Feykir - 30.03.2022, Qupperneq 11
Þú ert ekki að komast neitt áfram
ef það er enginn í vegi fyrir þér. – Madeleine Albright
AÐALRÉTTUR
Tælenskur
chilikjúklingur
2 msk. smjör
8 úrbeinuð kjúklingalæri
35 g salthnetur, saxaðar
2 msk. saxað kóríander
Sósan:
60 ml sweet chilisósa (t.d frá
Blue Dragon)
2 msk. soya sósa
4 hvítlauksrif , pressuð
1 msk. fiskisósa (t.d frá Blue
Dragon )
1 msk. engifer rifið
safi úr 1 lime
1 tsk. chili mauk
Aðferð: Hrærið öllum hráefnun-
um fyrir sósuna saman og takið til
hliðar. Bræðið smjörið á pönnu og
steikið kjúklinginn á báðum
hliðum í 2-3 mín. Hellið þá chili-
sósunni saman við. Hellið öllu af
pönnunni í eldfast mót og setjið
inn í 165°C heitan ofn í 30 mín.
Setjið á grill í lokin í 2-3 mín. Berið
fram með söxuðu kóríander, salt-
hnetum, hrísgrjónum og fersku
salati.
EFTIRRÉTTUR
Sænsk kladdkaka
100 g smjör
21/2 dl sykur
2 egg
1 dl hveiti
3 msk. kakó
1 tsk. vanillusykur
Aðferð: Bræða smjör í potti og
kæla. Þeyta smjör og sykur saman.
Bæta eggjum út í. Svo kakó, hveiti
og vanillusykri. Baka í ofni á 175-
200°C í 15 mínútur (styttra og
lægri hiti ef það er blástur).
Krem:
1 poki Dumle karamellur
1/2 plata suðusúkkulaði
skvetta af rjóma
Aðferð: Brætt saman í potti og sett
yfir kökuna þegar hún er orðin
köld. Ég ber hana alltaf fram með
vanilluís, jarðarberjum og Mars-
sósu.
Verði ykkur að góðu!
Kristrún skorar á Ívar Sigurðsson
stórmeistara frá Páfastöðum að
taka við matgæðingaþætti Feykis.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Val-gerður.
Sudoku
Krossgáta
Feykir spyr...
Á að
banna
nagladekk?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Nei, við búum ekki í 101
rottuholu þar sem er saltað
í 4 stiga hita.“
Gunnar Smári Reynaldsson
Finna skal út eitt kven-
mannsnafn í hverri gátu.
Ótrúlegt - en kannski satt...
„Þegar ljóst var að Frakkar myndu ekki styðja innrás Bandaríkjamanna
í Írak árið 2003 fóru sumir Bandaríkjamenn að kalla franskar kartöflur,
„frelsiskartöflur“ (enska: freedom fries) í mótmælaskyni,“ segir á frjálsa
alfræðiritinu Wikipedia. En ótrúlegt, og kannski satt, þá kostar pundið af
kartöfluflögum í Bandaríkjunum um tvö hundruð sinnum meira en pund
af nýjum kartöflum.
„Nei, alls ekki, þetta er
öryggisþáttur að vetrarlagi
að aka um á góðum
nagladekkjum.“
Rúnar Már Jònsson
„Nei, það á ekki að banna
nagladekk, það á bara að
vera valfrjálst. Svo má líka
gera betri vegi sem verða
ekki ónýtir eftir eitt ár."
Gunnar Heiðar Bjarnason
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Hér er ekki sólarspádómur.
FEYKIFÍN AFÞREYING F
„Nei, verða að vera
til út á landi.“
Stefàn Jónsson
Tælenskur
chilikjúklingur
og sænsk kladdkaka
Matgæðingur vikunnar er Kristrún Ósk Sigurðardóttir en hún fékk
áskorun frá Völu Frímannsdóttur. Kristrún er þjónustufulltrúi í
Vörumiðlun á Sauðárkróki og er gift Arnari Skúla Atlasyni þjón-
ustufulltrúa hjá VÍS. Kristrún og Arnar eiga þrjú börn, tvíburana Arnar
Smára og Atla Skúla og Erlu Lár.
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Kristrún Ósk Sigurðardóttir | Sauðárkróki
Kristrún Ósk og Arnar Skúli Atlason ásamt börnunum þremur; Arnari Smára, Atla Skúla
og Erlu Lár. MYND AÐSEND
Tilvitnun vikunnar
13/2022 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Menn það sjá um lönd hjá lýð
löngum eftir blóðugt stríð.
Veit ég margur víst svo tér
um verknað þann sem lokið er.