Arkitektúr og skipulag - 01.12.1988, Blaðsíða 83
MYNDLIST
GULRÆTUR OG JARÐARBER
Daði Guðbjörnsson fæddist þann tólfta maí árið nítján-
hundruðfimmtíuogfjögur. Hann er þar af leiðandi
ekki ungur myndlistarmaður. Hann er yngri. Því er
nefnilega þannig farið í heimi listarinnar að fyrst eru menn
ungir en komast svo fljótlega í hóp yngri listamanna. Ein-
hverjum kann að finnast þetta renna stoðum undir þá kenn-
ingu að listamenn verði aldrei fullorðnir, og er þeim óskað til
hamingju með það. Myndlist Daða ætti að vera hinum sömu
gleðiefni; ást hans á línunni, litunum, formunum er engu lík
nema kannski aðdáun þeirra sem eru ennþá yngri á mögu-
leikum litrófsins. Honum er einnig tamt að fjalla um sjálfan
sig í myndunum; og þá er hann í hlutverki listamannsins sem
býr í veröld þar sem öllum mögulegum stefnum og tækjum og
hugmyndum og regnbogum og aðferðum og dýrum ægir sam-
an; allur heimurinn virðist vilja taka hann á löpp. Og viðbrögð
Daða eru að berjast ekki á móti heldur láta heillast og útkom-
an verður að ólíklegustu fjarstæður mætast á myndfletinum og
sættast.
Þar sem ég er nú búinn að fallbeygja nafn Daða í þrígang
langar mig að beita hann listfræðilegu bragði sem ég sá nýlega
í ítölsku tímariti, og byggist á að nafn listamannsins og orð-
myndir dregnar af því eru lögð til grundvallar krufningu á list
hans. I nafni de Koonings eru til dæmis tvö o sem eiga sér
samsvörun í brjóstum kvennanna sem hann málar, og hrifning
Francis Bacons á sviðnu og teygðu holdi útskýrir sig sjálf.
Daði líkist hins vegar grunsamlega orðinu Dada í öllum föll-
um eintölu nema nefnifalli, og í list hans er einmitt oft að
finna sama strákslega frumkraftinn og í bestu verkum dadaist-
anna; en ef við bætum inn í nafnið einu erri þá breytist það í
Daðri en Daði er þekktur fyrir hinar daðrandi konumyndir
sínar.
Það sést oft til Daða Guðbjörnssonar í Garðastrætinu, hann
er rauðhærður og skeggjaður og gengur með bleikan trefil.
Samkvæmt ævisögulegri greiningaraðferð ætti það að segja
ýmislegt um list hans, og ég er ekki frá því að það sé alveg
rétt. ■
Daði dáði dada daður . . .
Sjón
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG