Fréttablaðið - 22.03.2023, Side 18
Bætiefnið Comfort-U frá
Good Routine er öflug vörn
fyrir þvagfærakerfið og
byggir á fjórum virkum
innihaldsefnum sem hafa
þekkta eiginleika til þess
að koma í veg fyrir blöðru-
bólgu/þvagfærasýkingu.
„Comfort-U er sérhannað fyrir fólk
sem vill koma í veg fyrir blöðru-
bólgu/þvagfærasýkingu, sem er
ein algengasta bakteríusýkingin
og algengari hjá konum en körlum.
En ein af hverjum fimm konum
upplifir að minnsta kosti eina þvag-
færasýkingu á ævinni,“ segir Freydís
Hjálmarsdóttir, næringarfræðingur
að mennt, með BSc og meistara-
gráðu í næringarfræði.
„Einstaklingur sem hefur fengið
þvagfærasýkingu er í aukinni
hættu á að fá sýkingu aftur og talið
er að um fjórðungur fái endur-
tekna sýkingu innan sex mánaða
og þriðjungur innan árs. Þar af
leita hundruð sýklalyfjameðferðar
við þvagfærasýkingum á Íslandi
á hverju ári. Yfir 80% þvagfæra-
sýkinga eru taldar vera af völdum
þarmabakteríunnar e.coli, en aðrar
bakteríur, sveppir og sníkjudýr geta
líka valdið þvagfærasýkingum.“
Fyrirbyggjandi er lykilatriði
Þvagfærasýkingar geta verið afar
óþægilegar en eru þó oftast skað-
lausar að sögn Freydísar. „Einstaka
sinnum nær sýkingin til efri þvag-
færa eins og nýrna, en það er afar
óalgengt. Til að mynda verða 30%
þvagfærasýkinga einkennalausar á
innan við viku án meðferðar. Hins
vegar getur verið erfitt að eiga við
síendurteknar sýkingar. Þótt þær
séu meðhöndlaðar á áhrifaríkan
hátt með sýklalyfjum, getur óhófleg
notkun sýklalyfja leitt til skaðlegra,
heilsufarslegra afleiðinga.
Til að forðast of mikla útsetningu
fyrir sýklalyfjum leita margir til
fæðubótarefna og náttúrulyfja.
Rannsóknir þar að lútandi eru af
skornum skammti og sumar mis-
vísandi, en nokkur fæðubótarefni
gefa góða raun þegar kemur að
því að koma í veg fyrir þvagfæra-
sýkingu.“
Fjögur virk efni
Comfort-U inniheldur fjögur efni
sem rannsóknir hafa sýnt fram
á að geti hjálpað til við að fyrir-
byggja þvagfærasýkingar. Það eru
einsykran D-mannóse, þarma-
gerillinn Lactobacillus rueteri og
svo virku efnin í trönuberjum og
sortulyngslaufum (e. bearberry
leaf). „Trönuberin eru frægust, en
eitt virku efnanna í þeim er ein-
mitt „D-mannóse“. Sortulyngslauf
þekkja flestir undir nafninu uva
ursi og „Lactobacillus rueteri“ er
einn af góðgerlunum sem finna má
til dæmis í AB-mjólk.
Af þessum fjórum efnum hefur
D-mannóse komið hvað best út úr
þeim rannsóknum sem hafa verið
gerðar með tilliti til forvarna vegna
þvagfærasýkinga. Rannsóknir á
D-mannóse sýna fram á marktæka
minnkun á endurteknum þvag-
færasýkingum hjá þeim sem fá þær
reglulega. Til þess að sýking nái
fótfestu í þvagfærum þarf e.coli eða
önnur örvera að ná að festast við
blöðruvegginn. Virkni D-mannóse
er sú að bindast til dæmis e.coli
bakteríum, skola þeim út með þvagi
og koma þannig í veg fyrir sýkingu.
Trönuber innihalda meðal
annars D-mannóse, hippúrsýru
og anthósýanín, sem eru talin
torvelda e.coli að festast við þvag-
blöðruvegginn. Þrátt fyrir að ekki
séu allir á eitt sáttir, sýnir saman-
tekt margra rannsókna fram á
verndandi áhrif D-mannósa gegn
þvagfærasýkingum hjá konum sem
fá þær reglulega. Ekki skemmir fyrir
að trönuber hafa líka marga aðra
heilsubætandi kosti.
Lauf sortulyngs, (önnur nöfn:
uva ursi, bjarnaber, fjalla-trönuber)
hafa í árþúsund verið notuð til að
meðhöndla þvagfærasýkingar. Nú
benda rannsóknir til þess að það sé
svo sannarlega eitthvað til í því og
kallað hefur verið eftir fleiri rann-
sóknum. Sortulyngið inniheldur
örverueyðandi efnasambönd
sem vinna gegn óvingjarnlegum
bakteríum og hjálpa við upptöku
á efnum úr trönuberjum. Efna-
sambönd í laufunum, svo sem
Arbutinin, eru talin vinna gegn
útbreiðslu e.coli meðal annars og
trufla viðloðun bakteríunnar við
blöðruvegginn,“ segir Freydís.
Hjálplegar örverur
Jafnvægi í þvagkerfisflórunni er
svo viðhaldið með hjálp gagn-
legu bakteríunnar Lactobacillus
rueteri. „Hjálplegu örverurnar í
líkamanum kallast góðgerlar og er
fjöldinn allur af þeim í meltingar-
kerfinu. Við getum bætt um betur
með trefjaríku fæði, ab-mjólk og
skyldum vörum, súrsuðum mat og
bætiefnum.
Sumir góðgerlar viðhalda
jafnvægi í þvagi, leggöngum og
meltingarvegi með því að fram-
leiða efnasambönd sem leyfa ekki
óvinveittum bakteríum að vaxa. Sá
stofn sem er talinn hvað mikilvæg-
astur fyrir þvagfærakerfið er Lacto-
bacillus rueteri. Þessi bakteríustofn
getur endurheimt náttúrulegt
örverujafnvægi í þvagfærum og
getur myndað efnasambönd sem
leyfa ekki óvinveittum bakteríum
að vaxa og dafna.“
Fjölþætt fyrirbyggjandi virkni
Í Comfort-U koma saman þrjú virk
innihaldsefni sem eru studd af
rannsóknum, ásamt Lactobacillus
rueteri-stofni. Saman eru þessi efni
talin geta stutt heilbrigði þvag-
færa og veitt fjölþætta vörn gegn
þvagfærasýkingum. „Til eru margir
mismunandi stofnar góðgerla og
fjöldi þeirra í hverjum skammti
er merktur með einingunni CFU
sem stendur fyrir „colony forming
unit“, eða nýlendumyndandi
stofn. Í Comfort-U er réttur stofn í
nægilegu magni til að hafa tilskilin
áhrif án þess að valda skaða, enda
er þetta verðlaunuð formúla. Com-
fort-U er náttúrulegt bætiefni sem
kemur í pillu- og belgjaformi.
Forvörn er alltaf best og Com-
fort-U hefur það fram yfir sýklalyf
að vera laust við aukaverkanir
eins og ógleði og magaeinkenni.
Comfort-U skaðar ekki vinveittu
þarmaflóruna sem er einn helsti
ókostur sýklalyfja. Hins vegar er
sýklalyfja alltaf þörf ef sýking er
staðfest í efri hluta þvagfæra eins og
nýrum og ávallt skal fylgja læknis-
ráði. Þegar stór hluti kvenna er með
endurteknar þvagfærasýkingar,
fögnum við því þegar vara á borð
við Comfort-U kemur á markað.“ n
Good Routine fæst í Lyfjum og
heilsu, Apótekaranum, Hagkaup,
Nettó, Fjarðarkaup og Krónunni.
Fjölþætt og fyrirbyggjandi vörn gegn þvagfærasýkingum
Freydís fagnar því að vara eins og
Comfort-U sé komin á markað fyrir
íslenskar konur. Myndir/aðsendar
Comfort-U inni-
heldur fjögur
efni sem rann-
sóknir hafa sýnt
fram á að geti
hjálpað til við
að fyrirbyggja
hinar hvimleiðu
þvagfærasýk-
ingar.
Það stendur mikið til hjá
besta fimleikafólki landsins
en um komandi helgi fer
fram Íslandsmótið í fim-
leikum.
gummih@frettabladid.is
Á laugardag verður keppt í fjöl-
þraut og á sunnudaginn verður
keppni á einstökum áhöldum.
Íslandsmótið fer fram í Egilshöll í
Grafarvogi.
Valgarð Reinhardsson, ríkjandi
Íslandsmeistari í karlaflokki,
verður á meðal keppenda en hann
er sexfaldur Íslandsmeistari í
fjölþraut. Hann fagnaði titlinum
í fjölþraut í fyrra og vann til verð-
launa á öllum áhöldunum. Val-
garð var útnefndur fimleikakarl
ársins af Fimleikasambandinu í
fyrra.
