Harmonikublaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 6
Vorpistill ur Dölum
Spilað íhandverkshúsi Bolla í Búðardald sumardaginn jýrsta. F.v. Kristinn Valdimarsson á bassa, á harmoniku Eggert
Antonsson, Sigrún Halldórsdóttir, Halldór Þ. Þórðarson, Guðbjartur A. Björgvinsson, Jóhann Ellsson, á tamborinu
Rikarður Jóhannsson og ágítar Melkorka Benediktsdóttir formaður
Starf Nikkólínu undanfarið ár hefur eins og hjá
flestum mótast mjög af covid pestinni alræmdu.
Það náðist að æfa jólalögin smávegis, en vegna
samkomutakmarkana var minna spilað en ætlað
var, þó spiluðu nokkrir félagar á aðventuhátíð
hjúkrunarheimilisins á Fellsenda. Til að láta nú
jólalögin heyrast aðeins þá hittust Halldór Þ.
Þórðarson, Jón Benediktsson og Kristján Ingi
Arnarsson í tónlistarskólanum, renndu í
gegnum nokkrar jólalagasyrpur og skelltu í
upptöku. Efnið var svo sett á YouTube og
Dalavefinn. Flott hjá þeim!
Við náðum nokkrum samæfingum í vetur í
lok þorra þar sem var æft fyrir komandi
landsmót og svo var auðvitað spilað mikið,
mikið meira en það því það var svo gaman að
hittast loksins. Eftir það má segja að illa hafi
viðrað til samæfinga vegna samkomutak-
markana. En það er nú hvort eð er búið að
fresta landsmótinu til 2022 svo enn er tími til
stefnu.
Harmonikuhátíð Nikkólínu og HUH sem
átti að halda á Laugarbakka í sumar hefur verið
frestað um eitt ár enn vegna þessara „fordæma-
lausu“ aðstæðna í samfélaginu. Nú stefnum
við ótrauð að harmonikuhátíðinni á Laugar-
bakka í júní 2022. Vonandi mæta þar sem
flestir vinir og félagar, þetta hefur alltaf verið
alveg frábær skemmtun.
Hins vegar stefna félögin enn að því að halda
aðalfúnd SÍHU í Hótel Laugarbakka í Miðfirði
í byrjun september nk. Þá ætti nú að vera
komið hjarðónæmi fyrir covid á Islandi!
En þrátt fyrir allt þetta ástand þá hittust
Nikkólínufélagar til æfinga fyrir sumardaginn
fyrsta. Planið var að spila á dvalarheimilinu
Silfurtúni eins og venjulega, en þar eins og á
öðrum stofnunum fyrir eldri borgara hefur
verið algjört heimsóknarbann og því varð ekki
af heimsókn í þetta sinn. Handverkshópurinn
Bolli var hins vegar að opna söluaðstöðuna
sína aftur eftir algjöra endurnýjun og þar var
spilað í dágóða stund við góðar undirtektir og
fyllstu sóttvarna gætt. Harmonikan er
gleðigjafi hvar sem hún hljómar og áheyrendur
nutu stundarinnar vel og skoðuðu vöruúrvalið
hjá Bolla á meðan.
Gott væri nú að fá aðeins blíðara vorveður
með kannske smárekju, þannig að gróður tæki
við sér og íkveikjuhætta í skraufþurrum
skógum og sinu liði hjá.
Að lokum bestu kveðjur úr Dölum, með von
um bjarta tíð með blóm í haga.
SBH
Tíðindalítið 2020-2021 hjá FHUR
Það er náttúrulega tíðindalídð af harmoniku-
miðum á þessum kóróna tímum. Við fengum
forsmekkinn í fyrravor og fljótlega aflýstum
við dansleikjum og landsmóti. Stefnt var að
því að halda sumarmótið að Borg um verslun-
armannahelgina en allt kom fyrir ekki og
tilkynning kom í hádegisfréttum á föstudag
að nýjar fjöldatakmarkanir tækju gildi. Með
þær upplýsingar ákváðu stjórn og skemmti-
nefnd að aflýsa mótinu líkt og áður hefur
komið fram. Bjartsýni ríkti í haust með
komandi vetur og við héldum stjórnarfund
um vetrarstarfið og landsmótshugmyndir.
Beðið var átekta með ákvarðarnir vegna
dansleikjahalds. Hljómsveitaræfingar hófúst
30. september en svo voru reglur hertar og
aðeins 10 manns máttu koma saman og
ákveðnar reglur giltu einnig um æfingasalinn.
Þannig að æfingar urðu ekki fleiri fyrir áramót
og aðeins hægt að hvetja fólk til að æfa sig
6
heima. Hljómsveitaræfingar hófust aftur í lok
janúar þegar 20 manns máttu koma saman
og við náðum æfingum fram í mars þangað
til næstu fjöldatakmarkanir voru birtar og
æfðum líka í lok apríl. Hljómsveitin fer í
heimsókn á Sólheima í Grímsnesi á
uppstigningardag þann 13. maí og spilar frá
klukkan 14:00-16:00, þar með lýkur þessum
skrítna kórónu- vetri.
Aðalfundur félagsins með hefðbundinni
dagskrá verður haldinn klukkan átta þann
25. maí í sal Þjóðdansafélags Reykjavíkur.
Sumarmótið að Borg er á dagskrá að öllu
óbreyttu.
Landsmótinu frestað um ár í viðbót
Stjórnin hélt fund 19. apríl ásamt Pétri
Bjarnasyni fulltrúa frá Sambandi íslenskra
harmonikuunnenda vegna fyrirhugaðs
landsmóts. Skiptar skoðanir voru um mótið
á fundinum. En ákvarðanatöku var frestað í
bili. Friðjón tók að sér að hringja í formenn
harmonikufélaganna og athuga með þátttöku
á landsmóti. Þar kom í ljós að sennilega
myndu þrjú félög vera tilbúin með efni fyrir
tónleika og þar með var draumurinn búinn
um landsmót ársins 2021. Landsmótsstjórn
og SÍHU hefur þegar sent út tilkynningu og
er hún ítrekuð hér með. Búið er að hafa
samband við alla hlutaðeigandi vegna frestunar
landsmóts, eins og Jakob bæjarstjóra,
íþróttahús og fleiri og sem betur fer er allt
þetta fólk mjög skilningsríkt. Landsmótinu
er frestað um ár eða til 30. júní á næsta ári
2022 og „allt erþegarþrennt er“. Nú söfnum
við kröftum og mætum galvösk í undirbúning
næsta vetur.
Bestu óskir um gott og gleðilegt harmoniku-
sumar!
Elísabet H Einarsdóttir formaður FHUR