Feykir - 30.03.2022, Page 2
„Svo skemmtilega vill til að
arfgerðin T137 hefur nú loks
fundist í hrút,“ segir í frétt á
heimasíðu Rannsóknarmið-
stöðvar landbúnaðarins en
skipuleg leit hefur staðið yfir í
vetur að verndandi genum gegn
riðu í sauðfé. Arfgerðin T137
hefur fundist á þremur bæjum
en ARR á einum.
Hrútur sá sem fannst nú í
fyrsta skiptið með T137 er frá
bænum Stóru-Hámundarstöð-
um á Árskógsströnd við Eyja-
fjörð og ber nafnið Austri, er
hvítur að lit og hyrndur. Hann
þykir hinn álitlegasti kynbóta-
gripur og var sá hrútur búsins
sem átti hvað öflugasta slátur-
lambahópinn sl. haust á búinu,
eins og segir í frétt RML. „Hann
átti um 60 afkvæmi með slátur-
upplýsingar og hlutu þau að
jafnaði 10,7 fyrir gerð og 5,7
fyrir fitu við 17,5 kg fallþunga.
Faðir Austra er sæðingastöðva-
hrúturinn Amor 17-831 frá
Snartarstöðum, en ekki kemur
T137 frá honum.“
Nú liggja fyrir upplýsingar
um 3.500 sýni auk bráðabirgða-
niðurstöðu úr um 2.500 sýnum
til viðbótar og segir í færslu
RML að enn sem komið er hafi
arfgerðin ARR ekki fundist
annars staðar en á Þernunesi.
„Hin mögulega verndandi arf-
gerð, T137, finnst nú á þrem
bæjum en áður hafði hún
fundist á Sveinsstöðum í
Austur-Húnavatnssýslu og á
bænum Straumi í Hróarstungu
á Héraði,“ segir á heimasíðu
RML.
Það kemur jafnframt fram
að móðurættin sé frá Stóru-
Hámundarstöðum í grunnin
en sé aðeins blönduð með hrút-
um af sæðingastöðvunum.
„Það er þó bara einn stöðva-
hrútur sem kemur fyrir í fyrstu
fjórum ættliðunum í móðurætt
Austra en það er Myrkvi 10-
905 frá Brúnastöðum sem er
MFF. Amma Austra er ein af
betri afurðakindum búsins og
er með 119 stig fyrir mjólkur-
lagni. Kynbótamat Austra er:
120 (gerð) – 112 (fita) – 103
(frjósemi) – 104 (mjólkurlagni).
/PF
Nú kemur hver framboðslistinn í leitirnar líkt og
farfuglarnir og sitt sýnist hverjum um uppstillingu
frambjóðenda á þeim eins og gengur. Í lauslegri talningu
minni á þeim sem þegar hafa litið dagsins ljós má ætla að
þokkalegt samspil sé á milli kynja þó halli örlítið á
kvenfólkið.
Mig langaði til að forvitnast
örlítið um kynjahlutföllin þar sem
ég sá frétt um daginn þar sem segir
frá Diljá Ámundadóttur Zoega sem
ákvað að afþakka 5. sæti á lista
Viðreisnar fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar og segir þar
með skilið við borgarpólitíkina.
Diljá sóttist eftir 3. sæti á lista en
hafnaði í því fjórða en vegna reglu
um kynjafléttu var henni boðið það
fimmta sem hún þáði ekki.
Þetta er afleiðing af svokölluðum kynjakvóta sem settur
var í lög sem tóku gildi 6. júní 2000 og var ætlað að jafna
stöðu og rétt kvenna og karla. „Markmið laga þessara er að
koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna
og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum
samfélagsins. Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika
á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð
kynferði,“ segir m.a. í 1. grein.
Allt er þetta gott og gilt en svo gæti vandast málið. Þann
6. júlí 2019 tóku gildi lög um kynrænt sjálfræði sem kveða
á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina kyn sitt og miða
þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti
viðurkenningar. Einnig er lögunum ætlað að standa vörð
um rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi.
Það hefur reynst erfitt fyrir marga að skilja þessa nýju
skilgreiningu og alveg án þess að að viðhafa einhverja
fordóma. „Það er í raun ógerlegt að nefna tölu þegar kemur
að spurningunni hversu mörg kyn eru til. Hugtakið vísar
ekki lengur einungis til líffræðilegs kyns heldur er það
einnig félagslegt hugtak,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í svari
sínu við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Miðflokksins á Alþingi síðasta sumar er hann
vildi vita hversu mörg kyn mannfólks væru, að mati
forsætisráðuneytisins. Þá veltir maður fyrir sér hvort ekki
þurfi að skilgreina kynjakvóta upp á nýtt.
