FLE blaðið - 01.01.2019, Page 8

FLE blaðið - 01.01.2019, Page 8
8 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 um fjórðu iðnbyltinguna með mjög svo myndrænum og áhuga- verðum hætti. Heildarmætingin á þær fjórar ráðstefnur sem félagið stendur vanalega fyrir var nánast sú sama og árið áður eða um 630 gestir. Að vanda voru mörg áhugaverð og fræðandi efni tekin til meðferðar sem ekki er ástæða til að telja upp hér og nú, en ef ég ætti að nefna eitt eða tvö atriði þá var vinnustofan um Erfðamál á síðustu Haustráðstefnu mjög vinsæl og einnig var erindi um „Smart Government“ eða snjallstjórnsýslu flutt á Skattadeginum mjög áhugavert. Fjölmennasti atburðurinn á liðnu starfsári var Skattadagurinn þar sem mættu um 190 manns til að hlýða á boðskapinn og má gera ráð fyrir að nærvera nýs Fjármálaráðherra og ekki síst erindi Ríkisskattstjóra sem reyndar er í dag fyrrverandi hafi haft sitt að segja um þátttöku. Gleðistund FLE var haldin í fimmta sinn haustið 2018. Fyrirkomulag þetta í upphafi starfsárs félagsins hefur mælst vel fyrir þar sem félagsmenn hafa gert sér glaðan dag með léttum veitingum í boði félagsins. Ungliðanefnd félagsins sem sett var á laggirnar af þessu tilefni á sínum tíma á miklar þakkir og hrós skilið fyrir alla sína vinnu og skipulag í kringum Gleðistundina. NEFNDARSTÖRF Að venju eru fastanefndir félagsins mikilvægur hlekkur í starf- seminni og bera oft hitann og þungann af ákveðnum málefn- um. Fyrir utan hefðbundin störf Reikningsskilanefndarinnar þá átti nefndin samtöl og fundi með Reikningsskilaráði sem tók til starfa á síðast liðnu ári eftir að hafa legið í dvala um árabil. Samkvæmt lögum um ársreikninga ber ráðinu að eiga sam- ráð við félagið um þau ýmsu mál er lúta að reikningsskilum og hafa verið lagðar línur í þeim efnum. Í því sambandi má nefna að nefndin tók upp við Reikningsskilaráð áhersluatriði eftirlits Ársreikningaskrár og þær athugasemdir sem félagsmenn höfðu við þau. Óskað var eftir því að ráðið fylgdi þeim atrið- um eftir og þeirri skoðun komið á framfæri að í framtíðinni ætti Reikningsskilaráð að gera sig meira gildandi og koma á framfæri sinni skoðun á hinum ýmsu álitamálum reikningsskila frekar en að túlkun Ársreikningaskrár réði ferðinni. Störf Endurskoðunarnefndarinnar voru með hefðbundnum hætti á liðnu starfsári. Einna helst má þó nefna að nefndin fylgdist með framvindu mála við innleiðingu Evróputilskipunarinnar hér á landi enda var leitast við að upplýsa nefndarmenn eftir því sem málin tóku á sig mynd hjá vinnuhóp ráðuneytisins. Fyrir utan hefðbundin störf Skattanefndarinnar þá má segja að frestir lögaðila og áherslubreytingar Ríkisskattstjóra í þeim efnum hafi tekið mestan tíma nefndarinnar. Fundað var með full- trúum Ríkisskattstjóra og þeim gerð grein fyrir að það væri farið að fjúka í flest skjól hvað varðar verulega skerðingu á skilafresti lögaðila. Gera má ráð fyrir að skilafrestir verði eitt aðalmálið á borði nefndarinnar á komandi starfsári sem og stjórnarinnar. Störf Gæðanefndar hafa verið í föstum skorðum undan farin ár og hafa aðallega tengst yfirferð Gæðaeftirlitsskýrslna, en lögbundið gæðaeftirlit með störfum okkar er undir yfirstjórn Endurskoðendaráðs. Í ljósi fyrirliggjandi frumvarps má aftur á móti gera ráð fyrir að eftirlitshlutverki nefndarinnar ljúki á árinu 2019. Eins og komið hefur fram áður og jafnframt er getið í Ársskýrslu FLE starfsárið 2017-2018 þá hefur Menntunarnefndin mótað sér ákveðna stefnu sem markast af þremur megin áherslum: skólaumhverfinu; löggildingarferlinu og endurmenntun félags- manna. Í því samhengi má nefna að nefndin átti fund með forsvarsmönnum Háskólans í Reykjavík vegna fyrirhugaðs meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun. Áfram verður unnið út frá þessum þremur megin áherslum og í þeim efnum verður m.a. horft til þeirra breytinga sem væntanlegar eru í nýjum lögum um störf endurskoðenda. Endurskoðunardagur.

x

FLE blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.