Feykir - 30.03.2022, Side 4
Lumarðu á frétt?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Sveitarstjórnarkosningar
byggingarfræðingur á Blöndu-
ósi.
Guðmundur Haukur Jakobs-
son, forseti sveitarstjórnar á
Blönduósi og framkvæmda-
stjóri, vermir efsta sæti D-lista
Sjálfstæðismanna og óháðra en
annað sætið skipar Ragnhildur
Haraldsdóttir, varaoddviti
sveitarstjórnar og lögreglukona
Fyrstu listarnir birtir
Senn líður að sveitar-
stjórnarkosningum sem
haldnar verða eftir einn og
hálfan mánuð eða þann 14.
maí. Mánuði fyrr rennur
út frestur til að skila inn
framboðum og hafa fáein
þegar verið tilkynnt.
Austur-Húnavatnssýsla
Í nýju sveitarfélagi í Austur-
Húnavatnssýslu hafa þrír listar
verið tilkynntir; H-listinn með
Jón Gíslason á Stóra-Búrfelli,
núverandi oddvita Húnavatns-
hrepps, í fararbroddi. Í öðru
sæti er Berglind Hlín Baldurs-
dóttir, fulltrúi í sveitarstjórn,
sérkennari og bóndi í Mið-
húsum, en þriðja sætið skipar
Guðmundur Arnar Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri og
og Zophonías Ari Lárusson,
framkvæmdastjóri og húsa-
smiður, það þriðja.
Auðunn Steinn Sigurðsson,
skrifstofumaður, skipar oddvita-
sæti B-lista Framsóknar og
annarra framfarasinna en í öðru
sæti er Elín Aradóttir, fram-
kvæmdastjóri, og þriðja sætinu
Grímur Rúnar Lárusson, lög-
fræðingur.
Húnaþing vestra
Í Húnaþingi vestra er búið að
kynna einn lista, D-lista
Sjálfstæðismanna og óháðra.
Þar er Magnús Magnússon,
sveitarstjórnarfulltrúi, sóknar-
prestur og bóndi, í fylk-
ingarbrjósti en að baki honum
koma Sigríður Ólafsdóttir,
sveitarstjórnarfulltrúi, bóndi og
ráðunautur frá Víðidalstungu,
sem skipar annað sætið og í
þriðja sæti er Liljana Milen-
koska, hjúkrunarfræðingur.
Skagafjörður
Í sameinuðum Skagafirði hefur
aðeins listi Framsóknar verið
opinberaður en þar situr Einar
E. Einarsson, loðdýrabóndi á
Syðra-Skörðugili, efstur en
Hrund Pétursdóttir, sérfræðing-
ur á Sauðárkróki, Hrefna
Jóhannesdóttir, skógfræðingur
og oddviti Akrahrepps og
Sigurður Bjarni Rafnsson,
aðstoðarslökkviliðsstjóri, koma
þar á eftir.
Gera má ráð fyrir að fleiri listar
verði kynntir á næstu dögum en
heyrst hefur að N listinn í
Húnaþingi vestra leiti að
áhugasömu fólki til að taka þátt
í framboði til sveitarstjórnar en
upp úr samstarfi slitnaði við
D-lista. Þá hefur Framsókn ekki
kynnt sinn lista en fastlega má
gera ráð fyrir að hann bjóði
fram.
Í Skagafirði hefur Byggða-
listinn gefið út að hann verði í
framboði og fastlega má gera
ráð fyrir opinberun lista VG og
óháðra og Sjálfstæðismanna
innan skamms. /PF
Einhversstaðar austan við þig sjálfan
er á sínum forna stað,
feðra þinna og mæðra upphafs álfan,
aldrei kemstu þar í hlað.
Milli þín og hennar eru aldir,
allir straumar fyrir löngu kaldir,
þótt þú kannski eitthvað annað haldir!
Þú ert kominn langan veg í vestur,
veist þó hvergi handaskil.
Og kannski ertu á öllum stöðum gestur,
ekkert heimasetur til?
Ef líf þitt á nú aðeins villuslóðir
og engir kostir bjóðast lengur góðir,
þú sækir enga glóð í gamlar hlóðir!
Það kulnað er sem kveikti forðum neista
og kalið sérhvert strá.
Og nú er ekki neinu hægt að treysta,
það næðir þér um brá.
Því kuldalegt er bæði úti og inni
og ekkert til sem lífgar gömul kynni
sem hlýjuðu áður hjarta og vitund þinni!
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson skrifar
Rótarslit
x22
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
14. MAÍ 2022
4 13/2022