Fréttablaðið - 22.03.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
Fjármálastarfsemi byggir á trausti.
Sem er dálítið merkilegt í ljósi
þess að fátt virðist fallvaltara en
einmitt fjármálastarfsemi. Á vef
Harvard Business School er til
dæmis sorglega skondin gagnvirk
mynd þar sem maður getur fylgt
bankakrísum frá árinu 1800. Það
líður vart það ár þar sem eitthvað
er ekki í klessu þó áhrifin séu mis-
mikil á heimsbyggðina. Gúgglið
þetta endilega (Global Crises Data
by Country).
Nú falla bankar austan hafs og
vestan og ekki laust við að hugur-
inn reiki aftur til ársins 2008. Hinir
örlagaríku dagar að haustinu og
eftirleikurinn allur – „hrunið“
– þið munið. Margt hefur verið
unnið síðan þá til að styrkja stoðir
fjármálakerfisins og er það vel.
Það væri gott ef traustið sem
byggðist upp í Covid hefði ekki
horfið jafnhratt og raun ber vitni.
Forystan þá var fagleg og ótvíræð
hjá þríeykinu sem stóð í stafni og
árangurinn eftir því.
Vandinn er sá að í þessari krísu
hefur ekki tekist að efla traust á
þeim stofnunum sem helst þyrftu
einmitt nú að geta sýnt að þær séu
traustsins verðar. Þannig hafa í
aðdragandanum bæði Alþingi og
Seðlabanki Íslands tapað miklu
trausti í traustsmælingum meðal
almennings. Ég hef heyrt allar
fráskýringarnar um að traust fari
almennt minnkandi í heiminum
og þannig er það vafalaust. Réttu
viðbrögðin eru þó tæpast að
yppta öxlum í uppgjöf og horfa
í hina áttina. Við þurfum þvert
á móti að horfast í augu við það
hverja sem við veljum til forystu,
hvort heldur er í stjórnmálum,
stofnunum, samtökum eða fyrir-
tækjum og spyrja hvort þau séu
traustsins verð.
Það skiptir máli hver stjórnar. n
Traust
N Ó I S Í R Í U S