Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Síða 31

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.04.1986, Síða 31
SKIPULAGSSKRIFSTOFA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 1 1986 31 Hrafn Sæmundsson, atvinnumálafulltrúi hjá Félagsmálastofnun Kópavogs FELAGSSTARF ALDRAÐRA C ^#íbreytilegt þjóðfélag, breytt við- horf og breyttar þarfir fullorðinna einstaklinga. Allt þetta kallar á endurmat þeirrar félagslegu þjón- ustu sem aldraðir eiga nú kost á. Þetta endurmat verður að byggjast á því grundvallarsjónarmiði að hætta að skipta fólki niður á bása eftir aldri. þetta endurmat verður að byggjast á þeim þörfum, sem hver einstaklingur telur sig hafa. Jafn- framt hlýtur þetta endurmat að vera fólgið í því að tengja saman aldurs- tímabil. Það verður enginn gamall á sextugasta og sjöunda afmælisdegi sínum, frekar en á einhverjum öðr- um degi á fullorðinsárunum. Eigi þessi sjónarmið við rök að styðj- ast, mætti ef til vill byrja á því að tengja félagsstarf aldraðra þann hluta ævinnar, þegar einstaklingur- inn er á útleið af vinnumarkaði. Það má ekki gerast að fólki sé kippt út af vinnumarkaði og inn á lífeyri án þess að áður hafi verið hugsað fyrir því, hvernig einstaklingurinn er fé- lagslega undir það búinn að eignast nægan frítíma. Aðlögun starfsloka er mikilvægur þáttur í þeim undirbún- ingi að verða „löglegt gamalmenni". Raunar er það mjög misjafnt hver félagsleg staða fólks er, þegar starfs- lok nálgast. Margir hafa áhugamál til að hverfa að, en hinir eru því miður fleiri, sem lenda í tómarúmi á þessum tímamótum. Þetta á ekki síst við um þá kynslóð, sem nú er að Ijúka starfsævi sinni. Þessi kynslóð á sér rætur í tímum mikillar vinnu og langs vinnudags og þess vegna verða viðbrigðin enn meiri en ella væri. Vegna þessa er einn þátturinn í aðlögun starfsloka sá að leitast við að fólk geti hægt á sér í vinnunni síðustu árin, en jafnframt notað auknar frístundir til að öðlast áhuga- mál. Raunsætt og skynsamlegt væri að þessi aðlögun hefjist upp úr fimmtíu ára aldri, þannig að fólk fái tækifæri til að minnka vinnu sína, a.m.k. með því að hætta að vinna aukavinnu. Um sextugt mætti stytta vinnutímann enn meira. Þetta er ekki framkvæmanlegt, nema fjár- hagsdæmið sé reiknað jafnframt. Fólk hefur nú einfaldlega ekki efni á að minnka við sig vinnu af þeim sökum. Það er engu að síður stað- reynd, að margt fólk er orðið mjög slitið á þessum aldri og líkamlegri heilsu þess tekið að hraka. Um þetta eru að vísu ekki til tölulegar upplýs- ingar, en allir sem hafa mikil sam- skipti við þessa aldurshópa vita, að þetta er vandamál og það vaxandi. Af þessum orsökum býr fólk á þess- um aldri við minna öryggi á vinnu- markaði og á erfiðara að skipta um vinnu. Ekki er óeðlilegt að sveitarfélög, verkalýðsfélög og önnur samtök fólks taki þessi mál til raunhæfrar umfjöllunar. Til þess að allir geti átt kost á hagstæðum ytri félagslegum skilyrðum til aðlögunar starfsloka þarf að hafa vissa stýringu á hlutun- um. Stundum þyrfti ekki nema lítið til að koma til að fólk gæti skapað sér möguleika til frjórra áhugamála á þessu aldursskeiði. Eitt dæmið um þetta er sú tilraun sem gerð hefur verið í Kópavogi til að búa til ramma, sem fólk frá 50 ára aldri getur notfært sér til að skapa sér ný áhugamál og fullnægja félagslegri þörf. Hér er átt við frístundahópinn Hana nú, en hann starfar á vegum Tómstundaráðs Kópavogs. Frístundahópurinn Hana nú er þannig skipulagður, að einn um- sjónarmaður á vegum Tómstunda- ráðs sér um að stýra og skipuleggja starfið. Hefur Ásdís Skúladóttir fé- lagsfræðingur þetta verkefni með höndum. Hér er hins vegar ekki um „miðstýringu" að ræða heldur fram- kvæmir starfsmaður þær hugmynd- ir, sem félagarnir koma með. Starfsemi frístundahópsins skiptist í tvo höfuðþætti. Annars vegar eru stórar aðgerðir, sem mikill fjöldi tekur sameiginlega þátt í (en skráðir meðlimir í Hana nú eru nú um 400). Hins vegar er klúbbastarfsemi þar sem færri félagar veljast saman eftir áhugamálum sínum. Þannig eru starfandi bókmenntaklúbbur, nátt- úruskoðunarklúbbur, og leikist og málaralist eru stunduð á námskeið- um. í allri þessari starfsemi eru

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.