Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 22

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Side 22
22 SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 Samfara því þarf að gera öldruðum fært að minnka við sig húsnæði án þess að bíða af því fjárhagslegt tjón. Litlar íbúðir á hinum almenna mark- aði eru engin „patent"-lausn, því að þar lenda aldraðir í harðri sam- keppni við aðra þjóðfélagshópa um slíkt húsnæði, s.s. einhleypinga og ungt fólk, sem gjarnan hefur meiri fjáröflunargetu en ömmur þeirra og afar. Því er nauðsynlegt að samræma fjármögnun íbúða sérstaklega ætluð- um öldruðum og samfara því að tryggja að kostir séu fyrir hendi, hvort sem fólk vill leigja eða kaupa, og að íbúðirnar verði ávallt nýttar af þeim aldurshópi, sem þær eru ætl- aðar. Það er ekki síður mikilvægt að skipulagshöfundar hafi Ijósan skiln- ing á þörfum hinna öldruðu. Stað- setning húsnæðis fyrir aldraða þarf að vera þannig að aðgangur að al- menningssamgöngum, verslunum, heilbrigðisþjónustu, félags- miðstöðvum og síðast en ekki síst útivistarsvæðum sé auðveldur. Einnig er vert fyrir skipulagshöfunda og sveitarfélög að vera þess minnug að aldraðir eru öðrum fremur háðir fyrra umhverfi, staðbundnum venj- um og gömlum kunningjahópi. Af því leiðir að þeir sækjast mest eftir húsnæði í sínu gamla hverfi. Stefnumörkun sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu varðandi fjölda og staðsetningu húsnæðis fyrir aldraða er óðum að verða að raunveruleika. En nauðsynlegt er að ítreka þörf þess að tengja þá uppbyggingu við aðra þjónustuþætti. Allir eru sammála um að hönnun húsnæðis aldraðra þurfi að taka mið af sérstökum þörfum þeirra, þ.e. þar þurfi að hafa rúma stiga og ganga, góða lýsingu, lyftur, baðherbergi o.s.frv. En ekki þarf síður að gæta þess að aldraðir einangrist ekki og taki þann þátt í starfsemi þjóðfélags- ins sem þeim er unnt. Eins og tölurnar hér að framan bera með sér þá hefur umtalsvert átak verið gert í húsnæðismálum aldr- aðra á höfuðborgarsvæðinu og jafn- framt bendir allt til að sú uppbygg- ing muni halda áfram. Tryggja verð- ur að sú uppbygging verði markviss og í skipulegum tengslum við þá þjónustu og þau umhverfislegu atr- iði, sem nauðsynleg eru til að tryggja sívaxandi hópi aldraðra þá öryggiskennd sem eftirlaunaaldur- inn gerir kröfu til. Þórhannes Axelsson: Öldrunarmál: Könnun á högum og viðhorfum aldraðra 65 ára og eldri í Reykjanes- umdæmi; bls. 98-138 (1979). Ingi Valur Jóhannesson og Jón Rún- ar Sveinsson, Húsnæðiskönnun á höfuðborgarsvæðinu 1979, Ijósrit. 2) Sr. Sigurður Helgi Guðmunds- son:'„Hjúkrunarheimili fyrir aidraða sem þáttur í öldrunarþjónustu" í RKÍ: Námsstefna um Öldrunarmál, III, bls. 61 (1985). Tilvitnanir 1) Könnun Versluarmannafélags Reykjavíkur: „Hagir aldraðra", bls. 14-17; 39-43 (1984). Könnun á högum aldraðra í Kópa- vogi, bls. 10-23; 61. (Félagsmála- stofnun Kópavogs, 1985). Sfoðrit utan þeirra sem getur um í tilvitnunum: Námsstefnur RKÍ um öldrunarmál, 1981, 1983 og 1985 (3. hefti). Námsstefnur Öldrunarráðs íslands 1983 og 1984 (2. hefti). Tafla 3. íbúðir fyrir aldraija á höfuöborgarsv*<5inu 28. 2. ‘86 I. SVEITARFÉLÖG Byggðar í Aætlaðar Reykjavík Þjónustuibúðir Söluíbúðir með þjónustu 271 18 Hafnarfjðrður Vemdaðar þjónustuíb. Söluíbúðir með þjónustu 30 42 Seltjarnarnes Söluíbúðir með þjónustu 16 22 Mosfellssveit Þjónustuíbúðir óskilgreint 6 15-20 Kópavogur Óskilgreint 79 11. HAGSM UNASAMTÖK Hrafnista Hafnarf./Garðabæ Söluíbúðir með þjónustu 28 28 Samtök aldraðra Reykjavík Söluibúðir með þjónustu x 14 66 Verslunarmannafélag Reykjavikur Söluíbúðir með þjónustu x 60 Alls 443 125 =a.125 x Reykjavikurborg byggir upp þjónustuna AGUST 1915

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.