FLE blaðið - 01.01.2019, Blaðsíða 34
34 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
hefði unnið keppnina vegna þess að þeir höfðu svarað svo
mörgu réttu og spjaldtölvan sýndi að þeir voru með hærra
stigaskör en næsti hópur. En þá hugsuðu þeir of mikið eins og
endurskoðendur og tóku ekki tillit til aukastigana sem fékkst
fyrir listræna túlkun og hæfileika. Slíkri túlkun og hæfileikum
var hægt að koma á framfæri af mikilli kúnst sérstaklega þegar
tvo kennileitin sem hægt var að leika sér í kringum voru annars
vegar pissandi stúlka og hins vegar pissandi drengur. Enda
kom það í ljós að þegar úrslitin voru tilkynnt á lokakvöldinu þá
höfðu nördarnir tapað fyrir listrænu blómunum í hópi endur-
skoðanda og gesta þeirra.
Eftir að borgarleikunum lauk upp úr hádeginu var aftur frjáls
tími og formleg dagskrá hófst ekki aftur fyrr en morguninn
eftir. Restin af deginum nýttu ferðalangarnir sér til að kynna
sér betur mat og menningu í fremstu röð auk þess sem hægt
var að gera góð kaup í verslunum miðborgarinnar, en svo var
líka hægt að fara bara aftur á Delerium Café. Um kvöldið vildi
svo skemmtilega til að margir af endurskoðendunum og gest-
um þeirra fóru á sama veitingarstaðinn Belga Queen sem var
steinsnar frá hótelinu meira að segja í sömu götunni. Húsnæði
veitingastaðarins hýsti áður rótgróin banka og var það því
skemmtilegt upplifun að drekka fordrykkinn í bankahvelf-
ingunni í kjallaranum og má segja að hann hafi verið drukkinn í
öruggu umhverfi. Það var kannski ekki tilviljun að þessi
veitingastaður hafi orðið fyrir valinu hjá svona mörgum þetta
kvöldið vegna þess að sögn framkvæmdastjóra FLE þá fer
hann alltaf með nýja formenn félagsins út að borða á Belga
Queen þegar þeir eru saman í embættisferðum í Brussel.
Morguninn eftir laugardaginn 29. september 2018 vöknuðu
endurskoðendur hressir til að fara á ráðstefnu sem haldinn var
á hótelinu og fjallaði að mestu á einhvern hátt um tengsl
Íslands við Evrópu og Evrópusambandið á sviði endurskoðunar
og reikningshalds og um það að geta lesendur kynnt sér betur
á heimasíðu FLE þar sem hægt er að finna glærur fyrirlesar-
anna á ráðstefnunni.
Eftir hádegismat var síðan fyrirlestur opinn öllum bæði endur-
skoðendum og gestum þeirra þar sem fyrirlesarinn Nigel
Barlow fjallaði um á eftirminnilegan hátt um skapandi hugsun,
nýsköpun og mannlega þáttinn þegar stafræn framtíð bankar
með þunga á dyrnar. Það sem stóð upp úr hjá honum var það
hvernig hann sannaði einn einu sinni fyrir áheyrendum að við
dæmum fólk fyrst og fremst af útlitinu og klæðaburði og eru
búin að mynda okkur fullmótaða skoðun á viðkomandi án þess
að þekkja nokkuð til persónunnar. Með öðrum orðum þá leit
Nigel þannig út og klæddi sig þannig að flestir bjuggust við að
fyrirlesturinn yrði langur og leiðinlegur þegar hann var í raun
mjög fræðandi, skemmtilegur og fljótur að líða.