Fréttablaðið - 22.03.2023, Page 2
Menn eru mismunandi
en það er enginn með
stjörnustæla eða neitt
vesen.
Sigurður Sveinn Þórðarson, liðs-
stjóri karlalandsliðsins í fótbolta
Stuð og stemning á Downs-deginum
Fjölbreytileikanum var fagnað í Þróttaraheimilinu í gær á alþjóðlegum degi Downs-heilkennisins. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var meðal gesta og
skemmti hann sér vel þegar Páll Óskar steig á svið. Í rúman áratug hefur 21. mars verið tileinkaður fólki með Downs-heilkenni en árið 2011 samþykkti Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna að Downs væri ekki galli heldur erfðabreytileiki sem er hluti af mannlegum breytileika. Fréttablaðið/Ernir
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu hefur undan-
farna daga notið lífsins í
Þýskalandi. Liðið heldur á
morgun til Bosníu og mætir á
fimmtudag heimamönnum, í
fyrsta leiknum í undankeppni
Evrópumótsins.
helgifannar@frettabladid.is
Fótbolti Sigurður Sveinn Þórðar-
son, oftast kallaður Siggi dúlla, gegn-
ir miklu og mikilvægu starfi fyrir
íslenska karlalandsliðið. Hann þarf
að ferðast gríðarlega vegna starfsins
en hefur gaman af.
Siggi dúlla er mörgum kunnur.
Hann var lengi búningastjóri
íslenska karlalandsliðsins en er
nú liðsstjóri. Í því starfi felst mikil
ábyrgð og má segja að Siggi sé lykil-
maður í undirbúningi liðsins fyrir
verkefni sín.
„Ég sé um skipulag á öllum ferða-
lögum og slíku. Mitt starf er að
tryggja að allir komist á sinn stað og
að allt sé til alls,“ segir Siggi í samtali
við Fréttablaðið á æfingu íslenska
landsliðsins í München.
„Ef það er eitthvað sem þeir þurfa
þá er ég þeim innan handar.“
Íslenska landsliðið er sem fyrr
segir nú statt í München, þar sem það
undirbýr sig fyrir leik gegn Bosníu og
Hersegóvínu á morgun og Liechten-
stein á sunnudag. Um fyrstu leiki
liðsins í undankeppni Evrópumóts-
ins á næsta ári er að ræða, en þangað
ætlar Ísland sér.
Í dag ferðast liðið til Bosníu. Siggi
er búinn að fara og taka út aðstöð-
una þar ytra. Það gerir hann fyrir öll
ferðalög íslenska karlalandsliðsins
og ferðast því mun meira en aðrir.
Til að undirstrika það hversu
mikið hann ferðast vegna vinnunnar
segir Siggi frá því að hann hafi verið
170 daga erlendis á síðasta ári.
„Maður er nánast ekki með skatt-
skyldu á Íslandi lengur,“ segir Siggi
léttur, ljúfur og kátur.
Sem fyrr segir er Siggi landsliðs-
mönnum innan handar. Það er þó
ekkert vesen á þeim að hans sögn og
lítið mál að gera þeim til geðs.
„Menn eru mismunandi en það er
enginn með stjörnustæla eða neitt
vesen.“
Hvað leikinn við Bosníu varðar er
Siggi spenntur. Leikurinn fer fram í
borginni Zenica. „Þetta er skemmti-
legt og f lott verkefni. Spennandi
staður að fara á.“
Þá að úrslitunum. Aðspurður
hvort við munum ekki örugglega
hafa sigur gegn Bosníumönnum
annað kvöld segir Siggi svo vera. „Jú,
klárlega,“ segir Siggi sigurviss. og
heldur aftur til starfa í München. n
Á ferð og flugi hálft árið
svo landsliðið hafi það gott
Siggi var í góðu skapi í München í gær. Fréttablaðið/HElgi Fannar
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af
borðstofuborðum frá CASÖ
Embla hrinborð 120 cm og 140 cm reykt eik og nature eik.
bth@frettabladid.is
UmhverFismál Árni Finnsson, for-
maður Náttúruverndarsamtaka
Íslands, hefur með bréfi krafið Hörð
Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar,
skýringa.
Árni vitnar til viðtals Harðar við
RÚV þar sem forstjórinn hafi rætt
fólk í verkefnastjórnum ramma-
áætlana sem telji að nóg hafi verið
virkjað. Hörður spurði hvort það
fólk væri rétta fólkið til að meta
þessi verkefni en nafngreindi enga.
Náttúruverndarsamtök Íslands
fara fram á að forstjóri Landsvirkj-
unar geri grein fyrir því við hvaða
einstaklinga sé átt.
„Þetta eru sérfræðingar og vís-
indamenn og þeir hafa komist að
niðurstöðu sem forstjóra Lands-
virkjunar líkar ekki, ég gagnrýni
það,„ segir Árni.
„Það er óviðeigandi að hann ráð-
ist á stóra hópa fólks og nefni ekki
hverja hann á við.“
Árni segir náttúruverndarsinna
hafa fengið nóg af svona vinnu-
brögðum fyrr á öldinni í deilum um
Kárahnjúka.
„Þá lá Landsvirkjun ekki á liði sínu
að gagnrýna umhverfissinna.“ n
Árni fordæmir orð
Harðar forstjóra
Árni Finnsson,
formaður Nátt-
úrurverndar-
samtaka Íslands
birnadrofn@frettabladid.is
samFélag Alþjóðlegi kvárdagurinn
var haldinn hátíðlegur í gær. Þetta er
í annað sinn sem dagurinn er hald-
inn hátíðlegur hér á landi en Trans
Ísland hélt upp á Kynsegin daginn
á árunum 2015-2017 og hann var
endurvakinn með nýju nafni á síð-
asta ári til að fagna kynsegin fólki.
Kvárdagurinn er haldinn á fyrsta
degi einmánaðar og er, samkvæmt
Trans Íslandi, dagur til þess að halda
upp á kvárin í kringum okkur, svip-
að og er gert á bóndadegi og konu-
degi. Samtökin mæla með að gefa
kvári blóm og sýna væntumþykju
og þakklæti. n
Kvárdagurinn haldinn hátíðlegur
Í tilefni dagsins mynduðu nemendur í Árbæjarskóla keðju um skólann sinn.
2 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 22. mARs 2023
MiÐViKUDAGUr