Feykir - 11.05.2022, Qupperneq 8
Kolbrún í bókaflóði.
MYND: SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
Nú ræðst Bók-haldið ekki á
garðinn þar sem hann er
lægstur og bankar kurteislega
á dyrnar hjá blaðamanninum
og bókmenntagagnrýandan-
um Kolbrúnu Bergþórsdóttur
... Þetta er nú kannski ekki
alveg satt. Kolbrún, sem
fæddist í Reykjavík árið 1957
og býr þar, fær raunar aðeins
sendan tölvupóst með spurn-
ingalista Bók-haldsins.
Flestir ættu að kannast við
Kolbrúnu úr Kiljuþáttum Egils
Helgasonar sem eins af gagn-
rýnendunum sem ná að smita
fólk af áhuga á bóklestri. Hún
starfar einnig á Fréttablaðinu
og er ekki feimin við að segja
sína skoðun á málefnum
líðandi stundar – jafnvel þó
hún fari á stundum á móti
straumnum.
Kolbrún var klár í slaginn
þegar Feykir bauð henni að
svara Bók-haldinu. Hún segist
því miður ekki hafa nein tengsl
við Norðurland vestra.
Hvaða bækur ertu með á
náttborðinu? „Ég er aldrei með
bækur á náttborðinu því ég les
ekki í rúminu nema ég sé í
útlöndum. Ég les hins vegar í
sófanum mínum á hverju
kvöldi. Ég er nýbúin að lesa
sagnfræðibók sem heitir Nazi
Wives og fjallar um eiginkonur
nasistaleiðtoganna, sérlega
áhugaverð bók. Las líka afar
góðar en mjög þunglyndis-
legar smásögur eftir Tove
Ditlevsen og er að lesa The
Magician eftir írska rithöf-
undinn Com Toibin, algjörlega
heillandi skáldsaga um þýska
Nóbelsverðlaunarithöfundinn
Thomas Mann og fjölskyldu
hans. Mín bíða svo um 40
bækur til að lesa, mestallar á
ensku, en flestar keypti ég á
uppboði á netinu. Þar á meðal
er bók um fræga forngrikki,
tvær bækur eftir Nóbelsverð-
launahafann Olgu Tokarczuk
og smásögur eftir rússnesku
snillingana Tsjekhov og Gogol.“
Hver er uppáhaldsbókin af
þeim sem þú hefur lesið gegn-
um tíðina? „Karamazov bræð-
urnir eftir Dostojevskí og
David Copperfield eftir Charles
Dickens eru mínar uppáhalds-
bækur. Verð líka að nefna
( BÓK-HALDIÐ ) oli@feykir.is
„Ég er aldrei með bækur á náttborðinu“
Kolbrún Bergþórsdóttir | blaðamaður og bókamenntagagnrýnandi
Myndina af Dorian Gray eftir
Oscar Wilde og To Kill a
Mockingbird eftir Harper Lee.
Svo er Biblían bók bókanna, sá
sem hefur ekki lesið hana getur
ekki talið sig vel lesinn.“
Hvers konar bækur lestu helst?
„Ég les mest af skáldverkum
en hef einnig gaman af vel
skrifaðri og læsilegri sagnfræði.
Þegar kemur að skáldsögum er
19. öldin í miklu uppáhaldi og
fyrri hluti 20 aldar.“
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn og
manstu af hvaða bók þú lærðir
að lesa? „Ég lærði að lesa af
Litlu gulu hænunni og hef
haldið upp á hana æ síðan. Sem
barn las ég allt sem ég komst í og
man sérstaklega eftir ævintýr-
um H. C. Andersen, Grimms-
ævintýrum, Dimmalimm,
bókum Astrid Lindgren og
Pollýönnu. Ég grét mikið yfir
Ævintýri litla tréhestsins, þótt
þar hefði allt farið vel á lokum,
og á þá bók enn. Ég hélt
sérstaklega upp á bókaröðina
um Grím grallara og gladdist
mjög þegar Einar Kárason sagði
mér frá dálæti sínu á þeim
bókum. Ég hef síðustu árin
keypt þær bækur á ensku, þær
eru rúmlega 30 og mig vantar
núna sjö í safnið. Ég las Jónas
Hallgrímsson mjög ung og varð
svo sorgbitin yfir Óhræsinu að
ég steinhætti að borða rjúpu og
hef ekki borðað hana síðan.
Brúðarskórnir og Konan sem
kyndir ofninn minn eftir Davíð
Stefánsson fengu mig til að
tárast. Ég fór síðan að lesa
Íslendingasögurnar um tíu ára
aldur og mér finnst enn að
Hallgerður hafi verið hið mesta
flagð, það er engin ástæða til að
fyrirgefa henni og fáránlegt að
hampa henni. Ég las Myndina
af Dorian Gray eftir Oscar
Wilde í íslenskri þýðingu og
varð algjörlega heilluð og er það
enn í dag.“
Hvaða bók er ómissandi eða er
einhver ein bók sem hefur
sérstakt gildi fyrir þig? „Ef ein-
hver bók er ómissandi þá er
það Biblían. Hún er á ótrúlega
fögru máli, full af æsilegum
sögum og öðrum sem eru
beinlínis göfgandi. Hún geymir
mikinn boðskap og svo er það
einfaldlega þannig að það er
ekki hægt að skilja vestræna
menningu og listir almennilega
nema kunna skil á sögum
hennar. Mér þykir vænt um
bækurnar mínar og gaman
þykir mér að eiga áritaðar
bækur eftir þrjá Nóbelsverð-
launahafa: Halldór Laxness,
Isaac Bashievis Singer og Jose
Saramago. Svo safna ég sér-
staklega bókum úr Everyman‘s
Library því þar er heims-
klassíkin samankomin.“
Hvaða rithöfundar eða skáld fá
hjartað til að slá örar? „P. G.
Wodehouse er sennilega
skemmtilegasti rithöfundur
sem uppi hefur verið. Ég
hreinlega dýrka Oscar Wilde
og elska Charles Dickens. Ég
bíð alltaf eftir nýrri bók frá
Stephen King. Hann er reyndar
mjög mistækur höfundur en
þegar hann er góður þá
skemmtir hann manni um leið
og hann hræðir mann.“
Hvað er bók? „Fyrir mér er bók
prentgripur. Það verður að vera
hægt að fletta pappírsblað-
síðum, skoða kápuna og setja
bókina upp í hillu ef maður er
hrifinn af henni. Ég lít hvorki
við hljóðbókum né rafbókum,
þær eru bara aumar eftirlík-
ingar af almennilegum bók-
um.“
Áttu þér uppáhalds bókabúð?
„Waterstone á Piccadilly Circus
í London er uppáhaldsbóka-
búðin mín. Hún er á fimm
hæðum og það er dásamlegt að
gleyma sér þar. Þangað reyni ég
að fara minnst einu sinni á ári,
8 18/2022