AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Blaðsíða 39
Fra Rannsóknastofnun
byggíngarriðnaðarins
HÁKON OLAFSSON, FORSTJÓRI
COTT AR
rið 1998 var að mörgu leyti gott ár
hjá Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins. Velta stofnunarinnar
jókst annað árið í röð um 12 % úr
180 Mkr. í 202 Mkr. og tekjuaf-
gangur var rúmar 2 Mkr. Megin-
breyting frá fyrra ári tengist verkefnum, sem styrkt
eru af 4. rammaáætlun EB. Stofnunin hefur átt
frumkvæði að þremur umsóknum í CRAFT áætl-
un, en það er undiráætlun í iðnaðar- og efnis-
tækniáætluninni og sérstaklega sniðin fyrir LMF
(lítil og meðalstórfyrirtæki). Öll þessi verkefni hlutu
styrki (45-50 % af heildarkostnaði) og hefur Rb
verkefnisstjórn og er meginrannsóknaraðili í þess-
um þremur verkefnum. Eitt þeirra var í fullum
gangi allt árið, annað hófst í ágúst og það þriðja
hófst 1. des. s.l. og hefur lítil árhrif á árinu.
NÝTING NIÐURSTAONA
í hagnýtum rannsóknum er mikilvægt að
niðurstöður nýtist sem fyrst í þjóðfélaginu en endi
ekki sem skýrslur í skáp, sem ekki nýtast í raun
nema óbeint. Af þessu hafa menn oft áhyggjur.
Reynsla Rb er sú að all flest rannsóknaverkefnin
skila niðurstöðum, sem koma að fullum notum,
jafnvel áður en viðkomandi rannsóknum lýkur að
fullu. Þannig ná nefna að nú þegar hefur verið
stofnað hlutafélag, sem byggir á niðurstöðum eins
„Evrópuverkefnisins”, sem lýkur þó ekki fyrr en í
árslok 1999. Verulega hefur dregið úr sögun
sprungna við viðgerðir húsa. í staðinn nota menn
vatnsfælur og innþrýstiaðferð, sem nýlega var þró-
uð við Rb og er mun hagkvæmari. Niðurstöður
rannsókna á útveggjaklæðningum og viðhaldsþörf
íslenskra húsa hafa verið gefnar út í handhægum
ritum, sem þegar hafa fengið mikla dreifingu og
nýtast bæði aðilum byggingariðnaðarins, svo og
stjórnvöldum en árlegur viðhaldskostnaður er nú
þegar áætlaður 2 % af nýbyggingarverðmæti, eða
um 20 milljarðar, en þetta er í góðu samræmi við
upplýsingar um viðhaldskostnað frá öðrum Norð-
urlöndum. Þannig má lengi tíunda hagkvæmni
verkefna á hinum ýmsu sviðum, s.s. lagnasviði,
vegagerð, hljóðtækni o.s.frv., en þar sem fjár-
munamyndun þjóðfélagsins er langmest í bygg-
ingariðnaði, er sérlega mikilvægt að rannsóknir í
greininni nýtist vel.
CE-MERKINGAR BYCCINCAVARA
CE-merkingar á byggingavörum eru vart hafnar
þar sem viðeigandi samhæfðir Evrópustaðlar eru
37