AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1999, Side 49
kðalstöðvar
indra í
iundahöfn.
unTTtn rmn ■ i ■ mT
IWhjltlhtlÍltlilltilil r^Yiðbygging
Iverfisgötu-
Endurbætur á húsi frá 1923
við Bergstaðastræti.
Auglýsingastofan Auk, innrétting
Borgarkringlu.
Samkeppni sundlaug Laugardal.
Verslunarmiðstöð,
Hafnarfirði.
Hótelbygging
í Portúgal.
Verslunarhúsnæði
Akranesi, við-
bygging.
gagnsœjí, bírta,afst
hefðbundnar og oft staðnaðar tilvísanir og klafa
fortíðarinnar og staðnaða eftirstríðsárahyggju.
Arkitektúr er að mati Hugsmíðar eingöngu list hins
efnislega og efnisgerðra hugmynda um rými og háð
þeim takmörkum sem því fylgja. Innan um venjuleg-
ar kröfur um áætlað notagildi, áætlaða legu í land-
slagi, staðsetningu og byggingartækni, þarf arkitek-
tinn að finna leiðir til að bygging tjái grunnútfærstlu
sína og tengsl við sögu, menningu og hugmynda-
heim og örvi skynjun ein-staklingsins gegnum
tungumál ólíkrar efnisnotkunar og áferða. Byggingar
og innréttingar eiga að vera gerðar fyrst og fremst
fyrir íhugun sjónar og hugsunar en einnig engu að
síður fyrir öll önnur þekkt og óþekkt skilningarvit.
Þetta þýðir ákveðið jafnvægi milli einstakra hluta,
jafnvægi milli reglu og óreglu, tæra aðferðarfræði,
nákvæmni og tengingu við stærri heildir í gerð
smáatriða, heilindi í efnistotkun, næman skilning á
hreyfingum mannskepnunnar og virðingu fyrir raun-
verulegum og skynjuðum stærðarhlutföllum hennar.
Frá sjónarhóli hönnuða Hugsmíðar er arkitektúr í
sinni eigin mynd endanlegt hlutverk arkitektúrsins,
hreyfanleiki, svigrúm og þanþol rýmisins er þau
mörk sem ber að reyna á og Ijóðrænar samflettur
rýmis og birtu eru endanleg óskastaða allra mann-
virkja. Mýkt, sveigjanleiki, flæði, útsjónarsemi og
nýbreytni, gagnsæi og afstæði auk kraftmikillar
upplausnar stífra forma, reglna, snauðrar ofskipu-
lagningar og tæknihyggju skapa einnig kjörað-
stæður fyrir ánægjulega upplifun og heilnæma tján-
ingu frelsis í hinu byggða rými. Teiknistofan Hug-
smíð er rekin af Guðjóni Bjarnasyni, arkitekt og
myndlistarmanni og Gulleik Lövskar innanhússark-
itktekt. ■
Verslunarmiðstöð
á Laugavegi.