Nesfréttir - 01.12.2022, Page 11
Nesfrétt ir 11
heima á Unnarbraut 20 og hann á
Unnarbraut 14. Hann starfaði þá
sem yfirverkstjóri hjá Ísbirninum.
Hann tók okkur litlu strákana í vinnu.
Ég var ellefu ára þegar ég byrjaði að
vinna hjá honum. Vinnan fólst í því
að taka þorska upp með krók og setja
þá í bala. Svo tóku stærri menn en
við þeim og gerðu að eins og það var
kallað. Fólk skrapp heim í hádeginu.
Mömmur okkar litlu strákanna voru
heima og trúlega flestar eiginkonur
hinna eldri. Þetta var áður en
almenn útivinna eiginkvenna hófst.
Ég man að Guðmundur leyfði okkur
stundum að sitja í bílnum hjá sér
þegar við fórum heim í hádeginu.
Þarna voru líka fyrstu aurarnir sem
maður fékk í vasann. Að fá peninga
í umslagi var nýtt fyrir okkur litlu
strákana. Þarna voru fyrstu skrefin
lögð. Þetta gerði okkur ekkert annað
en gott. Maður er þakklátur þessum
ágætu mönnum að gefa litla fólkinu
gaum og tækifæri og leyfa okkur að
vera samferða.“
Fermdur í Neskirkju
„Ég var fermdur í Neskirkju. Þá
var ekki búið að byggja kirkju á
Seltjarnarnesi. Heitið Neskirkja
var þá komið í Vesturbærinn í
Reykjavík þótt að ætti betur heim
á Seltjarnarnesi. Ef til hefur það
orðið óafvitandi. Menn hafa trúlega
ekki gert ráð fyrir að Seltjarnes
yrði sjálfstætt prestakall og myndi
eignast sína eigin kirkju. Þá voru
séra Frank M. Halldórsson og Jón
Thorarensen prestar við unga kirkju
í Vesturbænum.“
Harðviðarval og
Egill Árnason
Svo fórstu af Nesinu. „Já, ég fór af
Nesinu um tvítugt þegar ég var komin
með heimili við höfðum eignast
okkar fyrstu íbúð. En það hafði
myndast tenging við Seltjarnarnesið
sem var og er gríðarlega sterk. Ég
held að hún hafi orðið til hjá flestum
eða öllum sem voru að alast þar upp
á þessum árum. Aðstæðurnar voru
góðar. Þarna mynduðust tengsl við
æskuvinina sem hafa haldist alveg
til dagsins í dag.“ Skólagöngunni á
Nesinu lauk með grunnskólanum.
Hvert lá leiðin þá. „Þaðan lá leiðin
í Lindagötuskólann. Ég vissi ekki
alveg hvað ég vildi eins og gerist
stundum á þessum árum. Svo fór
ég í Verslunarskólann. Ég lauk
verslunarprófi 1974. Strax eftir að ég
lauk prófi fór ég að vinna með föður
mínum Gottskálk Þ. Eggertssyni
sem þá rak fyrirtæki sem starfaði við
innflutning á timbri ásamt öðrum
manni. Fjórum árum síðar 1978
stofnuðum við feðgarnir fyrirtækið
Harðviðarval. Okkur gekk strax vel
og fyrirtækið óx og dafnaði og þar
vann ég með föður mínum í 30 ár.
Í hruninu 2008 festum ég og mín
fjölskylda kaup á grónu fyrirtæki sem
heitir Egill Árnason. Faðir minn var
þá kominn á aldur eins og sagt er og
hættur að vinna. Ég hef verið að reka
þessi fyrirtæki með fjölskyldunni
síðan. Ég á tvo syni og eina dóttur
og þau eru öll að vinna með okkur í
þessum fyrirtækjum. Egill Árnason
var stofnað árið 1934 af manni með
sama nafni. Mér hefur verið sagt að
þar hafi farið góður maður.
Saga að baki starfi mínu
fyrir Dómkirkjuna
Einar hefur sinnt starfi fyrir
Dómkirkjuna um árabil. Hvernig
kom það til. Hann segir sögu að baki
því. „Föðuramma mín Ragnhildur
Gottskálksdóttir í Tjarnargötunni
var lækningamiðill. Hún hjálpaði
mörgum með sínum krafti. Mér er
minnisstætt varðandi hana að á
heimili hennar var stríður straumur
af fólki. Síminn stoppaði stundum
ekki. Eggert Ólafsson afi minn
starfaði sem lýsismatsmaður. Var
eini konunglegi lýsismatsmaðurinn
hér á landi. Hann hafi ærinn
starfa en tók líka að sér að aðstoða
ömmu. Hann svaraði í símann og
tók niður skilaboð og beðnir um
fyrirbænir frá allskonar fólki. Hann
áttaði sig á hvað þetta starf hennar
var mörgum mikilvægt. Þetta
mótaði vissulega viðhorf mín til
trúarinnar. En lífið heldur áfram
og árið 2005 fer ég að leggja komur
mínar í Dómkirkjuna. Ég hef verið í
sóknarnefnd Dómkirkjunnar síðan
2006. Lengst hef ég starfað með
Marinó Þorsteinssyni vini mínum
í sóknarnefnd sem var búinn að
vera formaður hátt í tvo áratugi. Við
Marinó höfum átt mikið og farsælt
samstarf. Mér finnst hafa verið mjög
gefandi að hafa fengið tækifæri til að
vinna með öllu því góða fólki sem
þar hefur verið við störf. Ágætlega
hefur farið á með fólki og okkur hefur
tekist að láta það jákvæða og góða
vera í fyrirrúmi. Láta kærleikann
njóta sín. Ég tók við sem formaður í
september á þessu ári eftir að hafa
verið varaformaður í nokkuð mörg
ár.“ Við höfum setið í Sigríðarstofu
í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar
sem er í Iðnaðarmannahúsinu við
Lækjargötu. Fast á Tjarnar bakkanum.
Hugur Einars hvarflar aftur til
Seltjarnarness. „Þar lagði maður
grunnin að lífi sínu. Ég lít á það sem
tækifæri að hafa alist þar upp.“
Gjöf sem
hittir alltaf
í mark
Gjafakort
Íslandsbanka