Feykir - 30.03.2022, Page 8
okkar, mikið
líst mér vel
á að fá hana
hérna inn
í þennan
karlafótbolta,
s v o
sjarmerandi
og jákvæð
stúlka, já
og héðan af
K r ó k n u m .
Y n d i s l e g
alveg hreint
og svo
var hún
þarna líka
hún hérna,
hvað heitir
hún aftur...
GRDÚN. . . ! ?
Æ, ég man
ekki hvað
hún heitir en
hún hefur
svo fallega
framkomu, já
Kristrún Örnólfsdóttir minnist Skagafjarðar | 2. hluti
Kristrún Þórlaug Örnólfsdóttir f. 29.03
1902 d. 16.08 1978 skrifaði eftirfarandi
frásögn í „Sóley“, handskrifað blað
kvenfélagsins í Súgandafirði.
*
Ég fór til Skagafjarðar vorið
1923 og var þar á sama bæ í 2
og 1/2 ár. Bærinn hét Sjávar-
borg. Var það skammt frá
Sauðárkróki eða í kringum
hálftíma gangur út á Krókinn.
Ég fór, því miður, óvíða um
Skagafjörð. Fór einu sinni fram
að Reynistaðarétt, út að
Meyjarlandi á Reykjaströnd,
yfir í Blönduhlíð að Syðri-
brekkum og Hofsstöðum og 4
bæi á Hegranesi; Ás, Ríp,
Helluland og Vatnskot. Enn-
fremur kom ég að Gili, Hólkoti,
Brennigerði og Borgargerði og
svo oft út á Krók, því þangað
áttum við kirkjusókn.
Nú langar mig að segja
ykkur frá einni sveitaskemmt-
un sem ég var á. Við höfðum
frétt að halda ætti skemmtun í
Ási í Hegranesi 1. des. 1923.
Þangað langaði okkur til að fara
ef vötnin yrðu orðin manngeng.
Var nú farið að ráðgast um
hvernig hægt væri að komast
þetta, því allar vorum við
ókunnugar.
Við vorum fjórar sem fórum
og fengum húsbóndann til að
fylgja okkur yfir að Hellulandi.
Þá var ísinn svo þunnur að
hann gekk í bylgjum undir
fótunum á okkur og víða
urðum við að snúa frá og fara
aðra leið, en bóndinn hafði staf
til að reyna fyrir sér. Samt gekk
þetta slysalaust.
Við stóðum við góða stund
á Hellulandi og þáðum kaffi og
kökur hjá Ólafi Sigurðssyni
laxaklaksráðunaut og Ragn-
heiði Konráðsdóttur konu
hans. Þau ætluðu líka á
skemmtunina, en voru ekki
ferðbúin strax, svo við fengum
Hróbjart Jónasson til að fylgja
okkur yfir nesið.
Það var sæmilega gott veður
en dálítil ófærð. Við komum að
Ási góðri stundu áður en
skemmtunin átti að byrja og
vorum við búnar að hvíla okkur
og laga okkur til.
Þarna var fólk lengst framan
úr Blönduhlíð, utan úr Við-
víkursveit, fram úr Sæmundar-
hlíð og frá flestum bæjum úr
nesinu. Ég þekkti fátt af því, en
sumt hafði ég séð áður.
Til skemmtunar var ræðu-
höld, upplestur, kórsöngur,
einsöngur og dans. Einsöngv-
arinn var unglingur innan við
tvítugt, vinnumaður í Ási og
hét Stefán Guðmundsson, en
nú þekktur undir nafninu
Stefanó Íslandi. Hann söng
prýðilega og var skemmtunin
yfirleitt ágæt. Veitingar voru í
efra húsinu.
Það var dansað í 2 stofum og
spilað til skiptis á orgel og
harmóníku. Þá var það í fyrsta
sinn að ég var með í vísnamarsi,
voru þær margar góðar og
smellnar og hleyptu fjöri og
glaðværð í alla. Ég lenti í því að
vera fyrsta par með Stefáni
Guðmundssyni, en vísan sem
við fengum var ekki falleg, hún
er svona:
Samboðin ég svanna tel,
sæmdum hjörva rafti.
Það er sagt að skörðótt skel,
skældum hæfi kjafti.
Dansað var um klukkan 8 um
morguninn, þá var farið að
tygja sig til heimferðar, en nú
var kominn skafrenningur og
meira frost. Á leiðinni var
komið við í Vatnskoti og
drukkin mjólk, síðan var haldið
áfram að Hellulandi. Þar
hvíldum við okkur í klukku-
tíma og þáðum góðgerðir og
Hróbjart fengum við til að
fylgja okkur alla leið heim og
var þá klukkan orðin þrjú um
daginn. Vorum við orðnar
mjög þreyttar og urðum fegnar
að fara að sofa. Höfðum við
skemmt okkur ágætlega og
vorum ánægðar.
