Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 14

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 14
14 SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 ingardeild fyrir lyflæknissjúklinga, gigtarsjúklinga og bæklunarsjúkl- inga. Því miður er enn langt í land að nokkur endurhæfingaraðstaða verði á Kristnesspítala. Styrkveitingar r A ■ ■ námskeiði í öldrunarlækning- um í Gautaborg árið 1982 fékk und- irritaður þær upplýsingar að kostn- aður við u.þ.b. einnar klst. heima- hjúkrun væri 75-100 sænskar krón- ur, vistun á dvalarheimili aldraðra um 225 sænskar krónur á sólar- hring, á hjúkrunarheimili 450, á öldrunarlækningadeild 650 og á fullkomnu deiIdarskiptu sjúkrahúsi 1.000 sænskar krónur á sólarhring. Kostnaðarhlutföll hljóta að vera svipuð hér heima. Því er Ijóst að auk þess að flestum líður best heima hjá sínum nánustu er margfaldur sparn- aður fyrir hið opinbera að hjúkrun- arsjúklingum sé veitt umönnun í heimahúsum og þeir, sem leggja það á sig, spara þjóðfélaginu veru- legan kostnað. Líklegt má telja að fleiri fengjust til að annast sína nán- ustu á heimilum sínum ef greiðsla fengist fyrir. Því legg ég til að fólki, sem vill og getur annast hjúkrunar- sjúklinga í heimahúsum, verði greiddur styrkur af Tryggingastofnun ríkisins, er nemi t.d. lámarkslaunum í landinu. Þjónustuhópi aldraðra á hverjum stað yrði falið að meta bæði hvort hinn aldraði er hjúkrun- arsjúklingur og hvort sá sem vill annast hann er fær um það. Ákvæði um hliðstæðar greiðslur eru í lögum um málefni fatlaðra (10. gr.). Hækkun skatts Engan hef ég vitað gagnrýna þann nefskatt sem allir skattgreið- endur greiða til Framkvæmdasjóðs aldraðra og mætti örugglega hækka hann án þess að nokkur fyndi að því. Þannig fengist aukið fjármagn til framkvæmda í þágu aldraðra og mun ekki af veita. Niðurlagsorð F Eg vona að Ijóst sé af framan- skráðu að víða er pottur brotinn í öldrunarþjónustu í Akureyrarlæknis- héraði og á sumum sviðum er æp- andi þörf fyrir úrbætur. Ég leyfi mér að staðhæfa að þörf fyrir úrbætur á þessum sviðum sé síst minni hér en á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Tog- streita mun víst verða allmikil um fjárveitingar til öldrunarmála á næstu árum en ég óska okkur öllum þess að við berum gæfu til að leysa þessi mál farsællega. Verktakastarfsemi —Húsbyggingar BYGGINGAFÉLAG I Ð Gerum gömul hús sem ný. Framleiðum á verkstæði. Útihurðir innihurðir og ýmiskonar innréttingar. Tilboðsverð ef dskað er. Vönduð vinna. SÍMI (95)5211 og 5841 - 550 SAUÐÁRKRÓKI Þrjátíuára reynsla. Saemundargötu 3—5, Borgartúni 1—3

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.