FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 33

FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 33
33FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019 Radisson Blu Royal Hotel, Brussels upp úr hádeginu þá höfðu þeir það sem eftir var dagsins til að kynna sér þær dásemdir sem Brussel borg hefur upp á bjóða líka þar sem hótelið var staðsett algjörlega í miðju borginnar í stuttu göngufæri frá ráð- hústorginu Grand Place. Belgía og þar með Brussel hefur líka svo margt upp á að bjóða. Það virðist vera þannig með Belgana að ef þeir taka sér eitt- hvað fyrir hendur þá gera þeir það vel. Þar er hægt að taka nokkur dæmi um hluti sem þeir hafa náð topp árangri í eins og súkkulaðigerð, bjórbruggun, vöfflugerð, teiknimyndagerð og svo rífast þeir við Frakka um það hvort franskar kartöflur séu ekki í raun belgískar. Belgar hafa líka lagt sitt af mörkum til tónlistarinnar og má þar fremstan nefna Jacques Brel sem söng og samdi m.a. lögin Ne me quitte pas (If you go away) og Le Moribond (Seasons in the Sun). Þannig að öruggt var að hægt var að nota hin frjálsa tíma til að kynna sér mat og menn- ingu í fremstu röð. En svo var líka bara hægt að fara á Delerium Café þar sem boðið er upp á 2.004 mismunandi bjóra skv. Guinness World Records miðað við janúar 2004 og eyða frjálsa tímanum þar og mun hafa legið fyrir mörgum félagsmönnum, mökum og gestum þeirra að a.m.k að ljúka deginum á Delerium Café. Á föstudagsmorgninum þann 28. September 2019 var boðað til hinna svokölluðu borgarleika. Borgarleikarnir byrjuðu þannig að þátttakendum var skipt í ca. 6 manna hópa sem voru vís- indalega valdir af starfsmönnum FLE þannig að í hópnum væru helst ekki saman vinnufélagar eða makar og gestir sem þekkt- ust. Hver hópur fékk í hendurnar spjaldtölvu sem þjónaði hópn- um sem vegvísir og jafnframt sem spurninga-, mynda- og myndbandsvél auk þess hægt var að teikna í henni myndir ef þannig stóð á. Leikurinn fólst í því að finna með aðstoð spjaldtölvunnar þekkt kennileiti eða staði í miðborg Brussel, svara þar spurningum um staðinn eða kennileitið og taka mynd eða myndband þar sem hópmeðlimir þurftu að sýna fram á listræna hæfileika. Þetta var jafnframt keppni þar sem reiknað var til stiga rétt svör við spurningum sem hægt var að velja misþungar og þar með fá fleiri stig og að auki var að störfum dómnefnd sem gaf aukastig fyrir listræna frammistöðu. Fyrirfram virkaði þetta svolítið ruglingslegt en þegar upp var staðið þá var þetta virki- lega vel heppnað, skemmtilegt og fræðandi. Greinarhöfundur skemmti sér konunglega við að leysa margs konar þrautir með fólki sem hann hafði jafnvel aldrei talað við áður en voru á þessu augnabliki hans bestu vinir og samherjar. Borgarleikarnir innihéldu líka stopp hvar annars staðar heldur en á Delerium Café þar sem boðið var upp á bjórsmökkun. Þegar spjaldtölvum var skilað á Grand Place upp úr hádeginu þá voru margir endurskoðendur vongóðir um að þeirra hópur

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.