Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 53

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Page 53
Eru íslenskar fasteignir að H RYNJA? Inotástandi sínu verður bygging fyrir álagi af ýmsum toga sem veldur öldrun og sliti á einstökum byggingarefnum, innréttingum eða jafnvel heilum byggingarhlutum. Alag á bygginguna getur stafað af ytri þáttum, t.d. veður- fari og umhverfi, eða innri þáttum, s.s. umgengni og notkun. Alaginu má skipta í venjulegt álag og óvænt álag. Undir venjulegt álag falla allir þættir sem annaðhvort er kveðið á um í reglugerð eða stöðlum (t.d. álagsstöðlum) eða sjá mátti fyrir frá byrjun. Dæmi um slíkt álag eru t.d. vindálag og jarð- skjálftaálag samkvæmt staðli og almenn áraun á húsið vegna notkunar á meðan forsendur eru óbreyttar. Ovænt álag er t.d. álag vegna náttúruhamfara eða ef breyt- ingar á umhverfi (nýbyggingar o.fl.) breyta aðstæðum þannig að hætta á vindsveipum vex eða hætta á áfoki verður óvenju- mikil. Álag getur einnig orðið óvænt vegna breyttrar notkunar á húsi, t.d. ef skóla er breytt úr einsettum skóla í tvísettan eða íbúðarhúsnæði er breytt í dagheimili. í báðum tilvikum yrði áraun á bygginguna hraðari og meiri heldur en gera mátti ráð fyrir í byrjun. Flokkun og skilgreining viðhaldsaðgerða Þar sem gerðar eru viðhaldsáætlanir og reynt að skipuleggja viðhaldsaðgerðir hafa þróast ákveðin hugtök sem tengjast því hvernig og hvort aðgerðirnar eru skipulagðar. Fyrst er að nefna skipulagt viðhald en það greinist í fyrirbyggjandi við- hald og kerfisbundið viðhald. í annan stað er rætt um óvænt viðhald. Skipulagt viðhald felur í sér að skipulagt er að einhverju marki fyrirfram hvaða hlutir eru lagfærðir og í hvaða röð. Skipulagningin getur byggst á þvf að vitað sé um endingu byggingarefna við ákveðnar aðstæður. Síðan er gengið að ákveðnum hlutum með vissu millibili og fá þeir sitt viðhald eða endurnýjun vegna þess að vitað er um endinguna og þeim því ekki treyst lengur. Skipulagning af þessu tagi er gjarna kölluð fyrirbyggjandi viðhald. Kerfisbundið viðhald byggist hins vegar á skipulagðri upp- lýsingasöfnun um ástand ákveðinna mannvirkja og gæti t.d. farið þannig fram að eftirlitsmaður skoðaði mannvirkið með ákveðnu jöfnu millibili, mæti ástand þess og skráði kerfis- bundið þá þætti sem þörfnuðust lagfæringar. Framkvæmdir yrðu síðan skipulagðar á grundvelli þessarar úttektar. Eins og oft vill verða um skilgreiningar eru ekki hrein skil milli fyrirbyggjandi viðhalds og kerfisbundins viðhalds, t.d. getur kerfisbundið viðhald verið fyrirbyggjandi að því marki að þar er fylgst með byggingarefnum og er þá hægt að skipta um eða gera við áður en þau gefa sig að ráði. Óvænt viðhald kemur til vegna skyndilegra bilana, skemmda eða skemmdarverka. Dæmi: rúðubrot, sprungin vatnsleiðsla o.s.frv. Að öllu jöfnu er óvænt viðhald þess eðlis að gera þarf strax við bilunina. Óvænt viðhald verður tæpast skipulagt en reynt er að gera áætlanir um slíkan kostnað með hliðsjón af reynslutölum. Einnig ættu skipulagðar viðhaldsað- gerðir að minnka hættuna á því, a.m.k hvað varðar skyndileg- ar bilanir á byggingunum sjálfum. Eftir þeim upplýsingum sem fyrir liggja virðist kostnaður skiptast nokkuð jafnt á skipulagt viðhald og óvænt. (Byggt á takmörkuðum upplýsingum). Auk þess sem áður er talið flokka menn viðhaldsaðgerðir innan hvers hóps í viðhald og endurbyggingu. Algeng skil- greining er sú að viðhald sé viðgerð eða endurnýjun á bygg- ingarefni með sömu efnisgæðum og voru í upphafi. Séu hins vegar notuð betri efni er aðgerðin skilgreind sem endurbygg- ing. Aðrir vilja hins vegar skilgreina viðhald sem viðgerð á ákveðnum byggingarhluta en kalla það endurbyggingu þegar einhverjum hluta hans er skipt út fyrir nýjan, óháð því hvort betra efni er sett í staðinn eða ekki. Endurbygging hefur svo að sjálfsögðu víðtækari merkingu. Kostnaður við viðhaldsaðgerðir Þar sem við höfum ekki nægar innlendar upplýsingar um við- haldskostnað verðum við að láta nægja að mynda okkur grófa hugmynd um hugsanlegan kostnað. Samkvæmt erlendum upplýsingum er áætlað að árlegur viðhaldskostnaður liggi á bilinu 1,5 til 5% af stofnkostnaði bygginga. Algengt virðist þó að miða við um 2%. Ef litið er á vísitölu fjölbýlishúss gefa þessi 2% u.þ.b. kr. 750.000 á ári í viðhaldskostnað. Það samsvarar kr. 75.000 í ARKITEKTÚR OG SKIPULAG
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.