Feykir - 11.05.2022, Side 3
Norðurland vestra
Enn fækkar íbúum
„Íbúum Reykjavíkurborgar
fjölgaði um 668 íbúa á
tímabilinu frá 1. desember 2021
til 1. maí 2022 og íbúum
Hafnarfjarðarkaupstaðar
fjölgaði um 273 íbúa á sama
tímabili. Íbúum Akureyrar-
bæjar fjölgaði á þessu tímabili
um 59 íbúa og í Reykjanesbæ
hefur fjölgað nokkuð
hressilega á umræddu tímabili
eða um 402 íbúa eða um 2%,“
segir í frétt á heimasíðu
Þjóðskrár. Á Norðurlandi vestra
fjölgaði í einu sveitarfélagi.
Á Skra.is kemur fram að íbúum
Skorradalshrepps hafi fjölgað
hlutfallslega mest síðastliðna
fimm mánuði eða um 18,3% þar
sem fjölgaði um ellefu íbúa.
Í tveimur landshlutum hefur
íbúum fækkað á síðastliðnum
fimm mánuðum og reynist
fækkunin hlutfallslega mest á
Norðurlandi vestra eða um
0,6% sem er fækkun um 43
íbúa. Á sama tíma fjölgaði
íbúum Suðurnesja um 1,7% á
tímabilinu.
Alls fækkaði um 43 íbúa á
Norðurlandi vestra hvar skráð-
ur er alls 7.381 maður í lands-
hlutanum. Munar þar mestu að
30 manns yfirgáfu Skagafjörð á
tímabilinu en þar eru nú skráðir
4.072, níu fóru frá Skagaströnd
og búa þar 475 nú, sex fluttu frá
Blönduósi hvar 923 eru skráðir
með lögheimili og fjórir úr
Húnavatnshreppi sem nú telur
381 íbúa. Íbúum Húnaþings
vestra fjölgaði hins vegar um sex
og eru íbúar þar 1.236 en í
Akrahreppi, þar sem 204 búa,
og í Skagabyggð þar sem 90
manns teljast, stóð íbúatalan í
stað.
Það er þó huggun harmi
gegn að nú eru skráðir 54 fleiri á
Norðurlandi vestra en var 1. des.
2019 þegar íbúar töldust vera
7.327 talsins. /PF
Auglýsing um skipan í kjördeildir í
Sameinuðu sveitarfélagi Akrahrepps
og Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Við sveitarstjórnarkosningar sem fram fara
laugardaginn 14. maí n.k. er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00
Kjördeild í Félagsheimilinu Árgarði
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Höfðaborg Hofsósi
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild á Ketilási
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Staðar – og Seyluhrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Héðinsminni
þar kjósa íbúar Akrahrepps - kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst,enda sé þá hálf klukkustund
liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á
kjörskrá standa hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er
sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því
að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá Sýslumanni Norðurlands vestra á
Sauðárkróki fram að kjördegi frá kl. 09:00 til kl. 15:00 virka daga og
til kl. 17:00 á kjördag.
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Yfirkjörstjórn
Stjórn Náttúrustofu
Norðurlands vestra hefur ráðið
Starra Heiðmarsson sem
forstöðumann Náttúrustof-
unnar, ráðning Starra er
tímabundin til eins árs þar sem
fráfarandi forstöðumaður hefur
óskað eftir leyfi.
Starri er með doktorspróf í
grasafræði frá háskólanum í
Uppsölum í Svíþjóð en hefur
undanfarna tvo áratugi starfað á
Akureyrarsetri Náttúrufræði-
stofnunar Íslands sem sér-
fræðingur og um áratugar skeið
sem fagsviðsstjóri í grasafræði.
Á heimasíðu NNV segir að í
starfi sínu hafi Starri sinnt og
borið ábyrgð á ýmsum verk-
efnum eins og rannsóknum á
fléttufungu Íslands, vöktun
fléttna í Surtsey, vöktun fram-
vindu gróðurs á jökulskerjum
Breiðamerkurjökuls og vöktun
tindagróðurs í Öxnadal inn-
an alþjóðlega verkefnisins
GLORIA (Global Observation
Research Initiative in Alpine
Environments). Sömuleiðis
hefur hann tekið virkan þátt í
vistgerðarkortlagningu Íslands
og vaktað og metið tegundir á
válista. Starri hefur einnig tekið
þátt í alþjóðlegu samstarfi fyrir
hönd Náttúrufræðistofnunar
einkum á vegum CAFF
(Conservation of Arctic Flora
and Fauna) þar sem Starri hefur
undanfarin ár starfað sem
formaður þurrlendisstarfshóps
CBMP sem tekur til vöktunar
líffræðilegrar fjölbreytni á
norðurhjara. Samhliða störfum
sínum á Náttúrufræðistofnun
hefur Starri sinnt kennslu við
bæði Háskólann á Akureyri og
Landbúnaðarháskóla Íslands að
Hvanneyri. Hann hefur birt,
bæði einn og í samstarfi við
aðra, um þrjátíu greinar í
alþjóðlegum tímaritum auk
fjölmargra innlendra ritsmíða.
Starri þekkir vel til náttúrufars
á starfsvæði Náttúrustofunnar
sem, auk margháttaðrar reynslu
hans, gerir hann vel í stakk
búinn að sinna starfi forstöðu-
manns Náttúrustofunnar að
mati stjórnar sem hlakkar til
samstarfsins. /PF
Náttúrustofa Norðurlands vestra
Nýr forstöðumaður ráðinn
Starri Heiðmarsson, nýr forstöðumaður
Náttúrustofunnar.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
innviðaráðherra, hefur veitt
nýrri Samgöngu- og
innviðaáætlun Norðurlands
vestra viðtöku. Í frétt á vef
SSNV segir að í áætluninni séu
teknar saman helstu áherslur
landshlutans hvað samgöngu-
og innviðamál varðar og er
áætlunin uppfærð útgáfa fyrri
áætlunar sem samþykkt var árið
2019.
Auk samgöngumála er í
áætluninni fjallað um fjar-
skiptamál, hitaveitur og raforku-
kerfi. Eru brýnustu verkefni sett
fram í forgangsröð í hverjum
málaflokki fyrir sig. Með
áætluninni vilja sveitarfélög á
Norðurlandi vestra leggja sitt af
mörkum til að auðvelda og flýta
fyrir töku ákvarðana og þar með
brýnum framkvæmdum við
samgöngu- og innviðaupp-
byggingu í landshlutanum.
Samgöngu- og innviðanefnd
SSNV hafði umsjón með vinnu
við gerð áætlunarinnar en hana
skipuðu fulltrúar allra sveitar-
félaga í landshlutanum en auk
þess starfaði Unnur Valborg
Hilmarsdóttir, framkvæmda-
stjóri SSNV, með nefndinni. /ÓAB
Norðurland vestra
Sigurður Ingi hefur tekið á móti nýrri
Samgöngu- og innviðaáætlun
Sigurður Ingi Jóhansson, innviðaráðherra, veitir áætluninni viðtöku úr hendi fram-
kvæmdastjóra SSNV, Unni Valborgu Hilmarsdóttur. MYND AF VEF SSNV
18/2022 3