Nesfréttir - 01.12.2022, Page 6

Nesfréttir - 01.12.2022, Page 6
6 Nesfrétt ir Gylfaflöt, Reykjavík Kleppsvegi, Reykjavík Suðurströnd, Seltjarnarnesi Reykjavíkurvegi, Hafnarfirði Umbúðagámur fyrir pappa og plastumbúðir og jólapappír á Orkunni 26. - 30. desember. NÝTUM ORKUNA TIL AÐ FLOKKA Það ríkti með eindæmum mikil spenna og gleði á jólahátíð bókasafnsins nýverið. Hátíðin hófst með Jólatónstöfum þegar að krakkarnir í Skólalúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarnarness spiluðu fyrir fullu húsi undir stjórn Kára Einarsson skólastjóra. Unga tónlistarfólkið stóð sig afburðavel og ljóst að þau eiga framtíðina fyrir sér í tónlist. Kári og Sverrir Hjaltason, básúnuleikari og eldri nemandi í tónlistarskólanum, tóku svo við og léku hvert jólalagið á fætur öðru og komu gestum á öllum aldri í mikla jólastemningu. Toppurinn á jólahátíðinni var svo þegar að tveir hressir jólasveinar birtust á bókasafninu til að hitta börnin. Hátíðin breyttist snarlega í sannkallað jólaball þegar að jólasveinarnir, börn og foreldrar dönsuðu saman í kringum fallega bókajólatréð undir tónlistarflutningi Sverris og Kára. Jólasveinarnir skemmtu sér vel eins og allir, sungu og dönsuðu með börnunum, gáfu mandarínur og fengu að vera með nokkrum á myndum. Síðast en ekki síst tóku þeir á móti óskum um hvað þeir ættu helst að setja í skóinn enda styttist óðfluga að skór af öllum stærðum og gerðum fari út í gluggana á Seltjarnarnesi. Jólahátíðin var svo sannarlega velheppnuð og ekki annað að sjá en að bæði stórir sem smáir hefðu verið í miklu jólaskapi og notið alls jólafjörsins sem boðið var upp á á Bókasafni Seltjarnarness. Mikil stemning á skemmtilegri jólahátíð bókasafnsins

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.