Fréttablaðið - 22.03.2023, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.03.2023, Blaðsíða 8
En hún tekur engar ákvarðanir þegar kemur að viðskiptum. Módelið er ekki stað- reyndavél og mun alltaf gefa upp líkleg- asta svarið. Það er ekki leitarvél. Angela Jiang, vöruhönnuður hjá Open AI 8 markaðurinn FRÉTTABLAÐIÐ 22. mARs 2023 miðVikuDaGur lovisa@frettabladid.is Árni Geir Valgeirsson, forstöðu- maður á upplýsingatæknisviði Íslandsbanka, segir að þar á bæ sjái þau mörg tækifæri almennt í nýtingu á máltækni og að þau séu sérstaklega ánægð með samstarfið með Miðeind. „Að okkar mati eru þau leiðandi aðili með vinnslu á íslenskum texta og talmáli í stafrænum lausnum. Tæknin er í mjög hraðri þróun á heimsvísu, sérstaklega með Chat GPT-4 spjallmenninu, og gæðin eru að aukast og tækifærunum að fjölga,“ segir Árni Geir. Hann segir að markmiðið með gervigreindinni sé ekki að fækka starfsfólki heldur eigi tæknin að nýtast til að auðvelda störf þess. „Hún á að hjálpa til svo að starfsfólk geti sinnt mikilvægum verkefnum betur. Það skiptir okkur máli að geta boðið upp á góða þjónustu, aðgengi að upplýsingum og aðgengi fyrir alla. Fyrir ákveðinn hóp þýðir það að geta átt samskipti við banka með tali. Það geta ekki allir notað snjall- tækin sín og svo sjáum við einnig tækifæri í aukinni sjálfvirkni í innra starfi, í gagnavinnslu og flokkun og greiningu gagna,“ segir Árni og að mjög mikilvægt í þessu samhengi, og vinnslu slíkra gagna, sé að gæta að öryggi gagnanna. „Við leggjum mikla áherslu á að þessi atriði séu í lagi en eitt af stóru markmiðum bankans í veg- ferðinni á nýtingu á máltækni er að leggja okkar af mörkum í að tryggja íslenska tungu í stafrænum heimi og þess vegna viljum við vinna með fyrirtækjum eins og Miðeind.“ Bæði er gervigreindin notuð í bankanum til að aðstoða spjall- menni þeirra en einnig nota þau hana til að greina gögn og f lokka þau. „En hún tekur engar ákvarð- anir þegar kemur að viðskiptum. Við erum ekki komin þangað,“ segir Árni Geir og að fólk þurfi ekki að óttast um gögnin sín. „Við hugsum þetta aðallega til að bæta upplifun viðskiptavina og sjálfsafgreiðslu og innri skilvirkni,“ segir hann og að gervigreind sé til dæmis notuð til greiningar á pen- ingaþvætti en íslenska módelið sé ekki komið þangað. „Við erum að horfa á þetta til að bæta þjónustu. Hún getur svarað viðskiptavinum hraðar og betur og unnið hraðar úr gögnunum. Ef einhver þarf aðstoð strax eða sam- skipti strax er hægt að greina það fyrr.“ Árni segir að bankinn muni byrja smátt í þessu en að þau sjái fyrir sér að halda áfram á þessari vegferð og vilji styðja við þróun í máltækni. Hann segir að fyrir bankann skipti líka miklu máli að geta gefið til baka og að það sé þeim mjög mikilvægt að geta notað íslensku og að viðskiptavinir þeirra geti treyst á á það líka. n Gervigreindin svarar og vinnur hraðar Árni Geir segir gervigreindina bæta þjónustuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vöruhönnuður hjá Open AI segir samstarfið við Miðeind og íslensk stjórnvöld hafa verið gott en gervigreindar- módel fyrirtækisins, GPT-4, talar nú íslensku. Hún segir módelið ekki leitarvél heldur frekar hjálparhellu. lovisa@frettabladid.is Angela Jiang vöruhönnuður og Elie Georges samskiptafulltrúi starfa bæði hjá bandaríska tæknifyrir- tækinu Open AI sem sérhæfir sig í gervigreind og segja samstarfið við íslensk stjórnvöld og Miðeind hafa gengið mjög vel. Angela segir að hún hafi haft vitneskju um sam- starf Open AI við íslensk stjórnvöld og Miðeind og að henni hafi þótt til- valið að sameina verkefnin. Í síðustu viku var tilkynnt um samstarf fyrirtækjanna en markmið þess er að styðja betur við íslensku í næstu kynslóð gervigreindarlíkana frá fyrirtækinu og var nýjasta gervi- greindarlíkanið, GPT-4, þjálfað í íslensku. „Eftir að við vorum búin að þjálfa