Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Blaðsíða 64
varnargarða (hljóðmön) milli þjónustuhúsa norðan Skúlagötu.
Gera má ráð fyrir að þessi mannvirki dragi úr hávaða sem
nemur 5-15 dB (A) upp undir 4.-5. hæð (minnkandi með
hæð).
Af ýmsum ástæðum er æskilegt að fjölskyldusamsetning í
íbúðarhverfum sé nokkuð fjölbreytileg. Meðal atriða má
nefna eðlileg samskipti fólks eins og þau gerast í þjóðfélaginu,
milli aldurshópa og starfsstétta. Með einhliða smáum íbúða-
gerðum eru líkur til að eigendaskipti verði tíð. Reynsla frá
öðrum borgum sýnir að slíkar aðstæður leiða til óstöðugleika í
almennum samskiptum, ásamt áhugaleysi og óreiðu í hirðingu
og viðhaldi sameigna, sem hins vegar leiðir til öryggisleysis og
neikvæðs umhverfis í mörgu tilliti.
íbúðir innan skipulagssvæðisins eru nú um 267. Með nýt-
ingu endurbyggingarréttar, að frátöldum íbúðum í húsum sem
áætlað er að víki, hækkar sú tala í um 285-290. Heildaríbúða-
fjöldi innan svæðisins lætur því nærri að geta orðið um 770
íbúðir.
Núverandi byggð á svæðinu skiptist í íbúðarhúsnæði og at-
vinnuhúsnæði. Þau íbúðarhús sem standa innan svæðisins eru
byggð frá seinni hluta 19. aldar og fram til um 1920. Síðan hef-
ur lítið verið byggt af íbúðum í hverfinu. Eldri húsin eru vel-
flest járnklædd timburhús, sum hver síðar forsköluð, byggð á
steinsteyptum kjöllurum eða hlöðnum. Yngri húsin á svæðinu
eru flest steinsteypt. Svo er einnig um viðbyggingar margra
timburhúsa og skúrbyggingar í baklóðum. Ástand húsa er
mjög misjafnt, sum eru léleg, önnur heilleg og nokkur hafa
nýlega verið endurbyggð að verulegu leyti.
Ljóst er að velflest íbúðarhús á svæðinu munu standa til
frambúðar, því er í tillögunni reynt að laga nýja byggð að
formi og einkennum þeirrar eldri. Á þann hátt getur hverfið
virkað í heild sinni, sem jafnframt skilur eftir opinn möguleika
til endurbygginga eða nýbygginga á einstökum lóðum inni í
hverfinu eftir aðstæðum, innan ramma sem skipulagið og
gamla byggðin móta.
I því sambandi hefur sérstaklega verið athuguð húsform og
stærðarhlutföll í íbúðarbyggð skipulagssvæðisins. Sú athugun
gefur nokkurn samnefnara hvað varðar formeinkenni í grunn-
mynd, hæðarhlutföllum og þakgerðum. Með þau einkenni
hefur verið unnið við gerð tillögunnar, í samræmi við framan-
greind markmið um heildaryfirbragð byggðarinnar.
Endurbyggingarréttur er hugsaður sem hvatning til úrbóta
innan skipulagssvæðisins, en felur ekki í sér kvöð á eiganda
viðkomandi lóðar um framkvæmdir eða framkvæmdatíma. Sé
rétturinn hins vegar fyrir hendi vinna breytingar samkvæmt
honum að bættu heildarsvipmóti hverfisins eftir því sem fram
Iíður. Hugsanleg íbúðaaukning með byggingu skv. endur-
byggingarrétti skipulagsins í heild lætur nærri að vera um 20-
25 íbúðir, að frádregnum íbúðum í húsum sem áætlað er að
víki.
Eitt meginmarkmið að baki tillögunni er að nýja byggðin
geti fallið að þeirri eldri. í því sambandi hafa formeinkenni
eldri byggðarinnar verið athuguð sérstaklega í höfuðatriðum
og er tillagan í heild sinni byggð á niðurstöðum þess.
Hús eru byggð upp af einingarstærð 11 m x 11 m í grunn-
mynd. Þau greinast í aðalatriðum í tvennt, þ.e.a.s. hús sem
standa tvö og tvö saman, 5 hæðir eða lægri, og hús sem eru
samsett af fjórum grunneiningum og eru hærri en 5 hæðir. Þök
eru brött með halla 35° til 45°, einhalla eða mænisþök og eru
stefnur þeirra yfirleitt langs eftir viðkomandi götu. Undan-
tekning er gerð á þessu við Skúlagötu þar sem stefnur snúa
frekar að götu. Undir húsum og inngörðum á milli þeirra
verður komið fyrir bílskýlum íbúða. Akstur í þau er frá norðri
og er gólfhæð þeirra áætluð svipuð og viðkomandi götuhæð,
þannig að garðar íbúðanna ofan á bílageymsluloftum standi í
réttri hæð með hliðsjón af birtuskilyrðum, og frárennsli virki
eðlilega.