„Ég reyni alltaf að gera mitt
besta og svo kemur bara í ljós
hverju það skilar manni,“ segir
Íslandsmeistarinn. Valgarð hefur
hreppt gullið í fjölþraut fimm ár
í röð. Hann varð fyrst Íslands-
meistari árið 2015 en varð síðan
fyrir því óláni að slíta hásin 2016.
Eftir að hann jafnaði sig af þeim
meiðslum hefur hann hampað
Íslandsmeistaratitlinum í öll
skiptin.
Líkamleg og andleg þreyta
Valgarð segist vera í fínu formi.
„Það má eiginlega segja að ég sé í
byrjun á keppnistímabilinu. Árið í
fyrra var langt og strangt. Það var
mikið af mótum og keppnistíma-
bilið var alveg fram í nóvember.
Maður fann fyrir líkamlegri og
andlegri þreytu undir lok ársins
enda gat maður lítið hvílt á milli
móta. Það var erfitt að byrja nýtt
tímabil enda var maður ekkert
„súper peppaður“ að byrja aftur á
fullu í erfiðum æfingum. En þetta
var bara smá tímabil og það þurfti
bara að stilla hausinn rétt,“ segir
Valgarð.
Það er stutt í næsta stórmót
hjá Valgarði en hann tekur þátt í
Evrópumótinu í áhaldafimleikum
sem haldið verður í Antalya í
Tyrklandi 11. til 16. apríl.
„Nú sér maður bara hvernig
Íslandsmótið fer áður en farið
verður að hugsa hvernig Evrópu-
mótið verður sett upp. Ég mun
eflaust gera eitthvað erfiðara í
úrslitunum næsta sunnudag til
að sjá hvar ég stend. Maður þarf
að fara svolítið skynsamlega inn
á EM en með góðum árangri á
því móti er möguleiki að tryggja
sér farseðil inn á heimsmeistara-
mótið. Þangað stefni ég klárlega,“
segir Valgarð en HM verður haldið
í Antwerpen í Belgíu um mánaða-
mótin september-október.
Æfir að jafnaði í 25 tíma á viku
Valgarð segir að á HM gefist
möguleiki á að vinna sér sæti á
Ólympíuleikunum sem fram fara í
París á næsta ári. „Það eru tækifæri
í boði til að reyna að komast inn á
Ólympíuleika eins og EM á næsta
ár en þar verða nokkur laus sæti í
boði.“
Spurður hvernig ein æfingavika
líti út hjá honum segir Valgarð:
„Þessi vika verður svolítið létt
vegna Íslandsmótsins. Síðasta
vika var erfiðari. Ég myndi skjóta
á að ég eyði svona að jafnaði 25
klukkustundum í æfingar á viku,“
segir Valgarð, sem hefur í nógu að
snúast en hann er á síðustu metr-
unum að klára íþróttafræði við
Háskólann í Reykjavík. „Þetta er
búið að vera smá púsluspil hjá mér.
Ég er að fara inn í seinustu vikuna
í skólanum í næstu viku og þá á ég
bara BS-ritgerðina eftir.“
Valgarð er 26 ára gamall og
hefur um árabil verið einn fremsti
fimleikamaður landsins sem
hefur unnið til margra verðlauna
á alþjóðlegum mótum. En hvenær
skyldi hann hafa byrjað að æfa
fimleika?
„Ég var fimm ára gamall og ég er
því á mínu 21. ári í fimleikunum.
Ég er væntanlega kominn nær
endanum á ferli mínum heldur en
byrjuninni. Það eru enn þá nokkur
markmið sem mig langar að ná
áður en ég segi þetta gott. Ég hef
komist í úrslit á einstaka áhaldi á
Evrópumóti en aldrei í fjölþraut-
inni. Ég vil ná því áður en ég hætti.
Ég hef unnið til margra verðlauna á
Norður-Evrópumótum. Það hefur
alltaf verið silfur en ég væri alveg
til í að vinna gullið og heyra þjóð-
sönginn allavega einu sinni,“ segir
Valgarð. n
Enn nokkur markmið sem ég vil ná
Valgarð hefur hampað Íslandsmeistaratitlinum í fjölþraut undanfarin fimm ár og alls sex sinnum. fréttablaðið/Getty
Þessi vika verður
svolítið létt vegna
Íslandsmótsins. Síðasta
vika var erfiðari. Ég
myndi skjóta á að ég eyði
svona að jafnaði 25
klukkustundum í æfing-
ar á viku.
4 kynningarblað A L LT 22. mars 2023 MIÐVIKUDAGUR