Feykir - 30.03.2022, Síða 12
Viltu vera
memm?
Það er bara gaman
að vera áskrifandi.
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
13
TBL
30. mars 2022 42. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Mjólkursamlag KS
Feykir 24+ meðal
tíu bestu osta í heimi
Á Sauðárkróki er búinn til einn besti ostur í heimi en
á dögunum vakti Feykir 24+ mikla athygli í
Heimsmeistarakeppni osta sem fram fór í Wisconsin
í Bandaríkjunum. Segir í frétt Mjólkursamsölunnar
að þetta sé í fyrsta sinn sem íslenskur ostur sé meðal
keppenda um heimsmeistaratitilinn.
„Keppnin sem um ræðir er stærsta keppni sinnar
tegundar í heiminum og er hún haldin ár hvert. Að
þessu sinni voru sendir inn 2.978 ostar frá 29 löndum og
33 fylkjum innan Bandaríkjanna svo árangur Feykis 24+
er stórmerkilegur,“ segir á heimasíðu MS en í dómnefnd
sitja ostameistarar, mjólkurfræðingar, fulltrúar stærstu
verslanakeðjanna, fulltrúar neytenda og aðrir fagaðilar
og telur hún um 60 manns.
Það er Jón Þór Jósepsson, framleiðslustjóri hjá
Mjólkursamlagi KS, ásamt öðru starfsfólki samlagsins
sem stendur að Goðdala ostunum sem slegið hafa í
gegn frá því þeir komu á markað en í frétt MS segir að
óhætt sé að segja að Feykir 24+ sé flaggskipið í hópi
sælkeraostanna sem þaðan koma. Jafnframt segir að
mikil natni sé lögð í framleiðslu á Feyki 24+ og tekur allt
ferlið meira en 24 mánuði en það er tíminn sem hann
þarf til að ná sínum einstöku eiginleikum í áferð og
bragði.
„Það telst stórsigur í þessari keppni að lenda í 8. sæti
á fyrsta þátttökuári og er því um að ræða stórkostlegan
árangur fyrir íslenska ostagerð, en allir ostarnir eru
verðugir fulltrúar heimsmeistaratitilsins. Þarna eru
mjólkurfræðingar og ostameistarar sem hafa stúderað
þessi keppni og eru með mikinn fjölda osta og mjólkur-
vara ár hvert,“ er haft eftir Jóni Þór í frétt MS.
Heimsmeistaratitillinn í ár fór til Mountain Dairy
Fritzenhaus fyrir svissneskan Gruyére en í flokknum
sem Feykir 24+ keppti í sigraði hollenskur Roemer
Sweet frá Van der Heiden Kaas B.V. /PF
Actic cat mótið í snocross fór fram í skítakulda á
skíðasvæði Tindastóls sunnudaginn sl. þegar
keppt var í fjórum flokkum; Unglinga-, Sport-,
Pro light- og Pro openflokk.
Alls voru 40 keppendur skráðir til leiks og var
sigurvegari í bæði Unglinga og Sportflokknum Alex
Einarsson, Bergsveinn Ingvar Friðbjörnsson vann
Pro light flokkinn og Bjarki Sigurðsson tók Pro
open flokkinn. Tvær umferðir eru eftir og fer 4.
umferð fram 9. apríl á Akureyri og 5. og síðast
umferðin verður á Egilsstöðum 23. apríl.
Gaman verður að fylgjast með, Akureyringnum
knáa Bjarka Sigurðssyni, hvort hann nái að landa
sigri í báðum umferðunum og gulltryggja Íslands-
meistaratitilinn í snocrossi. /SG
3. umferð Íslandsmótsins í Snocross fór fram í Tindastólnum
Skítakuldi en vel heppnað mót
Myndir frá mótinu um helgina. MYNDIR: ÞORSTEINN FRÍMANN GUÐMUNDSSON
Sýnishorn tekið úr Feyki 24+ á Heimsmeistaramóti osta 2022.
MYND AF VEF WORLD CHAMPIONSHIP CHEESE CONTEST