FLE blaðið - 01.01.2019, Page 22
22 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2019
TURNARNIR TVEIR
Ef þú værir frægur, fyrir hvað myndir þú vilja vera frægur?
Ég myndi ekki vilja vera frægur og þótt einstaka endurskoðandi viti hver
ég er er það ekki frægð. Raunar hef ég mestan áhuga á að vera bara
heima hjá mér.
Hver sér almennt um að elda á þínu heimili?
Það er verkstjórinn á heimilinu, eiginkonan, en ég fæ að sjá um að upp-
þvottavélin sé með verkefni.
Hvernig slakar þú á?
Stunda útivist, fer oft í göngutúra og svo þetta hefðbundna, lestur bóka
og horfa á kvikmyndir og vera í félagsskap fjölskyldu og vina.
Rauðvín eða bjór?
Hvorugt.
Besti skyndibitinn?
Pizza
Fallegasta kona/karl fyrir utan maka?
Ef við horfum á innri fegurð myndi móðir Theresa verða fyrir valinu nú
eða bara Jesús Kristur en ef þú ert að tala um ytri fegurð þá var Marilyn
Monroe mjög aðlaðandi á sínum tíma.
Hver er uppáhalds endurskoðunarskrifstofan þín?
Á síðustu árum hef ég verið ágætlega kunnugur formönnum FLE og
framkvæmdastjóra félagsins síðustu ár. Þetta fólk hefur komið af
ýmsum stofum og er upp til hópa fagfólk, þannig að ég geri ekki upp á
milli einstakra stofa.
Hvort myndirðu vilja vera 50 cm hærri eða lægri?
Ég hef bara aldrei velt þessu fyrir mér og hvorugur kosturinn er
spennandi.
Við hvað ertu hræddur?
Þegar ég sé slæm reikningsskil setur að mér hroll. Ætli það nálgist ekki
svarið.
Hvers gætir þú ekki lifað án?
Vatns, matar, andlegrar næringar og fjölskyldunnar.
Hverju myndirðu vilja breyta í heiminum?
Er ekki hefðbundið svar að auka frið milli þjóða? Annars held ég að ef
baráttan gegn skattaundanskotum skilaði árangri myndi fjárhagur
margra þjóða breytast.
Árið 2018 var ár breytinga, við endurskoðendur fengum
ekki einn, heldur tvo turna inn í líf okkar. Magnús Mar
Vignisson og Sara Arnbjörnsdóttir töku hús á köppunum
og grennsluðust fyrir um þeirra innri mann
Hver er hann fyrir utan opinbert starfsheiti?
Nafn: Skúli Eggert Þórðarson
Aldur: 65 ára
Hjúskaparstaða: Kvæntur
Börn: 3 synir sem eru uppkomnir og eru allir raf-
magns- og tölvuverkfræðingar.
Starf: Yfirmaður Ríkisendurskoðunar frá 1. maí
2018. Hlutverk mitt er fyrst og fremst að hafa eftirlit
með fjármunum ríkisins, endurskoða ríkisreikninga
og beita úrræðum til að auka skilvirkni svo sem með
stjórnsýsluendurskoðun. Ríkis endur skoðandi er
annar tveggja embættismanna sem skilgreindir eru
sem trúnaðarmenn Alþingis. Þeir eru kosnir af
þinginu.
Fyrri störf: Ríkisskattstjóri árin 2007-2018, skatt-
rannsóknarstjóri, 1993-2006, vararíkisskattstjóri
1990-1993. Þar áður ýmis störf innan skattkerfisins,
rekstrarstjórn, starfsmannahald, umsjón með tölvu-
kerfum o.fl.
Manstu eftir konunni sem þú kysstir fyrst?
Já, mig rámar í það. Ég held að ég hafi verið 4 ára og
hún hafi verið 5 ára. Í minningunni var þetta eitthvað
sem var óþægilegt.
Hvað fékkstu þér í morgunmat?
Hefðbundið, brauðbiti, ávaxtasafi og slatti af vítamín-
um.
Ef þú ynnir í lottóinu, hvað er það fyrsta sem þú
myndir gera?
Ég er alltaf að vinna í lottóinu, síðast voru það held ég
540 kr. en ef það væri eitthvað að ráði kæmi vel til
greina að ánefna ríkissjóði ávinninginn.
Syngur þú í sturtunni?
Nei.