Feykir - 30.03.2022, Page 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Subway-deildin í körfubolta
Sjötti sigur Stólanna í röð
kom gegn meisturum Þórs
Það er heldur betur stuð á
Stólastrákunum í körfunni
þessa dagana. Nú á mánudags-
kvöldið kláraðist næst síðasta
umferðin í Subway-deildinni og
andstæðingar Tindastóls voru
Íslandsmeistarar Þórs úr Þor-
lákshöfn sem hafa spilað liða
best í vetur.
Þeir fóru illa með okkar
menn hér í Síkinu í desember,
unnu með 43 stigum og flestum
stuðningsmönnum varð flök-
urt. En ekki að þessu sinni.
Stólarnir komu, sáu og sigruðu
í Þorlákshöfn, gáfu aldrei
þumlung eftir eða eins og
Baldur Þór þjálfari orðaði það:
„Svakaleg orka og ákafi í
liðinu.“ Lokatölur voru 85-91
og Stólarnir sækja fast í að ná
fjórða sætinu í deildinni og
þannig heimavallarréttinum í
úrslitakeppninni.
Góður leikur Tindastóls á
báðum endum vallarins skilaði
tveimur stigum í hús og sjötta
sigri liðsins í röð. Javon Bess
átti stjörnuleik, gerði 28 stig og
var með 67% skotnýtingu inn-
an og utan 3ja stiga línunnar.
Hann tók einnig fimm fráköst
og átti fimm stoðsendingar.
Arnar var með 15 stig en fann
þó ekki alveg réttu fjalirnar í
Þorlákshöfn, Taiwo og Pétur
gerðu báðir 12 stig og Siggi var
með tíu en hann var drjúgur á
upphafsmínútum leiksins. Þá
dúkkuðu Axel og Vrkic upp
með sex stig hvor. Stigahæstir í
liði Þórs voru Morensen með
24 og Kyle Johnson með 22.
Glynn Watson, sem var
óstöðvandi í fyrri leik liðanna,
gerði aðeins fimm stig og var
ekki sjálfum sér líkur.
Lokaumferðin fer fram nú á
fimmtudagskvöldið og hefjast
allir leikirnir kl. 19:15. Nú
mæta allir stuðningsmenn í
Síkið og fagna frábærri frammi-
stöðu Tindastóls.
Keflvíkingar parketlagðir
Tindastóll fékk Keflavík í
heimsókn sl. fimmtudagskvöld
í 20. umferð Subway-deildar-
innar í körfubolta og reyndist
leikurinn hin besta skemmtun
– í það minnsta fyrir heima-
menn. Stólarnir voru yfir allan
leikinn og með Arnar í bana-
stuði en kappinn skellti í tíu
þrista og réðu gestirnir ekkert
við hann. Gamla góða stemn-
ingin var í Síkinu, taumlaust
fjör, sungið og klappað og allir í
stuði. Lokatölur 101-76.
Það munaði að sjálfsögðu
um að það vantaði Jaka
Brodnik, Halldór Garðar og
Hörð Axel í lið Keflavíkur en
lið gestanna engu að síður
sterkt. Stólarnir höfðu sem fyrr
segir yfirhöndina allan leikinn
og voru yfir í hálfleik, 46-36.
Þeir náðu síðan góðum kafla
undir lok þriðja leikhluta og í
upphafi fjórða og gáfu gest-
unum engan möguleika á
endurkomu.
Arnar var klárlega maður
leiksins og endaði með 35 stig,
átta fráköst, sjö stoðsendingar
og í það minnsta þrjá stolna
bolta. Hann var bara í banastuði
og spilaði með bros á vör allan
leikinn eins og hans er von og
vísa. Bess átti líka ágætan leik
og skilaði 21 stigi, Zoran endaði
með 15 stig og Taiwo tólf, Siggi
gerði sjö stig og tók sjö fráköst
og þó Pétur hafi aðeins skorað
tvö stig þá stjórnaði hann leik
liðsins vel, skilaði tíu stoð-
sendingum og lið Tindastóls
tikkar eins og vel stillt klukka
þegar hann er inn á. /ÓAB
Grettismenn í stuði og gamla góða stemningin í Síkinu. MYND: DAVÍÐ MÁR
Kjarnafæðismótið í knattspyrnu
Stólastúlkur lögðu lið Völsungs
Næstsíðasti leikurinn í Kjarnafæðismótinu, sem
hófst í desember, var leikinn sl. föstudag en þá
sigruðu Stólastúlkur lið Húsvíkinga 3-1. Mótið átti
að klárast í byrjun febrúar en veður og Covid settu
strik í reikninginn og síðan tók Lengjubikarinn yfir
hjá liðunum.