GPT-4 var ég að leita að samstarfs- aðilum sem gætu aðstoðað okkur við að komast að því hvernig það væri að virka og hvernig við gætum bætt það á næstu sex mánuðum áður en við opnuðum fyrir það,“ segir Angela Jiang frá Open AI sem vann að því að þróa forritið. „Við viljum að módelið sé gott í íslensku því við viljum að módelið sé fyrir alla. Það þýðir að það þarf að vera nytsamlegt í íslensku og allt ferlið við að bæta módelið á öðru tungumáli en okkar eigin gerir módelið betra og auðveldar okkur að útfæra það fyrir fleiri tungumál,“ segir Angela. „Margt af því sem við höfum verið að gera með Miðeind og íslenskum stjórnvöldum hefur verið ákveðin tilraunastarfsemi og þessi vinna mun nýtast í öðrum tungumálum líka,“ segir Angela og að smæð landsins hafi unnið með þeim. Þau hafi þurft að vinna hratt og að hennar sögn var íslenska teymið lipurt og gat tekið ákvarðanir hratt og örugglega. Að mati Angelu er hægt að nota forritið til margs góðs. Hægt sé að nota það í alls konar þjónustu, til að kóða, það tali mörg tungumál og svo getur það verið nytsamlegt í menntageiranum. „Við erum spennt fyrir notkunar- möguleikum módelsins í öllum geirum en hver geiri nýtir tæknina á sínum hraða,“ segir Angela og að allir sem vinni með texta geti notað það til að styrkja og bæta. Hefur þú lært einhverja íslensku? „Ég er búin að læra takk og nota mikið,“ segir Angela og hlær. Elie er hluti af samskiptateymi Open AI og segir að á sama tíma og tæknileg vinna hafi farið fram hafi hans teymi unnið með sam- skiptateyminu hérna á Íslandi til að komast að því hvernig best væri að greina frá verkefninu og segja sögu þess. „Þetta er viðkvæmt málefni og á sama tíma og við vorum að gera þetta var mikil umræða um Chat GPT í tengslum við menntun.“ Elie segir að í upphafi hafi margir verið smeykir við módelið og óttast að nemendur myndu nota það til að svindla en nú séu margir kennarar farnir að nota það í kennslu. „Það getur hjálpað nemendum að vera skapandi í hugsun og að finna lausnir og að skilja af hverju einhver setning lítur út eins og hún lítur út. Við höfum einnig séð kenn- ara nýta sér módelið til að búa til kennsluáætlun og leiðbeiningar til nemenda, auk þess sem hægt er að nota lausnina sem eiginlegan kenn- ara. Hver kennari er með sínar eigin aðferðir til að læra,“ segir Elie. Hægt er að nota forritið í ýmis- legt eins og að búa til matseðla, skrifa texta og aðstoða við nám en Elie segir að það hafi hjálpað honum mikið í vinnunni þegar hann er stopp í skrifum sínum. „Þegar ég veit ekki hvar ég á að byrja þá hef ég notað forritið til að hjálpa mér við að finna ólíkar leiðir til að byrja. Eða ég skrifa eitthvað og bið forritið að laga textann að þeim sem á að fá hann, sama hvort textinn á að vera faglegri eða vina- legri,“ segir hann. Angela segir að það sé eitt sem forritið er ekki, leitarvél, og því sé ekki hægt að ætlast til þess að það svari endilega rétt. Hún útskýrir að ekki allar útgáfur módelsins séu tengdar netinu og því geti það ekki vitað margt af því sem það er spurt um. „Módelið er ekki staðreyndavél og mun alltaf gefa upp líklegasta svarið. Það er ekki leitarvél en eins og við höfum þjálfað það núna er ólíklegra að það svari með ímynd- uðum staðreyndum [e. halucinate facts] og svari frekar á þá leið að það sé tungumálamódel og að það viti ekki svarið. Við viljum að það svari annaðhvort með sannleikanum eða að það viti ekki. En fólk ætti alveg að staðreyndatékka það sem það fær úr forritinu,“ segir hún og hlær. n Ekki leitarvél heldur hjálparhella Angela Jiang, vöruhönnuður, og Elie Georges samskiptafull- trúi hjá Open AI sjá möguleika í að nota tæknina í öllum geirum en að hver geiri fari á sínum hraða. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Lovísa Arnardóttir lovisa @frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.