AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Blaðsíða 62
æskilegt, en um leið er Ijóst hversu erfitt það er að
skrifa yfirlitssögu um byggðarþróunina á meðan
saga ýmissa grunngreina hefur ekki verið rituð.
Þannig kom loks fyrir síðustu jól bók Harðar
Ágústssonar „íslensk byggingararfleifð 1“ út, en
hún nær þó aðeins til ársins 1940 og hefði því lítið
nýst Eggerti við ritun bókarinnar.
Síðasti kafli bókarinnar fjallar síðan um
„Stjórnmál og stjórnsýslu" og lokar hann á ágætan
hátt ramma byggðarsögunnar, sem opnaður var
með fyrsta kaflanum „Borgarbylting“. Hér, eftir að
bókin hefur rakið þróunarsöguna gefst betra tæki-
færi til að meta þátt Reykjavíkur í þjóðlífsþróun-
inni. Borgin hafði á þessu tímabili frá 1940 til 1990
smám saman orðíð meiri miðstöð menntunar,
verslunar og stjórnmála, en rígurinn milli borgar og
landsbyggðar er ennþá allmikill, ekki síst vegna
þess að landsbyggðin hefur áfram átt mjög undir
högg að sækja vegna „fólksflóttans" til höfuðborg-
arsvæðisins. Er það þjóðarógæfa að ekki tókst að
koma á stjórnun þessarar þróunar í tæka tíð. En
höfuðborgarsvæðið er á hinn bóginn komið upp í
þá stærð að það er orðið það sterka bakland sem
mörg nútímastarfsemi þarfnast.
Eins og eðlilegt er, er yfirlitsverk um sögu borgar
eins konar mósaikmynd af borginni, sett saman af
hinu ólíkasta efni. Kostir þess að raða slíkri mynd
saman úr myndbrotum er að út kemur heildar-
mynd og heildartilfinning sem aldrei fæst með að
skoða einstaka þætti borgarlífsins. Ókosturinn við
slíka mósaikbók er hins vegar sá að erfitt er að
velja þræði einstakra söguþátta, eins og t.d. skipu-
lags- og byggðarsögunnar. En það er hægt ef
unnið er eftir lestrarskipulagi eins og því sem hér
hefur verið gerð tillaga um.
Eggert Þór hefur hér skrifað bók sem er mikil-
væg öllum þeim sem starfa við skipulags- bygg-
ingar- og byggðamál á íslandi. Aðeins í Ijósi sög-
unnar verður Ijóst hverjar forsendur þróunarinnar
hafa verið. Sagan kennir okkur einnig hvað hefur
reynst vel og hvar menn hafa farið villir vegar.
Skortur á skilningi á íslenskum aðstæðum ollu t.d.
því að Danirnir sem skipulögðu borgina á 7da
áratugnum settu íbúðarbyggðina upp á heiðar, en
tóku strandsvæðin fögru og veðursælu undir hafnir
og óþrifalegan iðnað. Vonandi verður eitthvað sem
ritað hefur verið um reykvíksk skipulagsmál þýtt
fyrir Danina sem nú eru leiðandi í gerð nýs skipu-
lags fyrir höfuðborgarsvæðið. Með því móti má án
efa koma í veg fyrir mörg mistökin. ■
1969-1999
30 ára reynsla
Einangrunargler
Q
GLERVERKSMIÐJAN
Samx/ehk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
* 487 5888 • Fax 487 5907
Bretta-
rekkar
MECALUX
Góðir rekkar tryggja hámarksnýtingu á
dýrmætu plássi. Bjóðum allskonar
lager- og hillukerfi. Jafnt rúllurekka sem
innkeyrslurekka, jafnvel færanlega rekka.
Mjög gott verð!
Lyftitæki og trillur færðu einnig hjá okkur.
Lagerlausnir eru okkar sérgrein
MECALUX
mi
- gæði fyrir gott verð
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Siraumvr shf
SUNDABORQ 1 • SlMI 568-3300