Una Móeiður Hlynsdóttir kom liði Völsungs
yfir á 9. mínútu en Anna Margrét Hörpudóttir
jafnaði metin á 16. mínútu með þrumuskoti af
löngu færi en þetta var víst ekki fyrsta mark Önnu
fyrir meistaraflokk Tindastóls. Hugrún Palla og
Guðnýjar kom Stólastúlkum síðan yfir á 41.
mínútu eftir frábæra sókn. Hugrún átti síðan
stóran hlut í þriðja markinu sem kom eftir
hornspyrnu á 64. mínútu en markið var skráð á
Ísabellu Júlíu Óskarsdóttur, markvörð Völsungs.
Í lið Tindastóls vantaði varnarjaxlana Kristrúnu
Maríu og Sólveigu Birtu en Arna Kristinsdóttir,
sem spilaði í Pepsi Max með Þór/KA sl. sumar
klæddist Tindastóls-búningnum í leiknum en
leikmenn þurfa ekki að vera skráðir í félagið sem
þeir spila með í Kjarnafæðismótinu. Ekki er enn
ljóst hver niðurstaðan er í mótinu því einn leikur er
eftir en þar mætast sameinuð Aust-fjarðaliðin og
Völsungur.
Hrafnhildur og Krista semja
Á vef Tindastóls var fyrir helgi sagt frá því að
Hrafnildur Björnsdóttir og Krista Sól Nielsen
hefðu skrifað undir tveggja ára samning við
knattspyrnudeild Tindastóls.
Hrafnhildur á að baki 122 leiki fyrir mfl.
Tindastóls og hefur gert 16 mörk en Krista hefur
spilað 41 leik og gert níu mörk. /ÓAB
Lið Kormáks/Hvatar lék við lið
KFG sem hefur verið eitt
sterkasta liðið í 3. deildinni
síðustu sumur sl. sunnudag
og var spilað í Garðabænum.
Jóhann Jóhannsson kom
heimamönnum á bragðið með
marki á 23. mínútu og hann
bætti við marki á 34. mínútu.
Kári Pétursson gerði brekku
Húnvetninga enn brattari
þegar hann gerði þriðja mark
KFG á 40. mínútu og staðan
3-0 í hálfleik. Eyjólfur Arason
gerði fjórða markið á 51.
mínútu og það var síðan Pétur
Máni Þorkelsson sem gerði
síðasta mark leiksins í 5-0 sigri
Garðbæinga á 87. mínútu.
Þetta var síðasti leikur
Kormáks/Hvatar í L e ng ju -
bikarnum en liðið lék fjóra
leiki og tapaði þeim öllum og
þurfti einnig að gefa einn leik
þegar ekki náðist í lið. Hú-
nvetningar eiga vafalaust eftir
að styrkja hópinn áður en
átökin í 3. deildinni hefjast.
/ÓAB
Lengjubikarinn
Sannfærandi Stólasigur
gegn Berserkjum
Tindastóll spilaði í Lengju-
bikarnum nú á sunnudaginn
en liðið átti heimaleik gegn
Berserkjum/Mídasi sem er
einskonar B-lið Íslands-
meistara Víkings. Heimamenn
voru í blússandi sveiflu,
spiluðu vel og sköpuðu sér
mörg góð færi og unnu leikinn
örugglega 6-1.
„Þetta var mjög öruggur sigur
hjá okkar mönnum,“ sagði
Donni þjálfari að leik loknum.
„Við höfðum mjög mikla
yfirburði úti á vellinum og
spiluðum oft á tíðum mjög
góðan fótbolta. Mörkin voru
öll virkilega góð og við
sköpuðum góð færi til að
skora enn fleiri. Frábær
liðsframmistaða og sýnir
okkur að við erum á réttri leið
í okkar leik. Næst er það
Álafoss á útivelli á föstudaginn
kemur en síðan verður haldið í
sólina til Portúgals þar sem
bæði karlaliðið og kvennaliðið
munu dvelja saman í
æfingaferð.“
Það voru Konni fyrirliði
(2), Jón Gísli (2), Jóhann Daði
og Ísak Sigurjóns sem gerðu
mörk Tindastóls. Byrjunar-
liðið var þannig skipað að
Einar var í markinu; Svend,
Sverrir, Anton og Domi í
vörninni; Konni, Siggi og
Jónas á miðjunni og Jón Gísli,
Bessi og Addi frammi. Einnig
komu þeir Óskar Örth, Emil,
Benni, Ísak, Jóhann Daði og
Eysteinn við sögu í leiknum.
/ÓAB
Lengjubikarinn
Erfitt hjá Kormáki/Hvöt
í Garðabænum
Stólarnir skjóta að marki. MYND: SGURÐUR INGI PÁLSSON
13/2022 5