Til að koma með niðurstöðu þessarar óformlegu taln-
ingar sem undirritaður viðhafði á framboðslistum sem getið
var í upphafi, þá eru 49 karlar skráðir á listana fimm og 40
konur. Þegar einungis eru tekin þrjú efstu sæti hvers lista
eru karlarnir átta en konurnar sjö. Kannski breytast tölurnar
þegar fleiri listar koma fram.
Góðar stundir!
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Úreltir kynjakvótar
AFLATÖLUR | Dagana 20. til 26. mars á Norðurlandi vestra
Hafborg EA 152 með tæp 139 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Viktoría HU 10 Handfæri 1.242 Alls á Skagaströnd 193.031
SAUÐÁRKRÓKUR
Gammur II SK 120 Grásleppunet 1.212
Hafborg SK 54 Þorskfisknet 2.030
Lundey SK 3 Þorskfisknet 9.260
Vinur SK 22 Handfæri 2.055 Alls á Sauðárkróki 14.557
SKAGASTRÖND
Bergur Sterki HU 17 Handfæri 115
Fengsæll HU 56 Handfæri 1.789
Hafborg EA 152 Dragnót 138.940
Hafrún HU 12 Dragnót 18.478
Hrund HU 15 Handfæri 6.059
Lundey SK 3 Þorskfisknet 24.074
Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfisknet 2.334
Það var fremur rólegt í Sauðárkrókshöfn í síð-
ustu viku og aðeins fjórir bátar sem lönduðu
en hver og einn landaði tvisvar sinnum.
Aflahæst var Lundey SK 3 með 9.260 kg og
var stór hluti aflans þorskur. Eitthvað er farið
að sjást til grásleppunnar og samkvæmt
fiskistofu þá mátti byrja veiðar hér á Norður-
landi þann 20. mars. Þá hefur verið gefið út að
hver bátur geti veitt í 25 daga samfleytt frá
tímabilinu 20. mars til 30. júní. Gammur II SK
120 er sá eini sem er byrjaður á grásleppu-
veiðum á Norðurlandi vestra og eiga fleirri eftir
að bætast í hópinn á næstu vikum. Venjan er
reyndar að byrja á rauðmagaveiðum, sem
mörgum þykir hið mesta hnossgæti, en veðrið
kom í veg fyrir þær veiðar í ár.
Togararnir Málmey SK 1 og Drangey SK 2
lönduðu í öðrum höfnum þessa vikuna og kom
Málmeyjan að landi í Þorlákshöfn með um 206
tonn þar sem uppistaðan var ufsi og var hún
við veiðar á Látragrunni og Tánni. Drangeyjan
land-aði 210 tonnum á Grundarfirði og var
uppistaða aflans þorskur. Hún var einnig við
veiðar á Látragrunni ásamt Kantinum. Á Skagaströnd lönduðu hins vegar átta
bátar/togarar samtals 19 sinnum og var
Hafborg EA 152 aflahæst með 138.940 kg í
fimm löndunum, uppistaða aflans var þorskur.
Lundey SK 3 land-aði einnig fjórum sinnum á
Skagaströnd ásamt því að landa tvisvar á
Króknum og landaði því alls í sex löndunum
33.334 kg. Enginn landaði á Hvammstanga né
Hofsósi og heildaraflinn því 207.588 kg í
síðustu viku á Norðurlandi vestra. SG
Góðar fréttir úr riðurannsókn
Fyrsti T137 hrúturinn fundinn
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Húnaþing vestra
Framkvæmdir við skólabyggingu ganga vel
„Góður gangur er í framkvæmdum á seinni hluta
skólabyggingarinnar, nýrrar álmu fyrir unglinga-
stig og starfsfólk,“ segir á heimasíðu Grunnskóla
og Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Vestari hluti byggingarinnar var tekinn í
notkun við upphaf skólastarfs sl. haust en áætlað
er að nýja viðbyggingin verði tekin í notkun
næsta haust. Byggingin er staðsett norðan við
núverandi skólabyggingu og teygir sig frá vestri
og upp með landinu til austurs og er um 1028 m2
að stærð. Nú eru liðin rétt rúm tvö ár síðan fyrsta
skóflustungan var tekin. /PF
Austri, fyrsti hrúturinn sem finnst með
T137 hér á landi. MYND: RML.IS.
Það er allt að gerst í nýbyggingu skólamannvirkja á Hvamms-
tanga. MYND AF HEIMASÍÐU SKÓLANNA Í HÚNAÞINGI VESTRA
2 13/2022