Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Blaðsíða 61
SKÚLAGÖTUSKIPULAG
ÚTVÖRÐUR BYGGÐAR AÐ SUNDUM
Hugmyndir um þétta íbúðarbyggð á Skúlagötusvæðinu
(Skuggahverfi) eiga sér nokkurn aðdraganda. í
greinargerð með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1962-83
er þegar bent á Skúlagötu sem eitt hinna þriggja byggingar-
svæða í miðbænum, sem skipta sérstöku máli, að því er varðar
yfirbragð borgarinnar. Þar segir t.d.: „Þeir verða margir, sem
á komandi árum aka Kleppsveginn og Skúlagötu í áttina að
Miðbænum. Allt frá Laugarnesi blasir við húsaröðin við
Skúlagötu sem forgrunnur borgarinnar. . .“
Ráðgjafar frá danska ráðgjafafyrirtækinu Anders Nyvig
A/S, sem hafa verið ráðgefandi aðilar við skipulagsstörf borg-
arinnar, bentu einnig á hversu nýting þessa svæðis væri orðin
léleg. Svæðinu hafði hnignað og óljóst var hvaða kostir lágu
fyrir varðandi endurnýjun og uppbyggingu (eins og reyndar í
miðborginni allri), vegna þess að ekki var gengið frá skipulagi
þessara svæða. Iðnaðarlóðirnar stóru við Skúlagötu voru illa
nýttar og sumar ekkert. Stór auð svæði voru til lýta og íbúðar-
byggðin sundurlaus og víða án umhverfisgæða, sem við gerum
kröfur til að íbúðarbyggð hafi í dag. Með uppbyggingu þéttrar
íbúðarbyggðar þar sem gerðar eru strangar kröfur varðandi
bflastæði, töldu „Nyvigsmenn" að mynda mætti sterkan bak-
hjarl fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi á Laugavegssvæð-
inu og í Kvosinni, og einnig leysa bílastæðavanda svæðisins að
nokkru með samnýtingu bflastæða. Þessi rök geta sennilega
flestir fallist á.
Það skipulag sem nú er byrjað að hanna og byggja eftir við
Skúlagötu er hluti þeirrar vinnu sem unnin var samhliða end-
urskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur og er því samtvinnað
skipulagi miðbæjarins og heildarmynd borgarinnar.
Það má einnig segja að þessar framkvæmdir allar, sem í
heild tengjast endurnýjun, endurbótum og uppbyggingu mið-
bæjarins, séu nokkuð samstíga því sem víða er að gerast í
borgum bæði austan hafs og vestan.
Vegna breyttra atvinnuhátta og nýrrar flutningatækni hafa
not hafnarsvæða víða breyst og gefið kost á endurskipulagn-
ingu. Þekkt dæmi eru t.d.: Osló með gríðarlegri uppbyggingu
í kringum gamla miðkjarnann og endurbótum á umferðaræð-
um við höfnina; Gautaborg þar sem unnið er með stórbrotnar
hugmyndir um þétta og háa íbúðarbyggð á bökkum Gautelf-
ar. Þar voru fram á síðustu ár fimbulstórar skipasmíðastöðvar
sem nú eru verkefnislausar. Samkeppni hefur farið fram um
hafnarsvæðin í Kaupmannahöfn. I Baltimore og Boston hafa
hafnarsvæðin verið endurskipulögð til mikillar fyrirmyndar og
við þekkjum góða viðleitni við Thames í London, á Manhatt-
an í New York og fleiri dæmi mætti nefna.
Með þessum hugmyndum við Skúlagötuna og reyndar víðar
í námunda við miðborgina, s.s. á fyrrverandi lóð BUR við
Álagranda og á Rauðarárholti þar sem Timburverslun Árna
Jónssonar var til skamms tíma, er tekin sú stefna að reisa
þétta íbúðabyggð með það að leiðarljósi að styrkja og efla
miðborgina.
Vegna þess að Skúlagötusvæðið hefur þá sérstöðu að vera
opið að hafi til norðurs og frá því er eitt fegursta útsýni í
Reykjavík um eyjar og sund, þótti sjálfsagt að gefa sem flest-
um kost á þessum gæðum. Um leið er mönnum ljóst að hár en
uppbrotinn veggur húsa næst ströndinni verður gott skjól fyrir
íbúðabyggðina á holtinu fyrir sunnan.
Reynt er að halda í einkenni og verðmæti íbúðarbyggðar-
innar ofar í holtinu og má þegar sjá þess merki að hafin er lag-
færing, endurbygging og uppbygging, þegar nú loks liggur fyr-
ir skipulag og þannig fastur grunnur fyrir íbúana að miða
ákvarðanir við. Sumir fá endurbyggingarrétt og geta gert
framtíðaráætlanir, aðrir lagfært hús, lóðamörk eða aðra að-
stöðu og þannig bætist aðstaða flestra. Auðvitað missa nokkr-
ir hluta útsýnis sem þeir hafa haft og aðstaða breytist en í
staðinn munu um þúsund til fimmtán hundruð manns fá
möguleika á þessu sérstæða útsýni og njóta návistar við mið-
borgina og hafið. Það er svo með allt skipulag að einhverju
þarf að fórna ef ná skal settu marki. Með skipulaginu fylgir ít-
arleg greinargerð, þar sem höfundarnir lýsa hugmyndum og
markmiðum og er rétt að þættir úr henni fylgi hér með til
skýringar.
Höfundar hins staðfesta deiliskipulags sem nefnt er Skúla-
götu-skipulag eru Arkitektar G.Ó.B., þeir Guðmundur Kr.
Guðmundsson, Ólafur Sigurðsson og Björn Hallsson, sem var
verkefnisstjóri.
Utdráttur úr greinargerð höfunda:
Sú skoðun hefur verið ráðandi við gerð skipulagstillögunn-
ar, að um sé að ræða skipulag miðborgarhverfis. Helsti kostur
svæðisins (auk útsýnismöguleika) er nálægð þess við aðal-
menningar-, þjónustu- og atvinnuhúsnæði höfuðborgar-svæð-
isins. Hafa verður í huga mikilvægi mjög þéttrar byggðar við
miðborgir, eigi þar að þrífast fjölbreytileg starfsemi og mann-
líf. Gerð þessa hverfis er því ekki sambærileg við íbúðarhverfi
annars staðar í borginni.
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG