Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 32

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 32
32 SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUDBORGARSVÆÐISINS 1 1986 fengnir færustu lista- og vísinda- menn til að vinna með félögunum. Auk þessa skipulega starfs í aðal- samtökunum og klúbbunum fara fé- lagarnir saman í leikhús og á lista- söfn og er sú starfsemi einnig í um- sjón starfsmanns. Reynslan af frístundahópnum Hana nú í Kópavogi er ótvírætt jákvæð. Það er ekki aðeins mikill grund- völlur fyrir þessari starfsemi, heldur einnig mjög mikil félagsleg þörf. Óteljandi dæmi eru um það, að þessi starfsemi leysi fólk úr einangr- un og það skapast kynni milli fólks, sem þekktist ekki áður. Hér hefur verið drepið á einn þátt í félagsstarfi fullorðins fólks, þar sem reynt er að tengja saman kynslóðirn- ar. Markmiðið er að stuðla að eðli- legri aðlögun starfsloka og því, að fólk eigi þess kost að kynnast því besta í listum, menningu, náttúruvís- indum og öðru því, sem gefur lífinu gildi og tilgang. Þetta er tilraun, sem hefur verið gerð á þessu afmarkaða sviði og virðist hún hafa tekist. Á öðrum sviðum þyrfti að gera aðrar tilraunir og félagslíf aldraðra hlýtur að breytast. Sá þáttur, sem við tekur þegar fólk er orðið háaldrað eða heilsulítið, hefur ekki verið reifaður hér, en þar koma til önnur atriði. Og fólk, sem lagt hefur í síðasta róðurinn, hefur stundum aðrar þarfir og önnur sjón- armið, sem þarf að sinna og er raun- ar unnið mjög vel að því í Kópavogi. Efri mynd: Gönguklúbbur „HANA NÚ" í Kópavogi leggur af stað í vikulega laugardagsgöngu. Neðri mynd: Frá ferð „HANA NÚ" í Kópavogi á Seltjarnanesi 1984.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.