Skuggahverfi er innan þess borgarhluta þar sem miðbæjar-
starfsemi fer aðallega fram, þ.e.a.s. hvers konar stjórnsýsla,
menningarstarfsemi, viðskipti og þjónusta. Æskilegt hlýtur
því að vera, að slíkri starfsemi sé markvisst blandað í nýja
byggð hverfisins í skipulagi þess. Fyrirkomulag hennar þarf að
vera þannig að starfsemin sé aðgengileg og aðlaðandi til af-
nota fyrir borgarbúa almennt og gesti borgarinnar, auk íbúa
svæðisins. í fyrirliggjandi skipulagstillögu er fyrirkomulag á
þjónustuhúsnæði áætlað þrenns konar. í fyrsta lagi er um að
ræða húsnæði fyrir frekar smáa starfsemi, sem staðsett verður
á jarðhæðum bygginga í götulínu við Skúlagötu og hugsanlega
á jarðhæðum bygginga í götum upp holtið.
Einnig er hugsanlegt að staðsetja hótelbyggingu, með til-
heyrandi þjónustustarfsemi, í sjálfstæðri byggingu eða þyrp-
ingu innan svæðisins.
Leiksvæði fyrir smábörn og almenna leiki barna eru ráð-
gerð í inngörðum íbúðarhúsa (sameiginleg svæði).
Inngörðum er komið fyrir innan húsaþyrpinga, í skjóli fyrir
helstu vindáttum, umferð og umferðarhávaða, en opnir fyrir
sólaráttum. Inngangar húsa, ásamt hugsanlegum sameiginleg-
um garðskálum, tengjast inngörðum beint.
Áætlað er að bflskýli verði byggð undir húsum á nýbygg-
inga-reitum og undir sameiginlegum svæðum þeirra (inngörð-
um), eftir því sem við á hverja íbúð og einu fyrir hverja 50 m2 í
þjónustuhúsnæði, í samræmi við samþykkt skipulagsnefndar.
Vegna skorts á langtíma bílastæðum fyrir atvinnusvæði við
Laugavegsásinn, er nokkur samnýting æskileg á bflastæðum á
einkalóðum.
Samkvæmt tillögunni er hugsanlegt að bflastæði opin al-
menningi innan skipulagssvæðisins geti orðið allt að 1100-1200
á mismunandi tímum sólarhrings.
Framkvæmd skipulagsins.
Nú hafa þegar verið samþykktar teikningar á tveimur stór-
um lóðum í skipulaginu og var skemmtilega að hvoru tveggja
staðið.
Á lóðinni vestan Vitastígs sem borgin keypti og hyggst reisa
á íbúðir fyrir aldraða í samræmi við hugmyndir skipulagsins
var boðið til lokaðrar samkeppni meðal nokkurra arkitekta-
stofa.
Tillaga Vinnustofu arkitekta h.f. (arkitektarnir Hróbjartur
Hróbjartsson, Richard Ólafur Briem, Sigurður Björgúlfsson
og Sigríður Sigþórsdóttir) var valin til útfærslu og er nú langt
komin í teiknivinnu. Framkvæmdir munu því geta hafist á
næsta ári.
Tillagan fellur einkar vel að hugmyndum skipulagsins og
hefur verið kynnt víða á sýningum og vakið verðskuldaða at-
hygli. (Sjá meðfylgjandi myndir).
Verktakafyrirtækið Steintak hf. keypti Völundarlóð og
efndi einnig til lokaðrar samkeppni meðal arkitekta um út-
færslu íbúðaeininga. Allar tillögurnar sem voru kynntar voru
mjög athyglisverðar en tillaga þeirra Dagnýjar Helgadóttur og
Guðna Pálssonar var valin til útfærslu og framkvæmdir þegar
hafnar á lóðinni. (Sjá meðfylgjandi teikningu). Einnig þessi
tillaga fellur mjög vel að meginhugmyndum skipulagsins og
hefur alla burði til að vera verðugur útvörður byggðar að
Sundum.
Eins og áður er getið er Skúlagötuskipulagið einn hluti
stórrar heildarmyndar sem skipulag borgar er og skal þannig
skilið og rætt.
Menn eiga stundum erfitt með að ná heildaryfirsýn í stórri
borg og láir þeim enginn, en fagmenn verða a.m.k. að setja
sig inn í forsendur og hugmyndir.
Skipulag er mjög viðkvæmt og hver breyting getur haft áhrif
á aðstæður eða umhverfi einhvers. Sá sem heldur að hægt sé
að skipuleggja þannig að allir séu sáttir og vel líki ætti ekki að
snúa sér að skipulagsstörfum, hann mun aldrei koma neinu í
framkvæmd. Þetta munu nokkuð þekkt sannindi, geri ég ráð
fyrir. ■
Þorvaldur S. Þorvaldsson
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG