Feykir - 30.03.2022, Síða 3
Feykir auglýsir eftir
afleysinga-blaðamanni
á Feyki og Feyki.is.
Starfið felst í skrifum í
blað og á netmiðil Feykis,
frétta- og efnisöflun ásamt
tilfallandi störfum.
Ráðningartími er frá
miðjum maí og fram í ágúst.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald
á íslensku, geta ritað í Word og
talað í síma. Bílpróf nauðsynlegt.
Áhugasamir sendi umsókn á
netfangið: palli@feykir.is
fyrir 1. apríl nk.
Frekari upplýsingar gefur ritstjóri
í síma 861 9842 og/eða 455 7176.
Feyki
bráðvantar
blaðamann
í sumar
ný
pr
en
t e
hf
.
Vígslubiskup hættir
Kirkjuþing kom saman um
helgina og fundaði í húsakynnum
biskupsstofu. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir, vígslubiskup á
Hólum, kvaddi sér hljóðs við
upphaf þingsins og tilkynnti
kirkjuþinginu að hún léti af störf-
um sem vígslubiskup 1. septem-
ber næstkomandi.
Minntist hún í ávarpinu þeirra
Solveig Lára kveður Hóla í haustbyrjun
Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum.
MYND: HSH
tímamóta að á þessu ári væru
fjörutíu ár frá því að hún vígðist til
prests en hún hefur þjónað bæði í
sveit og borg. Undanfarin ár hefur
hún sinnt störfum vígslubiskups á
Hólum í Hjaltadal. Lagði hún
áherslu á það í máli sínu að
vígslubiskupsstörfin yrðu með
óbreyttu sniði og frekar efld
heldur en hitt.
Taldi hún að það yrðu hrapal-
leg mistök ef vígslubiskups-
störfin yrðu gerð að hlutastarfi.
Lesa má ávarp sr. Solveigar Láru
á heimasíða Þjóðkirkjunnar;
kirkjan.is.
Sr. Solveig Lára var kjörin
vígslubiskup á Hólum árið 2012.
/ÓAB
Höfðaskóli á Skagaströnd
Nemendur tóku við viðurkenningu frá forsetanum
Feykir sagði frá því fyrr í vetur að Höfðaskóli á
Skagaströnd hefði orðið hlutskarpastur í C-flokki í
lestrarkeppni grunnskólanna, Samrómi.
Höfðaskóli vann mikinn slag við Öxarfjarðar-
skóla um toppsætið en í nafni skólans voru lesnar
153.288 setningar af 353 keppendum. Nú í liðinni
viku voru fulltrúar skólans viðstaddir athöfn á
Bessastöðum þar sem forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, afhenti verðlaun og viðurkenningar
fyrir framúrskarandi árangur í Samrómi.
Í frétt á vef Höfðaskóla segir að það hafi verið
systurnar Ylfa Fanndís og Arney Nadía Hrannars-
dætur, nemendur í 5. og 6.bekk, sem tóku á móti
verðlaununum en þeim til halds og trausts var
Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, umsjónarkennari á
miðstigi. Sjá nánar á Feykir.is. /ÓAB
Leiðréttingar
Föðurnöfn og Nafir
Í minningargrein um Jóhönnu Þórarinsdóttur, fyrrum
húsfreyju á Æsustöðum, sem birtist í 11. tbl. Feykis, hafa
tvö orð misfarist. Föðurnafn Sverris bónda er Haralds-
son en ekki Halldórsson, eins og þar stendur, og í stað
orðanna, „er síðast sat Æsustaði“, átti að standa; er lengi
sat Æsustaði. Beðist er velvirðingar á þessu.
Í sama blaði var rangt farið með föðurnafn ungu
leikkonunnar Matthildar frá Flugumýri, sem tók þátt í
uppsetningu Leikfélags Hörgdæla á Í fylgd með
fullorðnum. Hún var sögð Jónsdóttir en er, eins og
margir hafa bent á, Ingimarsdóttir Jónssonar. Er beð-
ist velvirðingar á þessari meinlegu villu.
Þá hafði athugull lesandi samband og benti á að í 9.
tbl. væri villa þar sem rætt er við Nafabændur á
Króknum. Í blaðinu er talað um Nafarbændur, sem
bendir þá til þess að einungis sé um eina Nöf að ræða
en Nafir eru þetta og því skal rita Nafabændur. Feykir
þakkar ábendinguna.
Kl. 11 að morgni
Molduxamót
– styrktarmót fyrir kkd. Tinda tóls
12 liða mót – Þrír leikir á lið og úrslitaleikur
Verð 25.000 kr. á lið – Skráning er hafin á pilli@simnet.is
Kl. 11 að kvöldi
Dansleikur
með Danssveit Dósa
ásamt sérstökum gestum; Gunnari Hrafni og Malen
Húsið opnar kl. 22 – Ball frá kl. 23–02
Aldurstakmark 18 ára – Bar á staðnum
ÁFRAM TINDASTÓLL
Páskaskemmtun
Tindastóls
í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
laugardaginn 16. apríl
MIÐAVERÐ
KR. 3.500
ný
pr
en
t e
hf
|
0
32
02
2
13/2022 3