Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Blaðsíða 65
Athugun á rakaheldni íslensks
Portlandsements í steinsteypu
Aárunum 1970-80 taldi eg mig hafa rökstuddan grun um
að það sement sem framleitt var í Sementsverksmiðju
ríkisins á Akranesi sýndi afbrigðileg einkenni,
miðað við það sem eðlilegt er hjá portlandsementi.
Bar þar helst til of hraða storknun ásamt storknunarsprung-
um (rýrnun), einnig of háan brotstyrk miðað við tíma. Oft
mátti sjá plötur, jafnt botnplötur sem plötur steyptar á undir-
slátt, klofna í mynstur eins og sést í leirflögum sem þorna upp.
Einnig varð eg var við í einu húsi þar sem steypt var í stál-
mót, að þegar mót voru tekin frá að morgni dags eftir að
steypt hafði verið, höfðu myndast sprungur ofan í veggbrún-
irnar mislangt niður eftir veggjunum, Þó mest um 3o cm.
Greinilegt var að þetta voru storknunarsprungur, þar sem
loftþurrkunar gætti við yfirborð.
Þó að athuganir mínar byggðust aðeins á sjón, virtust þær
þó gefa þá heildarmynd, að þegar kom að því að kaþólska
kirkjan réðist í byggingu biskupsbústaðar og prestahúsa í
Landakoti eftir uppdráttum mínum þá lagði eg það til, við dr.
Hinrik Frehen biskup, að leitað yrði annarra sementstegunda
en þess íslenska. Biskup Frehen hafði fylgst með þeirri um-
ræðu sem fram fór í blöðunum um alkalískemmdir og hafði
áhyggjur af því að byggja við þau skilyrði.
Eg fékk til fundar við okkur og álitsgerðar prófessorana dr.
Óttar P. Halldórsson verkfræðing og dr. Þorstein Helgason
verkfræðing auk burðarþolsverkfræðings húsanna, Braga Þor-
steinsson, og var það álit þeirra að fýsilegt væri að kanna
möguleika á notkun betur skilgreinds sements.
Leitaði biskup Frehen fyrir sér og fékk tilboð frá nokkrum
aðilum í Evrópu. Að athuguðu máli varð að ráði að hann
samdi um kaup á sementi frá Robur sementsverksmiðjunum í
Hollandi. Um var að ræða portland-háofnasement, en það
virtist vera öruggt þó um væri að ræða þó nokkuð alkalívirk
fylliefni. Portland-háofnasement er malað úr blöndu af port-
landsementsgjalli og háofnagjalli í nokkuð mismunandi hlut-
föllum í ýmsum löndum. I hollensku háofnasementi er miðað
við 70% háofnagjall. Ákveðið var að steypa undirstöður og
botnplötur úr íslensku portlandsementi en að öðru leyti yrðu
húsin steypt úr háofnasementi, Robur A, frá Hollandi.
Ákveðið var að nota Rauðamelsefni sem fylliefni, bæði möl
og sand. Sementsmagn var 350 kg pr. rúmmetra. Sigmál var
ákveðið sem næst 8 cm, loftblendi var 5% og engin flot- eða
mýkingarefni. Steypuframleiðandi var B.M. Vallá. Þegar
komið var fram á vetur 1980 óskaði eg eftir því við Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins að framkvæmdar væru
rakamælingar í steypunni. Sú mæling fór fram í því húsi sem
enn var opið og steypa aðgengileg að innan. Niðurstöður
þeirrar mælingar voru sem hér segir:
Dagsetning mælingar var 10.12.1980
Veggur á 1. hæð steyptur 11.8.80
Gólf á 1. hæð steypt 11.4.80
Veggur í Kjall. steyptur 1.4.80
GólfíKjall. steypt 2.11.79
Raki 6,5% Robur A
Raki 6,4% Robur A
Raki 6,3% Robur A
Raki 7,7% ísl.portland.
hafði biskup Frehen mikinn áhuga fyrir þessu vandamáli okk-
ar íslendinga.
Ofanskráð athugun varð til þess að eg ákvað að fylgjast
með rakanum í steypunni enn um sinn. Þar sem steypunni var
smám saman lokað innanhúss varð stoðveggurinn til saman-
burðar um rakamælingarnar, ásamt bflskúrsvegg sem er í ca.
þriggja metra fjarlægð frá stoðveggnum. Á þessum tíma var
íslenska portlandsementið íblandað 5% kísilryki sbr. bréf frá
Rb. dags. 9.12.1979, og Sementsyfirlit Rb. 1980. Steypan í
stoðveggnum var eins og önnur steypa í húsunum að öllu öðru
leyti en sementinu. Steinefni voru þau sömu, sigmál það sama
og verkið framkvæmt af sömu mönnum. Veggirnir virðast búa
við mjög svipuð veðurskilyrði, ef nokkur munur er, þá er
stoðveggurinn ögn meira til hlés. Eg tel að athuganir á báðum
ættu að vera sambærilegar, og hefi eg látið Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins gera rakamælingar nokkuð reglulega síð-
an.
Yfirlit yfir niðurstöður mælinganna fer hér á eftir:
Bflskúrsveggur var steyptur 3.6.1980
Stoðveggur var steyptur 2.6.1980
Dagsetning Staður Raki % Mismunur
16.6.1981 Bflskúrsveggur 5,3%
Stoðveggur 6,3% 18,8%
24.5.1983 Bflskúrsveggur 4,9%
4,5% =4,7%
» Stoðveggur 5,6% 19,1%
21.8.1985 Bflskúrsveggur 4,3%
4,1% =4,2%
Stoðveggur 5,4%
„ 5,3% =5,35% 27,3%
4.6.1987 Bflskúrsveggur 4,0%
>5 Ȓ 3,9% =3,95%
»» Stoðveggur 4,8%
4,4% =4,6% 16,4%
27.5 1988 Bflskúrsveggur 4,1%
»» „ 4,0% =4,05%
„ Stoðveggur 5,0%
>» 4,8% =4,9% 20,9%
Eins og sést af yfirlitinu var þann 24.5 bætt við mælistað í
bflskúrsvegg og þá nær stoðveggnum. Sá staður gaf alltaf ívið
lægri gildi en hinn fyrri. Þann 21.8.85 var svo einnig bætt við
mælistað í stoðveggnum og sama dag voru einnig teknar upp
mælingar á tveim öðrum stöðum í húsinu, kjallaravegg og
stoðvegg við kjallaratröppur. Á báðum þessum stöðum var
einnig um Robur A sement að ræða og steypan eins og áður
var lýst. Þær athuganir koma fram í eftirfarandi töflu:
Dagsetning Raki % af
mælingar Staður steypuþunga
Hér vakti það athygli mína hversu miklu meiri raki var í 21.8.1985
þeirri steypu sem var með íslenska sementinu, þó var sú „
steypa til muna eldri. í samráði við biskup Frehen hafði frítt 4.6.1987
standandi stoðveggur, utanhúss, verið steyptur úr íslenska „
sementinu svo hægt væri að fylgjast með honum í framtíðinni 27.5 1988
til samanburðar um alkalískemmdir, en eins og áður sagði
Kjallaraveggur 4,3%
Stoðveggur 11 4,4%
Kjallaraveggur 3,7%
Stoðveggur 11 4,4%
Kjallaraveggur 4.0%
Stoðveggur 11 4,2%
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG