Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Side 54
Meðferð á tillögu að ályktun um stöðu hreyfingarinnar
og næstu verkefni
Nefndin hefur fjallaS um tillögu Guðmundar Hallvarðssonar og Páls
Valdimarssonar á þingskj. 15. Með samkomulagi við flutningsmenn er nefnd-
in sammála um að fella IV. kafla tillögunnar inn í ályktunardrög sín. M tek-
ur nefndin undir þær hugmyndir varðandi vinnubrögð sem fram koma í VI.
kafla tillögunnar, að undanskildum 1. tölulið, og er sammála um að leggja til
að miðstjórn taki tillit til þessara hugmynda við undirbúning kjarasamninga.
Að öðru leyti getur nefndin tekið undir ýmis þau sjónarmið sem fram koma
á þingskj. 15 og er sammála um að mæla með því að tillögunni í heild verði
vísað til þeirra aðila sem fara munu með undirbúning nýrra kjarasamninga
og felur miðstjórn að kynna hana öllum félögum innan sambandsins.
Þingið samþykkti þessa meðferð tillögunnar sem er svohljóðandi:
Ályktun um stöðu hreyfingarinnar og næstu verkefni
I.
íslensk verkalýðshreyfing er á mikilvægum tímamótum um þessar mund-
ir. Núverandi ríkisstjórn, með VSÍ og Verslunarráðið að bakhjarli, tókst á
árinu 1983 að rýra kaupmátt launa um 25-30%, með fádæma þjösnaskap
og gerræði og hefur síðan tekist að framfylgja lögbundnu banni sínu við
verðbótagreiðslum á laun.
Andspænis þessum árásum hefur verkalýðshreyfingin lítils megnað. Hana
hefur skort árræði og dug til að snúast með markvissum hætti gegn sóknar-
þunga ríkissjórnarinnar og atvinnurekenda. Hana hefur skort markvissa áætl-
un fyrir endurheimt hins tapaða kaupmáttar. Hana hefur skort samstillta for-
ystu til að fylgja slíkri baráttuáætlun eftir og veita henni leiðsögn.
II.
35. þing ASÍ leggur áherslu á, að þessa þróunn verði að stöðva þegar í stað.
Þingið lýsir áhyggjum sínum yfir því kjarkleysi, sem víðast hvar er ríkjandi
innan samtakanna, þar sem slæm staða til átaka er sífellt notuð sem röksemd
fyrir aðgerðarleysi, á sama tíma og skerðing almennra launakjara í landinu
nemur 25-30%.
Að mati þingsins er þessi þróun stórháskaleg fyrir einingu samtakanna. Ef
fram heldur sem horfir er veruleg hætta á því að samtökin gangi sundruð til
leiks, jafnvel liðist í sundur. Eining verkalýðshreyfingarinnar og samtaka-
máttur fjöldans er í húfi.
Stofnun samtaka fiskverkunarfólks og samtaka kvenna á vinnumarkaðn-
52