefur það
tilgang? Skilar það árangri?
Fundurinn hófst á ávarpi Bjarna Júlíussonar formanns
Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Síðan fluttu þeir Guðni
Guðbergsson fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun, Jón
Kristjánsson sjálfstætt starfandi fiskifræðingur, Orri
Vigfússon formaður NASF og Ólafur E. Jóhannsson
veiðimaður áhugaverð framsöguerindi. Óhætt er að segja
að misjöfn sjónarmið komu fram í máli framsögumanna og
sýndist sitt hverjum um árangur þess að sleppa fiskinum
aftur í ána.
Að loknum erindum framsögumanna voru pallborðsumræður
með fyrirspurnum úr sal. Þátttakendur í pallborðsumræðum
voru framsögumenn auk Péturs Péturssonar leigutaka
Vatnsdalsár sem greindi frá reynslu sinni af þessari
veiðiaðferð, að sleppa öllum veiddum fiski. Fundarstjóri
var Stefán Jón Hafstein.
Fundurinn var fjölmennur og því óhætt að fullyrða að
umræðuefnið vakti áhuga veiðimanna.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur vill færa framsögumönnum,
fundarstjóra og Pétri Péturssyni bestu þakkir fyrir þátttöku
í fundinum sem að mati undirritaðs var bæði fróðlegur og
málefnalegur og heppnaðist vel.
Brynjar Már Magnússon formaður LS kynnir veggspjald sem LS er að
gefa út. Stefán Jón Hafstein fundarstjóri heldur á fyrsta eintakinu af
veggspaldinu. Ljósmynd Loftur Atli Eiríksson.
Veggspjald frá LS
Á afmælisfundinum kvaddi Brynjar Már Magnússon
formaður Landssambands stangaveiðifélaga sér hljóðs og
sagði frá því að LS hefði gefið út veggspjald sem setja ætti
upp í veiðihúsum víðs vegar um landið. Á veggspjaldinu
væru leiðbeiningar fyrir veiðimenn sem kjósa að sleppa
veiddum fiski. Að svo mæltu afhenti Brynjar formanni SVFR
fyrsta eintakið af veggspjaldinu.
Fréttapunktar SVFR - samantekt Þorsteinn Ólafs 61