Fréttablaðið - 31.03.2023, Qupperneq 23
5. FH
n Lykilmaður: Björn
Daníel Sverrisson
n Þjálfari: Heimir
Guðjónsson
n Heimavöllur: Kaplakriki
n Íslandsmeistarar: 8 sinnum
Mikill meðbyr er með FH eftir
að Heimir Guðjónsson tók við
stjórnartaumum síðasta haust.
Eitt er öruggt, að festa fylgir
Heimi sem kann fræðin betur en
flestir. Sindri Kristinn Ólafsson
mun standa vaktina í markinu
og munar um minna, líklega
vantar FH-inga einn miðvörð til
að vera með sterkt ellefu manna
byrjunarlið.
Það gustaði um Fimleika-
félagið á síðustu leiktíð þegar
þrír þjálfarar stýrðu liðinu, liðið
þarf stöðugleika utan vallar svo
árangur fari að nást innan vallar.
FH er með sterkari hóp en á
síðustu leiktíð en liðið þarf að
byrja vel svo gamlir draugar frá
síðasta ári fari ekki að vakna.
Því skal haldið til haga að FH var
næstum því fallið úr deildinni á
síðasta ári.
4. KR
n Lykilmaður:
Kristján Flóki
Finnbogason
n Þjálfari: Rúnar Kristinsson
n Heimavöllur: KR-völlur
n Íslandsmeistarar: 27 sinnum
Það er ágætlega jákvætt andrúms-
loft yfir KR komandi inn í tíma-
bilið en nokkur kynslóðaskipti
hafa átt sér stað hjá KR í vetur.
Mikill meðbyr virðist vera með
nýjum aðstoðarþjálfara liðsins,
Ole Martin Nesselquist. Norski að-
stoðarmaður Rúnars Kristinssonar
hefur fengið mikla ábyrgð í vetur
og fengið lof fyrir starf sitt.
Jóhannes Kristinn Bjarnason er
mættur heim úr atvinnumennsku
en hann hefur mikla hæfileika.
KR-ingar þurfa á því að halda að
Kristján Flóki Finnbogason haldi
heilsu og verði á meðal bestu leik-
manna tímabilsins. Heilsan hefur
ekki staðið með honum síðustu ár
og KR-ingar hafa fundið fyrir því.
KR er með vel mannaðan hóp en
breiddin er ekki mikil og þurfa því
lykilmenn að haldast heilir heilsu
svo KR berjist um Evrópusæti.
Komnir
Simen Lillevik Kjellevold
Jakob Franz Pálsson (lán)
Jóhannes Kristinn Bjarnason
Luke Rae
Olav Öby
Farnir
Emil Ásmundsson
Hallur Hansson
Kjartan Henry Finnbogason
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Beitir Ólafsson
Pálmi Rafn Pálmason
Þorsteinn Már Ragnarsson
3. Víkingur
n Lykilmaður:
Nikolaj Hansen
n Þjálfari: Arnar
Gunnlaugsson
n Heimavöllur: Víkingsvöllur
n Íslandsmeistarar: 6 sinnum
Arnar Bergmann Gunnlaugsson
þjálfari Víkings þarf á nýjan leik
að finna ný púsl sem geta smollið
saman en kvarnast hefur úr liði
Víkings frá síðustu leiktíð. Meir
en margur heldur.
Kristall Máni Ingason var seldur
síðasta haust og Júlíus Magnús-
son fór í atvinnumennsku á
dögunum, segja má að um sé að
ræða tvo bestu leikmenn Víkings
síðustu ár. Báðir fóru til Noregs.
Kristall samdi við Rosenborg en
Júlíus fór til Fredrikstad.
Víkingur hefur í vetur verið
rólegt á markaðnum en Matthías
Vilhjálmsson kom til félagsins
frá FH og er búist við því að hann
verði í stóru hlutverki.
Nikolaj Hansen var mikið
meiddur á síðustu leiktíð en
hefur í vetur náð að halda heilsu
og virðist í góðu formi fyrir tíma-
bilið. Meiðsli Kyle McLagan á
dögunum komu á versta tíma og
leitar liðið nú að miðverði. Arnar
Gunnlaugsson þjálfari liðsins
hefur ekki farið í felur með það
að hann gæti þurft að breyta leik-
stíl liðsins til að ná þeim árangri
sem Víkingar vilja.
