Feykir - 30.03.2022, Síða 7
Reyndar hefur maður minna
farið á milli húsa meðan þetta
Covid varði en mér þykir þetta
skemmtilegt og á góða félaga
hérna sem eru í svipaðri stöðu
og ég, hafa lítið annað að gera
en að dunda við þetta. Svo
droppar fólk við og fær að kíkja
í húsin. Mér líkar þetta bara
mjög vel og ekki síst að geta
verið í sátt og samlyndi við allt
og alla.“
Í fjárhúsinu hjá Herði er
sauðurinn áberandi, fallegur á
litinn og bísperrtur. Hörður
segist hafa keypt hann af
Jóhannesi Sigfússyni, bónda á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
„Ég keypti hann sem hrútlamb
að hausti en svo var hann geltur
eftir að hann kom hingað og
þar af leiðandi orðinn sauður.
Þetta er hreinræktuð forystu-
kind í báðar ættir. Þetta var nú
bara eitt af því til að hafa gaman
af. Það er ekki mikill arður af
honum annað en ánægjan. Það
reynir lítið á hann í svona
búskap en hann er alltaf fyrsta
kindin hér inn. Ef ég fer fyrir
þær hér uppi á túni þá skokkar
hann niður í rétt, það er ekki
óþægð í honum.“
Þannig að það er vitglóra í
forystufénu? „Já, því sem er
alvöru forystufé. Það eru alltaf
einhverjir kjánar innan um og
mislukkast en þá er bara ein
leið fyrir þá, það er það fé sem
kemur óorði á forystuféð. En
þetta alvöru forystufé er ekki
með neina vitleysu.“
Hörður lýsir því hvernig
sauðurinn mætir fyrstur í
réttina í göngum og aðrar
kindur elta. En á sumrin virðist
hann una sér einn. „Ég hef séð
hann á sumrin en þá er hann
ekki með mínum kindum, er
bara einn. En ég held að ég hafi
verið heppinn með þennan
bara.“
Á von á 25 lömbum í vor
Nú nálgast sá tími sem gefur
hvað mest í þessu kindastússi
þegar lömbin fara að koma í
heiminn og á Hörður von á
kvarthundrað eftir því sem
fósturtalningar sögðu til um.
„Hér eiga að vera 25 lömb. Ég
hleypti ekki á gimbrarnar. Það
er ein geld en 14 eru með
lömbum, ein er með þrjú. Það
verður vonandi eitthvað að
gera í smá stund í vor,“ segir
hann og greinilegt að hann
hlakkar til vorsins. Hann segist
vera einn þar sem konan sé lítið
í þessu með honum. „Hún
truflar mig mjög lítið hérna,“
segir hann og rekur upp
skellihlátur, „En hún kíkir
hérna við og við,“ bætir hann
við og leiðréttir sig með það að
hún sé nú ekki að trufla hann
neitt þó hún líti í húsin.
„Hér er gott að vera og mér
líður vel. Fyrst ég gat ekki verið
á vinnumarkaðinum lengur þá
drepur maður tímann hérna.
Ég lagaði til hérna, girti allt
upp, henti ónýtum girðingum
og tók til hendinni. Þetta var
hesthús þegar ég tók við þessu
og breytti í fjárhús en þetta var
reyndar fjárhús fyrir löngu og
síðar gert að hesthúsi. Það er
allt nýsmíðað inni. Það verður
gaman að sjá hvernig ræktunin
gengur og meðan maður getur
dundað sé við þetta vona ég að
ég verði hér áfram og mig
langar til þess,“ segir Hörður í
lokin áður en hann er kvaddur
með góðum óskum um gott
gengi í ræktun og sauðburði.Það er gott fyrir menn og skepnur að vera á Nöfum.
Forystusauðurinn þiggur góðgæti frá húabóndanum.
Fallegur er sauðurinn og forvitinn.