Kristrún Þ. Örnólfsdóttir
ES: Prentað upp úr handriti höfundar
með hennar stafsetningu og stíl. KHB.
---
Feykir fékk sendar þrjár sögur
frá Kristjáni Helga Björnssyni á
Hvammstanga sem móðir hans
ritaði niður frá veru sinni á
Sjávarborg. Fyrsta sagan birtist í
9. tbl. Feykis 2022 og sú þriðja
bíður birtingar við tækifæri.
Feykir þakkar sendinguna og
hvetur aðra til að senda blaðinu
efni.
Á sveitaballi
Kristrún 70 ára.
MYND AÐSEND
Hvað er títt? Jú, bara
þokkalegt! sagði
nemandi minn þegar
ég spurði hann frétta
snemma dags fyrir
nokkru. Nemendur mínir
eru oft skemmtilegir í
tilsvörum, maður heyrir
oft hvaða nesti þau
hafa að heiman, eins
og flestir þekkja þá eru
börn gjarnan speglar
foreldra sinna eða aðal
umönnunaraðila.
Það er eitthvað
notalegt við það
þegar börnin okkar
búa yfir fjölbreyttum
og skemmtilegum
orðaforða. Þar erum við
fullorðna fólkið helstu
fyrirmyndirnar, ef við
lesum fyrir börnin okkar,
tölum við þau og lesum
með þeim eru allar líkur
á því að þeirra orðaforði
verði fjölbreyttur. Það
er jú þannig að okkar
ástkæra ylhýra tunga
á undir högg að sækja,
orð eins og að kópíræta,
triggerast, dángreida,
öpplóda, seifa, fæla,
peista og svo mætti lengi
telja eru orðin nokkurs
konar norm og sitt
sýnist hverjum. Sjálfsagt
er hin margumtalaða
upplýsingatækni
áhrifavaldur þar, en fátt er
með öllu illt.
Samfélagsmiðlar á
borð við Facebook og
Instagram flytja okkur
fréttir af fólki, hvort sem
okkur líkar betur eða verr,
alls staðar að úr hinum
stóra heimi. Algóritminn
almáttugi passar svo
upp á að við fáum fréttir
og sjáum auglýsingar,
sem hugsanlega tengjast
okkar áhugasviði eða
sporum okkar á netinu.
Fréttir frá Úkraínu hafa
verið framarlega á mínum
samfélagsmiðlum, sem
og margra annarra geri
ég ráð fyrir; Stríðsglæpir,
fólksflótti og hörmungar
á hörmungar ofan sem
engan endi virðast ætla
að taka. En í miðjum
hörmungum birtist ljós
í fallega samfélaginu
okkar hér í A-Hún,
ung kona frá Úkraínu,
búsett á Blönduósi,
óskaði eftir stuðningi
íbúa Blönduósbæjar
til að útbúa heimili
fyrir samlanda sína
á flótta. Fyrirtæki og
íbúar brugðust hratt
og örugglega við,
samtakamáttur lítilla
samfélaga verður sjaldan
sýnilegri (og fallegri) en
þegar einhvern vantar
aðstoð. Ég þekki það
sjálf, bæði sem barn
á Blönduósi og sem
fullorðin kona.
Þar liggur okkar styrkur, í
umhyggju og samheldni.
Í vor göngum við íbúar
Húnavatnshrepps
og Blönduósbæjar
til kosninga í nýju
sameinuðu sveitarfélagi.
Sveitarfélagið nýja er ekki
mannmargt en það nær
yfir stórt landsvæði. Flest
viljum við þó það sama,
bætt lífsgæði til handa
öllum, óháð stétt eða
stöðu.
Sjálfstæðismenn og
óháðir bjóða fram
lista af fjölbreyttu og
frambærilegu fólki sem
brennur fyrir því að bæta
lífsgæði íbúa með því að
styrkja grunnþjónustu
nýs sveitarfélags og
tryggja jafna þjónustu
fyrir alla.
Ég býð mig fram
sem hluti af þeirri
heild, í 5. sæti á lista
Sjálfstæðismanna og
óháðra í sameinuðu
sveitarfélagi
Húnavatnshrepps og
Blönduósbæjar.
- Ég skora á Löru Margréti
Jónsdóttir frá Hofi í
Vatnsdal til að taka við
pennanum.
ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is
Ásdís Ýr Arnardóttir Fljótamaður og Siglfirðingur
Af Facebook og öðrum þráðum!
Ásdís Ýr á brúnni. MYND AÐSEND
8 13/2022