Feykir


Feykir - 11.05.2022, Blaðsíða 15

Feykir - 11.05.2022, Blaðsíða 15
Til að vinna bug á fordómum þínum verðurðu að ferðast. – Marlene Dietrich KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Júlí-ana. Sudoku Krossgáta Feykir spyr... Ertu viss um hvaða flokk þú ætlar að kjósa í sveitarstjórnar- kosningunum? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Ég ætla að ganga óbundinn til kosninga.“ Gísli Rúnar Jónsson Finna skal út eitt kven- mannsnafn í hverri gátu. Ótrúlegt - en kannski satt... Mikið er rætt um orkuskort í Evrópu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, nauðsynlega orkuöflun, virkjanir og rafmagnsflutninga vítt og breitt um heiminn. Ótrúlegt, en kannski satt, þá gætir þú framleitt næga orku til að hita einn kaffibolla með því að öskra stanslaust í átta ár, sjö mánuði og sex daga. „Já ég held ég sé nokkurn veginn búin að gera það upp við mig.“ Rósa Dóra Viðarsdóttir „Get ómögulega svarað." Sólveig Guðbrandsdóttir LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Drangey há úr djúpinu rís. FEYKIFÍN AFÞREYING F „.Já ,ég ætla að kjósa Byggðalistann!“ Bryndís Rut Haraldsdóttir Tilvitnun vikunnar Kosninga- og Euro- partýkræsingar Næsta laugardag er heldur betur mikið að gerast því það eru ekki bara sveitarstjórnakosningar heldur verður líka Eurovision, vonum bara að það verði hægt að fylgjast með gengi Íslands því þau kepptu í gær, þriðjudaginn 10. maí, eftir að Feykir fór í prentun. Það er því tvöföld ástæða til að halda partý og bjóða upp á eitthvað girnilegt og gott til að snakka á fyrir framan imbakassann í góðra vina hópi. PARTÝRÉTTUR 1 Ostakúla 400 g rjómaostur (í bláa boxinu) 1 lítill rauðlaukur 1 rauð paprika 1 poki hunangsristaðar hnetur Mæli með að gera daginn áður! Aðferð: Takið rjómaost úr ís- skápnum og hafið við stofuhita. Saxið rauðlauk og papriku smátt. Blandið þessu saman í skál. Myndið kúlu með höndum, notið einnota hanska. Setjið filmu yfir og geymið í kæli yfir nótt. Saxið hnetur og veltið svo kúlunni upp úr. PARTÝRÉTTUR 2 Partýostur með valhnetum 1 stk. Dala Auður nokkrar msk. af kirsuberjasósu ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is Mynd og uppskrift tekin af gotteri.is Mynd og uppskrift tekin af alberteldar.com (fæst í glerkrukku hjá sultunum) valhnetukjarnar, saxaðir niðursoðin kirsuber til skrauts Aðferð: Hitið ostinn á bökunar- pappír/í eldföstu fati við 180°C í um 20 mínútur. Færið hann yfir á bakka/disk, hellið sósunni yfir, stráið valhnetunum þar næst yfir og skreytið með niðursoðnum kirsuberjum. Gott að bera fram með hráskinku og kexi. PARTÝRÉTTUR 3 Jarðarberjaís 400 g frosin jarðarber 160 g sykur 200 ml rjómi 50 ml vanillublanda 1 msk. sítrónusafi Aðferð: Setjið allt í blandarann og blandið þar til úr verður jafnt krap/ þykkur þeytingur. Setjið í ísskál og hrærið á lægstu stillingu í 20 mínútur eða þar til blandan þykknar enn frekar. Hægt er að bera ísinn fram strax eða setja hann í form/eldfast mót, plasta og geyma í frysti eins og annan ís. Ef þið eigið ekki sérstaka ísskál má setja ísinn beint í form þegar hann kemur úr blandaranum og frysta í að minnsta kosti fjórar klukku- stundir. Mæli með að gera tvöfalda uppskrift, jafnvel þrefalda ef þið eigið von á gestum því þessi er hrikalega góður. Mynd og uppskrift tekin af Gott í matinn. 18/2022 15 Vísnagátur Sveins Víkings Þetta stendur en þó ekki um vetur í þrjátíu daga og einum betur. Í ending það gildir um alla bara sem ógætilega um veginn fara.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.