Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Side 48
í frammi af forsvarsmönnum gengisfellingarinnar, sem setja samasemmerki
milli leiðréttingar á launakjörum verkafólks og gengisfellingar.
VI.
Bann við verðbótum á laun hefur nú verið í gildi á annað ár. Fyrirætlanir
eru um framlengingu þegar núgildandi bann rennur út.
35. þing ASÍ lýsir furðu sinni á þeim vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar, að
afnema aðeins einn þátt þeirrar vísitölubindingar, sem í gildi er í þjóðfélag-
inu. Þingið bendir á þá staðreynd, að vísitölubinding er í fullu gildi á öllum
sviðum, nema að því er snertir laun.
35. þing ASÍ vill undirstrika þá skoðun sína, að kjarasamningar án verð-
bóta, eru afar haldlítil vörn fyrir launafólk. Þótt ýmsir gallar hafi reynst vera
á þeim verðbótakerfum, sem í gildi hafa verið, þá hafa þau að mati þingsins
reynst mikilvæg vörn lauafólks gegn verðbólgu og kjararánsaðgerðum ríkis-
valds og atvinnurekenda. Það er skoðun þingsins, að kröfur um verðbætur á
laun, hljóti að verða ófrávíkjanlegar í næstu kjarasamningum. Þingið beinir
því til miðstjórnar ASÍ að vinna að því að svo verði.
VII.
Eitt mikilvægasta kjaraatriði launafólks eru húsnæðismálin og varða þau
raunar afkomu flestra heimila í þessu landi.
35. þing ASI krefst þess að stjórnvöld geri að veruleika þau fyrirheit sem
gefin hafa verið af stjórnvöldum á undanförnum árum, og gert er ráð fyrir í
löggjöf um húsnæðismál, að Vi hluta af húsnæðisþörf landsmanna verði mætt
á félagslegum grundvelli.
Þá telur þingið brýna nauðsyn bera til að lánshlutfall í almenna húsnæðis-
málakerfinu verði hækkað og jafnframt dregið úr greiðslubyrði og tryggt að
hún fari aldrei fram úr fyrirfram ákveðnu marki.
Þingið mótmælir harðlega því vaxtaokri, sem nú viðgengst ásamt því að
full verðtrygging fjármagns er heimiluð á meðan verðtrygging launa er
bönnuð með lögum. Jafnframt er óhjákvæmilegt að dregið verði úr greiðslu-
byrði þeirra sem komið hafa sér upp húsnæði eftir að full verðtrygging lána
var tekin upp.
VIII.
í kjölfar stórfelldrar kjaraskerðingar hlýtur verkalýðshreyfingin nú að
stefna fram til aukins kaupmáttar með endurskoðun samninga á næsta vori.
Sérstaklega verður að stefna að því að bæta kjör lágtekjufólks og tryggja
46