Fréttablaðið - 22.03.2023, Page 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
2 0 2 3
KYNN INGARBL
AÐALLT
MIÐVIKUDAGUR 22. mars 2023
Í Svíþjóð eru konur sem eignast sitt
fyrsta barn yfir 45 ára fleiri en þær
yngstu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Svíar benda á að nýbakaðar mæður
séu orðnar mun eldri en áður
þekktist. Í fyrra fæddust 410 börn
í Svíþjóð þar sem móðirin er 19
ára eða yngri en 537 börn þar sem
hún er yfir 45 ára. Þannig eiga nú
fleiri börn á fyrsta ári móður í eldri
aldurshópnum en þeim yngri.
Er þetta mamma eða amma
sem sækir barnið í leikskólann?
Mjög líklega er það móðirin sem
er á sama aldri og amman var fyrir
nokkrum árum. Árið í fyrra var
það fyrsta þar sem eldri mæðurnar
urðu fleiri en yngri en þessi þróun
hefur verið stöðug á Norðurlönd-
unum.
Barneignir eru í vaxandi mæli
skipulagðar með tilliti til mennt-
unar og að koma sér í gott starf, að
því er Gunnar Andersson, prófessor
í lýðfræði við Stokkhólmsháskóla,
segir í netmiðlinum expressen.se.
Betur undirbúin
Norðurlöndin skera sig úr hvað
varðar þessar breytingar enda er
aðgengi að tæknifrjóvgun meira
en víðast hvar annars staðar. Börn
fædd af eldri mæðrum eru oft
félagslega betur undirbúin fyrir
lífið en börn sem fædd eru af mjög
ungum mæðrum. Mæðurnar hafa
betri tekjur, félagsleg úrræði, eru
með stærra tengslanet og meiri per-
sónulegan þroska. Að eignast barn
eftir miðjan aldur getur þó haft í för
með sér nokkra heilsufarsáhættu. n
Nýbakaðar
mæður eldast
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Chello og Man Power með þér
í liði á breytingaskeiðinu
Talið er að karlmenn gangi í gegnum breytingaskeiðið jafnt sem kvenmenn en Man Power
er fyrir karlmenn sem eiga við væg stinningarvandamál að stríða. 2
Karlmenn ganga margir í gegnum breytingaskeið ekki síður en konur. Með hækkandi aldri fer magn testósteróns í líkama karlmanna að minnka en 30 prósent
karlmanna á sextugsaldri finna fyrir einkennum hormónabreytinga vegna minna magns testósteróns.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HALLDÓR | | 10 PONDUS | | 16
Leikskólar meira
en tölur á blaði
5 7 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R |
tímamót | | 14
menning | | 23
Fréttir | | 4
LíFið | | 24
Íslendingar
ekki á lista
Tónsmíðar
með gervigreind
Bítlaæðið
lifir enn
M I ð V I K U D A g U R 2 2 . M A R S|
Þetta er hæsta niður-
staða sem ég hef séð.
Arnar Hafsteinsson,
íþróttafræðingur
Í gær fór fram þingfesting í Bankastræti Club-málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Tuttugu og fimm eru ákærðir í málinu og neituðu þeir flestir sök. Menn-
irnir sem ákærðir eru fyrir árásina mættu klæddir merkjavöru af ýmsu tagi, en flestir földu andlit sitt bak við grímur og gleraugu. FréttaBLaðið/VaLLi
ORKUMáL Álverin á Íslandi nota
að meðaltali meiri raforku til að
framleiða hvert kíló af áli en ann
ars staðar þekkist, að því er nýir
útreikningar Landverndar sýna.
„Afleiðingin er sóun,“ segir Auður
Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda
stjóri Landverndar.
Ef íslensk stjórnvöld skylduðu
álverin hér á landi til að nýta raf
orkuna sem þau fá í jafn ríkum mæli
og Norsk Hydro gera, mætti spara
orku sem nemur áætlaðri fram
leiðslu Hvammsvirkjunar. Sjá Síðu 6
Segja álverin hér á
landi sóa raforku
Auður Önnu
Magnúsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Land-
verndar
N Ó I S Í R Í U S
Rannsakandi hefur aldrei
séð hærra hlutfall alvar
legrar vöðvarýrnunar en í
rannsóknarhópi í Reykjavík.
Margvísleg snjóhengjuáhrif.
bth@frettabladid.is
HeILbRIgðISMáL Arnar Hafsteins
son, íþróttafræðingur og stunda
kennari við Íþróttafræðideild
Háskólans í Reykjavík, kynnir á
morgun sláandi niðurstöður um
vöðvarýrnun eldra fólks í Reykjavík.
Arnar gerði rannsókn sem tók til
72 einstaklinga á aldrinum 65–95
ára. Algengar tölur í nágranna
löndum Íslands eru að 10 –30
prósent aldraðra séu með vöðva
rýrnunarsjúkdóm sem kallast
sarcopenia. Niðurstaðan úr rann
sókn Arnars er að 60 prósent Íslend
inganna sem hann rannsakaði séu
með vöðvarýrnunarsjúkdóm.
„Þetta er hæsta niðurstaða sem ég
hef séð í litteratúr,“ segir Arnar.
Þeir sem þjást af alvarlegri vöðva
rýrnun eru mun líklegri til að detta
og meiða sig, brjóta bein og enda
á sjúkrahúsi. Þessi eini sjúkdómur
kostar Bandaríkin 1,5 prósent af
öllu fé sem fer til heilbrigðismála.
„Þetta vindur upp á sig eins og
snjóbolti.“
Arnar segir að aldraðir fái ekki
nógu góðar upplýsingar er lúta
að næringu og líkamsþjálfun.
„Það hefur komið fram í sam
tölum að þeir telja sig vera að inn
byrða prótein þegar þeir eru í raun
að innbyrða kolvetni.“
Arnar segir það hans tilfinningu
að heilsulæsi hópsins sé mjög ábóta
vant.
„Niðurstaðan er sláandi af því að
þetta fólk býr heima hjá sér.“
Arnar slær þó þann varnagla að ef
þýði allra 65 ára og eldri væri rann
sakað yrði talan lægri. Úrtakið hans
var þjónustuþegar Hrafnistu.
Í þessu samhengi bendir Arnar
einnig á að öldruðum hafi snar
fjölgað og ekkert lát á. Fyrir 120
árum hafi aldraðir verið sjö prósent
Íslendinga. Innan tíðar verði aldr
aðir fjórðungur landsmanna.
„Við getum látið fólk anda mjög
lengi, en það liggur kannski bara
hreyfingarlaust síðustu árin.“ n
Heimsmet í vöðvarýrnun
Umfangsmikið
sakamál