Fréttablaðið - 31.03.2023, Qupperneq 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
eða næsta
sölustað
inná
lotto.is
Þægilegt
í appinu
LEIKURINN OKKAR
bakþankar |
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
Því betur sem ég kynnist mönn-
unum, því vænna þykir mér um
hundinn minn. Friðrik II. konungur
Prússa virðist á þessum tímapunkti
nokkuð þreyttur á samferða-
mönnum sínum.
Mannkynssagan er skrifuð af
sigurvegurum. Fullyrðingin hefur
að einhverju leyti staðist tímans
tönn, enda festa þeir sem skrifa
söguna þar með heimsmynd sína
og gildi í sessi, hversu slæm sem þau
eru. Staðreyndirnar sem birtast í
sögunni verða sannleikurinn sem
heimsmynd okkar byggir á. Hugtök
eins og staðreyndir og sannleikur
eru líka, líkt og mannkynssagan,
hlaðin gildismati og það byggir á
samfélaginu sem við sprettum úr.
Heimskt er heimaalið barn. Máls-
hátturinn stenst ekki alveg nútíma-
kröfur þegar litið er til fordóma.
Það breytir því þó ekki að gildismat
þess sem kíkir aldrei út úr sínum
eigin litla bergmálshelli getur
orðið ansi heimóttarlegt. Þegar við
kynnumst menningu og skoðunum
sem eru ólíkar okkar er aftur á móti
hætta á því að sjóndeildarhringur-
inn víkki. Við gætum jafnvel upp-
götvað að eigin skoðanir eru ekki
heilagur sannleikur.
Albert Einstein hélt því fram að
allir væru snillingar. Einstein sagði
líka að ef við dæmdum fisk út frá
hæfileikum hans til að klifra upp
tré þá myndi fiskurinn, og allir
aðrir, halda að hann væri heimskur.
Ef við reynum að nota fjölbreyttari
mælistikur en þær sem henta okkur
þá gætum við komist að því að aðrir
hafa meira til málanna að leggja.
Útgáfustarfsemi handhafa sann-
leikans, sófaspekinga okkar tíma,
hefur vaxið fiskur um hrygg með
tilkomu samfélagsmiðla. Væntum-
þykja í garð hundsins míns hefur
aukist, í sama hlutfalli. n
Handan
sannleikans
Við erum
öll í þessu
saman
LEIKURINN OKKAR
POTTURINN STEFNIR Í
170 MILLJÓNIR!
GETRAUNIR.IS