Fréttablaðið - 31.03.2023, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 31.03.2023, Blaðsíða 22
Við höldum ekki í neinar sérstakar hefðir um páska, annað en að fá syni, tengda- dætur og barnabörnin til okkar á föstudaginn langa. Þá býr hver og einn til sína eigin pitsu með því áleggi sem hann kýs. Ingimar Sigurðsson Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Í þættinum Matur og heimili nýverið voru hjónin Ingimar Sigurðsson og Svetlana Björg Kostic, jafnan kölluð Ceca, heimsótt í eldhúsið. Þau eru annálaðir matgæðingar og þykir gaman að matreiða og bjóða í matarboð. Þegar Ingimar og Ceca matreiða er hugsað fyrir hverju smáatriði, gæðum hráefnisins, matreiðslunni og framsetningunni. Ceca er fagurkeri fram í fingurgóma og ber réttina svo fallega fram að gestirnir byrja ávallt að borða fyrst með augunum. Ingimar er iðinn við að bjóða félögum sínum í matarupp- lifanir og er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir og prófa nýja rétti í matargerðinni. Þegar þau eru saman í eldhúsinu gerast töfrarnir. Ingimar er vátryggingaráðgjafi og kirkjuvörður á Seltjarnarnesi, fæddur á Blönduósi en hefur búið á höfuðborgarsvæðinu síðan 1977, lengst af á Seltjarnarnesi. Ceca er launafulltrúi hjá Landspítalanum, fædd í Júgóslavíu, bjó lengst af í Króatíu en flutti til Íslands 1989 og hefur búið á Seltjarnarnesi síðan 1998. Þau eru virk í sam- félagi sínu og vita ekkert betra en að búa á Nesinu. „Við eigum fjóra drengi, tvo og tvo. Okkur finnst mjög gaman að elda, bæði kjöt- og fiskrétti og erum dugleg að bjóða drengjunum og fjölskyldum þeirra í mat.“ Dásamleg stórfjölskyldustund Aðspurð segjast þau ekki halda fast í sérstakar matarhefðir og hafa meira gaman af því að prófa nýja rétti. „Við höldum ekki í neinar sér- stakar hefðir um páska, annað en að fá syni, tengdadætur og barna- börnin til okkar á föstudaginn langa. Þá býr hver og einn til sína eigin pitsu með því áleggi sem hann kýs. Þetta er dásamleg stór- fjölskyldustund,“ segir Ingimar. Súkkulaðieggin freista hjónanna ekki mikið. „Við erum ekki mikið páskaeggjafólk en kaupum lítil páskaegg fyrir krakkana fyrir föstudaginn langa,“ segir Ceca og brosir. Í þættinum Matur og heimili töfruðu þau fram tvo dýrindis saltfiskrétti sem bornir voru fram af lekkerheitum og samsetningin hin frumlegasta. Þessir réttir eru tilvaldir til að bera fram á föstu- daginn langa en margir hafa að hefð að borða þá fisk. En það á þó ekki við Ingimar og Cecu. „Við borðum ekki endilega saltfisk á föstudaginn langa. Þessir réttir eiga sér sögu í gegnum matarklúbb sem ég setti á fót fyrir 30 árum. Þá elda ég 2–3 saltfiskrétti fyrir meðlimi, sem eru átta auk þess sem einum heiðursgesti er boðið í hvert sinn,“ segir Ingimar og bætir við að ávallt séu nýjar uppskriftir prófaðar í hver skipti. „Þeir fá aldr- ei sama réttinn, við Ceca leggjum okkar fram við að finna nýjar og girnilegar útfærslur þar sem salt- fiskurinn fær að njóta sín og það hefur tekist hingað til.“ Hér deila Ingimar og Ceca upp- skriftunum að saltfiskréttunum undursamlegu með lesendum sem eiga svo sannarlega eftir að hitta í mark, bæði fyrir bragð og áferð. Ofnbakaður saltfiskur með grófri kartöflumús, tomatillo og grænkáli Undirbúningstími: 5 mínútur Vinnslutími: 15 mínútur Léttsaltaðir þorskhnakkar, ca. 150 g á mann 4 litlir grænir tómatar (tomatillo) Grænkál Bökunarkartöflur eftir smekk og Undursamlegir og öðruvísi saltfiskréttir Ingimar og Ceca eru annálaðir matgæðingar sem kunna að njóta alla leið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þessi saltfiskréttur á sér fáa líka, saltfiskur í líkkjörssósu, toppaður með beikonbitum, hnetum, möndlum og rúsínum. Þvílík bragðupplifun og einstaklega skemmtileg samsetning. Flamberað beikon og saltfiskur lyfta matarupplifuninni upp á hæstu hæðir. Ómótstæðilega girnilegur þessi saltfiskréttur sem er borinn fram með grófri kartöflumús og stökku grænkáli. fjölda Dillkvistir Salt Olía Hitið ofninn í 170°C. Stráið olíu og salti yfir grænkálið og bakið í ofni í um það bil 10 mínútur. Flysjið utan af bökunarkartöflunum og skerið í hæfilega bita. Sjóðið, hellið vatni af og þurrkið. Setjið í pott með smjöri, salti og pipar, hrærið saman með sleif. Þetta á að vera gróft. Hafið þorskinn í um það bil 150 g stykkjum. Bakið í ofni í um það bil 10 mínútur við 180°C, eftir þykkt stykkjanna. Takið brúnan bökunarpappír í öskjum og snúið upp á langhliðina, á móti hvorri hlið. Skerið tomatillo í þunnar sneiðar. Framreiðsla Setjið pappírinn á disk og hafið vel opinn. Setjið kartöflurnar á botninn, fiskinn þar ofan á, skreytið með tomatillo, grænkáli og dillkvistum. Saltfiskur með líkjörssósu Undirbúningstími: 10 Vinnslutími: 15 mínútur Léttsaltaðir þorskhnakkar, 100 g á mann 2 beikonsneiðar (þykkar) 1 staup af DOM Bénedictine líkjör 10 valhnetur 10 möndlur 10 heslihnetur 20 rúsínur Hveiti Olía Veltið saltfiskinum upp úr hveiti. Steikið í mikilli og vel heitri olíu, þar til fiskurinn er orðinn gull- brúnn. Takið fiskinn af pönnunni og setjið á disk. Skerið beikonið í litla bita. Látið beikonið malla á pönn- unni ásamt þurrkuðu ávöxtunum. Gætið þess að hita ekki um of. Hellið líkjörnum yfir, hitið og kveikið í. Flamberið örstutt, ávextirnir mega ekki brenna. Þá verða þeir seigir og rúsínurnar brenndar. Getur verið fínt að láta rúsín- urnar liggja í leginum í smá stund og hella þeim yfir án þess að flam- bera. Setjið ávextina á diskinn með fiskinum. n 4 kynningarblað A L LT 31. mars 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.