Nesfréttir - 01.12.2022, Síða 6
6 Nesfrétt ir
Gylfaflöt, Reykjavík
Kleppsvegi, Reykjavík
Suðurströnd, Seltjarnarnesi
Reykjavíkurvegi, Hafnarfirði
Umbúðagámur fyrir pappa og plastumbúðir
og jólapappír á Orkunni 26. - 30. desember.
NÝTUM ORKUNA
TIL AÐ FLOKKA
Það ríkti með eindæmum mikil spenna
og gleði á jólahátíð bókasafnsins nýverið.
Hátíðin hófst með Jólatónstöfum þegar að
krakkarnir í Skólalúðrasveit Tónlistarskóla
Seltjarnarnarness spiluðu fyrir fullu húsi
undir stjórn Kára Einarsson skólastjóra. Unga
tónlistarfólkið stóð sig afburðavel og ljóst að
þau eiga framtíðina fyrir sér í tónlist. Kári
og Sverrir Hjaltason, básúnuleikari og eldri
nemandi í tónlistarskólanum, tóku svo við
og léku hvert jólalagið á fætur öðru og komu
gestum á öllum aldri í mikla jólastemningu.
Toppurinn á jólahátíðinni var svo þegar að
tveir hressir jólasveinar birtust á bókasafninu
til að hitta börnin. Hátíðin breyttist snarlega í
sannkallað jólaball þegar að jólasveinarnir, börn
og foreldrar dönsuðu saman í kringum fallega
bókajólatréð undir tónlistarflutningi Sverris og
Kára. Jólasveinarnir skemmtu sér vel eins og
allir, sungu og dönsuðu með börnunum, gáfu
mandarínur og fengu að vera með nokkrum
á myndum. Síðast en ekki síst tóku þeir á móti
óskum um hvað þeir ættu helst að setja í skóinn
enda styttist óðfluga að skór af öllum stærðum og
gerðum fari út í gluggana á Seltjarnarnesi.
Jólahátíðin var svo sannarlega velheppnuð
og ekki annað að sjá en að bæði stórir sem
smáir hefðu verið í miklu jólaskapi og
notið alls jólafjörsins sem boðið var upp á
á Bókasafni Seltjarnarness.
Mikil stemning á skemmtilegri
jólahátíð bókasafnsins