Mannamót Markaðsstofanna
fór fram í sl. fimmtudag í
Kórnum í Kópavogi. Segir á
heimasíðu SSNV að þessi
árlegi viðburður, sem ekki
náðist þó að halda á síðast ári,
sé fyrir löngu orðinn fastur
liður í samskiptum ferðaþjón-
ustuaðila á landsbyggðinni og
söluaðila á höfuðborgar-
svæðinu.
Ennfremur kemur fram í
frétt SSNV að aðrir aðilar, s.s
leiðsögumenn og fjölmiðla-
fólk, nýti sér þennan viðburð
til að afla sér upplýsinga um
það nýjasta sem í boði er.
„Það var virkilega ánægju-
legt að sjá 20 fyrirtæki af
Norðurlandi vestra taka þátt,
en það er svipaður fjöldi og
hefur verið á fyrri Mann-
amótum. Okkar fólk lét vel af
viðtökunum og horfir björtum
augum fram á veg m.t.t. bók-
unarstöðu. Og auðvitað voru
allir sammála um að það væri
mikill léttir að geta aftur farið
að hitta fólk í raunheimum,“
segir í færslu SSNV. /PF
Húnaþing vestra
Skipulagsfulltrúa
þakkað farsælt starf
Síðastliðinn fimmtudag leit
Eyjólfur Þórarinsson hjá
verkfræðistofunni Stoð ehf.
við á skrifstofu Húnaþings
vestra en hann hefur starfað
sem skipulagsfulltrúi
sveitarfélagsins sl. sjö ár.
Nú verða hins vegar vakta-
skipti því með tilkomu nýrrar
skrifstofubyggingar hefur
verið ráðinn skipulagsfulltrú í
Húnavatnssýslum og hefur
Bogi Kristinsson Magnusen
tekið við starfi skipulags-
fulltrúa fyrir sveitarfélögin í
Húnavatnssýslunum.
Í frétt á vef Húnaþings
vestra er Eyjólfi þakkað fyrir
farsæl störf í þágu sveitarfé-
lagsins og Bogi jafnframt boð-
inn velkomin til starfa. /ÓAB
Norðlendingar á Mannamóti 2022
Norðlendingar
gerðu gott mót
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
afhendir Eyjólfi á Stoð blómvönd
og þakkar fyrir farsæl störf. MYND:
HÚNAÞING VESTRA
Gert er ráð fyrir um 2,8
milljarða króna framlagi
ríkisins til næstu þriggja ára til
uppbygginga innviða og
náttúruverndar á ferða-
mannastöðum. Þrjú verkefni
á Norðurlandi vestra fá sam-
tals rúmar 23 milljónir króna.
Þar er um að ræða Hvera-
velli sem fá í sinn hlut 3,3
millj. í ár til að bæta merkingar
innan verndarsvæðis; Minja-
stofnun Íslands vegna deili-
skipulags og aðgerða til
verndar minjum á Örlygsstöð-
um í Skagafirði, samtals
5.000.000, og 15 milljónir eru
ætlaðar í hönnun og fram-
kvæmdir við Hvítserk í Húna-
þingi vestra. Í tilkynningu frá
umhverfis-, orku- og lofts-
lagsráðuneytinu verður út-
hlutað rúmlega 914 milljónum
króna úr Landsáætlun um
uppbyggingu innviða í ár sem
gerir það kleift að halda áfram
því mikilvæga verkefni að
byggja upp efnislega innviði á
ferðamannastöðum, s.s.
göngustíga, útsýnispalla, bíla-
stæði og salerni.
Aukin áhersla er á
langtímaáætlanir í uppbygg-
ingu staða en einnig á aukna
miðlun og merkingar, ekki síst
á stöðum þar sem samspil er á
milli náttúru og menningar-
sögulegra minja. /PF
Innviða og náttúruvernd á ferðamannastöðum
Rúmar 23 milljónir til
Norðurlands vestra
13/2022 7