Komnir
Matthías Vilhjálmsson
Sveinn Gísli Þorkelsson
Farnir
Adam Ægir Pálsson
Júlíus Magnússon
2. Breiðablik
n Lykilmaður:
Damir Muminovic
n Þjálfari: Óskar
Hrafn Þorvaldsson
n Heimavöllur: Kópavogsvöllur
n Íslandsmeistarar: 2 sinnum
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru
til alls líklegir en að mati Frétta-
blaðsins verður það of stór biti
að kyngja að hafa misst Dag Dan
Þórhallsson og Ísak Snæ Þorvalds-
son sem voru tveir bestu leikmenn
Blika í fyrra.
Breiðablik hefur keypt til sín átta
nýja leikmenn í vetur og stærsti
hausverkur Óskars Hrafns þjálfara
liðsins verður að finna byrjunarlið-
ið og síðan að halda öllum góðum.
Ekkert lið hefur álíka breidd sem
gæti þó orðið styrkleiki ef vel tekst
að spila úr því.
Breiðablik hefur einu sinni áður
reynt að verja titil og var það ein
sorgarsaga árið 2011.
Komnir
Klæmint Olsen (lán)
Oliver Stefánsson
Patrik Johannesen
Alex Freyr Elísson
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Ágúst Eðvald Hlynsson
Ágúst Orri Þorsteinsson
Eyþór Aron Wöhler
Farnir
Pétur Theódór Árnáson (lán)
Sölvi Snær Guðbjargarson
Omar Sowe
Adam Örn Arnarson
Benedikt Warén
Dagur Dan Þórhallsson
Elfar Freyr Helgason
Ísak Snær Þorvaldsson
Mikkel Qvist
1. Valur
n Lykilmaður: Aron
Jóhannsson
n Þjálfari: Arnar Grétarsson
n Heimavöllur: Origo-völlurinn
n Íslandsmeistarar: 23 sinnum
Með Arnar Grétarsson í brúnni
telja spámenn Fréttablaðsins að
Valur verði Íslandsmeistari í sumar.
Í vetur hefur sést að Arnar hefur
múrað fyrir alla leka og Valur varla
fær á sig mark.
Ef Aron Jóhannsson nær
vopnum sínum er næsta víst að
sóknarleikur Vals verður í góðu lagi.
Andri Rúnar Bjarnason og Patrick
Pedersen eiga að sjá um að skora
mörkin fyrir Val en báðir hafa verið
meiddir í vetur. Valur hefur hins
vegar á að skipa mikilli breidd.
Miðsvæðið er eina spurningar-
merkið hjá Val en búist er við því
að Arnar Grétarsson styrki liðið
um einn eða tvo leikmenn áður en
félagaskiptaglugginn lokast.
Komnir
Kristinn Freyr Sigurðsson
Lúkas Logi Heimisson
Óliver Steinar Guðmundsson
Adam Ægir Pálsson
Elfar Freyr Helgason
Andri Rúnar Bjarnason
Hlynur Freyr Karlsson
Farnir
Guy Smit (lán)
Heiðar Ægisson
Jesper Juelsgaard
Lasse Petry
Andri Adolphsson
Arnór Smárason
Ágúst Eðvald Hlynsson
Rasmus Christiansen
Sebastian Hedlund
Sverrir Páll Hjaltested
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, er einn besti, ef ekki sá besti, leikmaður deildarinnar. FréttabLaðið/Ernir Rúnar Kristinsson og KR ætla sér alltaf titilinn.
KA verður
aðeins í sjöunda
sæti ef spáin
rætist. Þeir eru
komnir með
Hallgrím Jónas-
son í brúna og
ætlar hann sér
stærri hluti.Blikum tekst ekki að verja Íslandsmeistaratitlinn gangi spáin eftir.
Komnir
Dani Hatakka
Eetu Mömmö (lán)
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
Kjartan Henry Finnbogason
Kjartan Kári Halldórsson (lán)
Sindri Kristinn Ólafsson
Farnir
Atli Gunnar Guðmundsson
Baldur Logi Guðlaugsson
Guðmundur Kristjánsson
Gunnar Nielsen
Kristinn Freyr Sigurðsson
Matthías Vilhjálmsson
Fréttablaðið íþróttir 1131. mars 2023
FÖStUDAGUr