Fréttablaðið - 31.03.2023, Síða 22
Við höldum ekki í
neinar sérstakar
hefðir um páska, annað
en að fá syni, tengda-
dætur og barnabörnin til
okkar á föstudaginn
langa. Þá býr hver og
einn til sína eigin pitsu
með því áleggi sem hann
kýs.
Ingimar Sigurðsson
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Í þættinum Matur og heimili
nýverið voru hjónin Ingimar
Sigurðsson og Svetlana Björg
Kostic, jafnan kölluð Ceca,
heimsótt í eldhúsið. Þau eru
annálaðir matgæðingar og
þykir gaman að matreiða og
bjóða í matarboð.
Þegar Ingimar og Ceca matreiða
er hugsað fyrir hverju smáatriði,
gæðum hráefnisins, matreiðslunni
og framsetningunni. Ceca er
fagurkeri fram í fingurgóma og ber
réttina svo fallega fram að gestirnir
byrja ávallt að borða fyrst með
augunum. Ingimar er iðinn við að
bjóða félögum sínum í matarupp-
lifanir og er óhræddur við að fara
ótroðnar slóðir og prófa nýja rétti
í matargerðinni. Þegar þau eru
saman í eldhúsinu gerast töfrarnir.
Ingimar er vátryggingaráðgjafi
og kirkjuvörður á Seltjarnarnesi,
fæddur á Blönduósi en hefur búið
á höfuðborgarsvæðinu síðan 1977,
lengst af á Seltjarnarnesi. Ceca er
launafulltrúi hjá Landspítalanum,
fædd í Júgóslavíu, bjó lengst af í
Króatíu en flutti til Íslands 1989
og hefur búið á Seltjarnarnesi
síðan 1998. Þau eru virk í sam-
félagi sínu og vita ekkert betra en
að búa á Nesinu. „Við eigum fjóra
drengi, tvo og tvo. Okkur finnst
mjög gaman að elda, bæði kjöt- og
fiskrétti og erum dugleg að bjóða
drengjunum og fjölskyldum þeirra
í mat.“
Dásamleg stórfjölskyldustund
Aðspurð segjast þau ekki halda
fast í sérstakar matarhefðir og hafa
meira gaman af því að prófa nýja
rétti. „Við höldum ekki í neinar sér-
stakar hefðir um páska, annað en
að fá syni, tengdadætur og barna-
börnin til okkar á föstudaginn
langa. Þá býr hver og einn til sína
eigin pitsu með því áleggi sem
hann kýs. Þetta er dásamleg stór-
fjölskyldustund,“ segir Ingimar.
Súkkulaðieggin freista hjónanna
ekki mikið. „Við erum ekki mikið
páskaeggjafólk en kaupum lítil
páskaegg fyrir krakkana fyrir
föstudaginn langa,“ segir Ceca og
brosir.
Í þættinum Matur og heimili
töfruðu þau fram tvo dýrindis
saltfiskrétti sem bornir voru fram
af lekkerheitum og samsetningin
hin frumlegasta. Þessir réttir eru
tilvaldir til að bera fram á föstu-
daginn langa en margir hafa að
hefð að borða þá fisk. En það á
þó ekki við Ingimar og Cecu. „Við
borðum ekki endilega saltfisk á
föstudaginn langa. Þessir réttir
eiga sér sögu í gegnum matarklúbb
sem ég setti á fót fyrir 30 árum.
Þá elda ég 2–3 saltfiskrétti fyrir
meðlimi, sem eru átta auk þess
sem einum heiðursgesti er boðið í
hvert sinn,“ segir Ingimar og bætir
við að ávallt séu nýjar uppskriftir
prófaðar í hver skipti. „Þeir fá aldr-
ei sama réttinn, við Ceca leggjum
okkar fram við að finna nýjar og
girnilegar útfærslur þar sem salt-
fiskurinn fær að njóta sín og það
hefur tekist hingað til.“
Hér deila Ingimar og Ceca upp-
skriftunum að saltfiskréttunum
undursamlegu með lesendum sem
eiga svo sannarlega eftir að hitta í
mark, bæði fyrir bragð og áferð.
Ofnbakaður saltfiskur
með grófri kartöflumús,
tomatillo og grænkáli
Undirbúningstími: 5 mínútur
Vinnslutími: 15 mínútur
Léttsaltaðir þorskhnakkar,
ca. 150 g á mann
4 litlir grænir tómatar (tomatillo)
Grænkál
Bökunarkartöflur eftir smekk og
Undursamlegir og öðruvísi saltfiskréttir
Ingimar og Ceca eru annálaðir matgæðingar sem kunna að njóta alla leið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þessi saltfiskréttur á sér fáa líka, saltfiskur í líkkjörssósu, toppaður með beikonbitum, hnetum,
möndlum og rúsínum. Þvílík bragðupplifun og einstaklega skemmtileg samsetning. Flamberað
beikon og saltfiskur lyfta matarupplifuninni upp á hæstu hæðir.
Ómótstæðilega girnilegur þessi saltfiskréttur sem er
borinn fram með grófri kartöflumús og stökku grænkáli.
fjölda
Dillkvistir
Salt
Olía
Hitið ofninn í 170°C. Stráið olíu og
salti yfir grænkálið og bakið í ofni
í um það bil 10 mínútur. Flysjið
utan af bökunarkartöflunum og
skerið í hæfilega bita. Sjóðið, hellið
vatni af og þurrkið. Setjið í pott
með smjöri, salti og pipar, hrærið
saman með sleif. Þetta á að vera
gróft. Hafið þorskinn í um það bil
150 g stykkjum. Bakið í ofni í um
það bil 10 mínútur við 180°C, eftir
þykkt stykkjanna. Takið brúnan
bökunarpappír í öskjum og snúið
upp á langhliðina, á móti hvorri
hlið. Skerið tomatillo í þunnar
sneiðar.
Framreiðsla
Setjið pappírinn á disk og hafið
vel opinn. Setjið kartöflurnar
á botninn, fiskinn þar ofan á,
skreytið með tomatillo, grænkáli
og dillkvistum.
Saltfiskur með líkjörssósu
Undirbúningstími: 10
Vinnslutími: 15 mínútur
Léttsaltaðir þorskhnakkar, 100 g
á mann
2 beikonsneiðar (þykkar)
1 staup af DOM Bénedictine líkjör
10 valhnetur
10 möndlur
10 heslihnetur
20 rúsínur
Hveiti
Olía
Veltið saltfiskinum upp úr hveiti.
Steikið í mikilli og vel heitri olíu,
þar til fiskurinn er orðinn gull-
brúnn.
Takið fiskinn af pönnunni og
setjið á disk. Skerið beikonið í litla
bita. Látið beikonið malla á pönn-
unni ásamt þurrkuðu ávöxtunum.
Gætið þess að hita ekki um of.
Hellið líkjörnum yfir, hitið
og kveikið í. Flamberið örstutt,
ávextirnir mega ekki brenna. Þá
verða þeir seigir og rúsínurnar
brenndar.
Getur verið fínt að láta rúsín-
urnar liggja í leginum í smá stund
og hella þeim yfir án þess að flam-
bera.
Setjið ávextina á diskinn með
fiskinum. n
4 kynningarblað A L LT 31. mars 2023 FÖSTUDAGUR