Harmonikublaðið - 15.05.2021, Side 19
Águst Pétursson
Ágúst (Metúsalem) Pétursson var fæddur 29.
júní 1921 á Hallgilsstöðum í Norður-
Þingeyjarsýslu en ólst upp skammt þar frá, á
bænum Höfnum við Finnafjörð, sonur
hjónanna Péturs Metúsalemssonar og Sigríðar
Friðriksdóttur. Um Jónsmessuna er birtan og
hlýjan hvað mest norður við heimskautsbaug
og þannig munum við harmonikuunnendur
minnast hans. Þessa ljóðrænu hlýju skynjum
við líka í tónlistinni, sem hann gaf okkur. Ekki
urðu textarnir heldur til að skemma fyrir og
aldrei var hann í vandræðum með að fá góða
textahöfunda. Æskuvinur hans og nágranni,
Kristján Einarsson frá Djúpalæk, færði honum
gullfallega texta. Loftur Jónsson vinurÁgústar
setti saman marga texta fyrir hann, einnig
Jenni Jóns, en þeir spiluðu saman í hljómsveit
í mörg ár. Allir voru þessir textahöfundar
miklir fagurkerar og textarnir komu frá
hjartanu, eins og tónlistin.
Ágúst hóf ungur að leika á harmoniku og 18
ára flutti hann til Vestmannaeyja, til að að
leika fyrir dansi. Þar hófst samstarf hans við
Jenna Jóns, sem einnig átti eftir að verða
þjóðkunnur laga- og textasmiður. Ágúst lék
reyndar á ýmis hljóðfæri. Hann lærði á orgel
hjá föður sínum sem var organisti í
sóknarkirkjunni á Skeggjastöðum við Bakka-
flóa. Fyrstu harmonikuna eignaðist hann
ungur að árum en hún var hnappanikka og sá
hann sjálfur um að ná tökum á hljóðfærinu.
Eftir að hann kom til Vestmannaeyja spilaði
hann á saxófón með lúðrasveitinni undir stjórn
Oddgeirs Kristjánssonar. Ásamt því raddæfði
hann og söng 1. bassa í oktett sem kallaði sig
Smárakvartettinn og var starfræktur á árunum
1944-45 í Vestmannaeyjum. Hann spilaði á
dansleikjum í Alþýðuhúsinu og í Samkomu-
húsinu í Vestmannaeyjum lungann af þeim
tíma sem hann bjó þar á árabilinu 1940-45.
Ágúst Pétursson flutti til Reykjavíkur árið
1945, þá fullnuma í húsgagnasmíði sem hann
lærði í Vestmannaeyjum hjá Öla Gránz.
Honum haíði víst hálfleiðst að mæla göturnar
á daginn og var boðið að hjálpa til á
trésmíðaverkstæðinu hjá honum, sem leiddi
til þess að hann lagði smíðarnar fyrir sig sem
ævistarf. I Vestmannaeyjum hafði hann einnig
kynnst ástinni sinni og þau Guðrún Dagný
Kristjánsdóttir frá Fáskrúðsfírði giftu sig
fljótlega eftir að þau fluttu til Reykjavíkur.
Hann hóf að leika á dansleikjum í höfuð-
borginni í samvinnu við Jenna Jóns og Jóhann
Eymundsson, en um árabil léku þeir félagar
saman í Skátaheimilinu við Snorrabraut undir
nafninu Hljómatríóið. Þau hjónakornin
byggðu sér heimili í Kópavogi, á Álftröð 3 og
fluttu inn árið 1951. Þar átti hann sitt heimili
alla tíð ásamt eiginkonu sinni og þremur
börnum, þeim Hörpu, Pétri Omari ogÁgústu
Sigrúnu.
Það mun hafa verið fýrir norðan á heimaslóðum
að Ágúst fór fýrst að setja saman lög, en þegar
danslagakeppni S.K.T. hófst upp úr 1950 varð
hann þjóðkunnur. Brilljantíngreiddir töffarar
styttu tangósporin og rauluðuÆskuminningu
í eyrað á kærustunni og það var að minnsta
kosti einn Þórður sjóari um borð í hverjum
síldarbát, en þeir voru á þriðja hundraðið.
Guðrún kona hans átti reyndar talsverðan
þátt í því að Æskuminning komst á framfæri,
því þegar höfundurinn hikaði, tók hún af
skarið og eggjaði hann til að senda lagið í
danslagakeppnina. Lög Ágústar Péturssonar
urðu fjölmörg og mörg þeirra greipt í
þjóðarsálina. Lagið Harpan ómar er við texta
eftir Jenna Jóns sem kom nöfnum tveggja
barna Ágústs inn í titil lagsins.
Ágúst Pétursson fékk margar viðurkenningar
fýrir lög sín. Meðal annars var lagið
Æskuminning valið næst besta dægurlagið
árið 1953, í skoðanakönnun tímaritsins
Hljómplötunýjungar. Jenni Jóns fékk
samskonar viðurkenningu fýrir textann. Lagið
var gefið út á hljómplötu sama ár. Alfreð
Clausen söng með Hljómsveit Carls Billich.
Harmonikuleikari í þeirri hljómsveit var einn
af félögum okkar í FHUR, nefnilega Bragi
Hlíðberg. Þá fékk Æskuminningin sérstaka
viðurkenningu frá Félagi íslenskra dægurlaga-
höfunda. En mesta viðurkenningin er þó sú,
að þessi lög eru orðin sígild.
Ágúst Pétursson gerist félagi í Félagi harmo-
nikuunnenda í Reykjavík fljótlega eftir stofnun
þess 1977 og var alltaf tilbúinn að leggja
félaginu lið þegar á þurfti að halda. Á hann
var hlustað og hann gerði sig snemma gildandi
í félaginu. Fljótlega eftir að hann gekk í félagið,
færði hann því að gjöf fallegan mars sem hann
hafði samið. Félagið er ákaflega stolt af því að
eiga þennan glæsilega FHUR mars. Frá byrjun
Agúst og Guðrún Dagný á brúðkaupsdaginn
lék hann með hljómsveitum félagsins og hans
er minnst sem góðs félaga, sem aðeins lagði
gott til málanna þegar eitthvað þurfti úrlausnar
við. Þegar Samband íslenskra harmoniku-
unnenda var stofnað á Akureyri 3. maí 1981,
af þeim fimm harmonikufélögum sem þá
Agúst tekur á móti einum afmörgum verölaunum
höfðu verið stofnuð, varð hann fýrsti fulltrúi
FHUR og fýrsti gjaldkeri sambandsins.
Síðasta lagið sem Ágúst samdi var líklega í
tengslum við æfingar á vegum FHUR. Einn
félaginn, Eyþór Guðmundsson, bjó í Sel-
brekkunni í nágrenni við Gústa. Þar varð
Selbrekkumarsúrkinn til, sem líklega er
saminn árið 1984.
Ágúst Pétursson lést 28. júlí 1986 langt um
aldur fram. Hans verður ávallt minnst sem
góðs félaga og eins af bestu lagasmiðum
FHUR. I ár höldum við minningu hans á
lofti, því hann á 100 ára fæðingarafmæli þann
29. júní n.k.
Þegar Ágúst lést samdi æskuvinur hans,
Kristján frá Djúpalæk, þessi fallegu kveðjuorð
19