Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Side 56
1. Að aukið lýðræði, víðtækt upplýsingastreymi og almenn virkni hins breiða
fjölda er forsenda árangurs.
2. Að það er samtakamátturinn sem er styrkur hreyfingarinnar en ekki
„samningatæknin" eða klókir samningamenn.
3. Að ástæðan fyrir því að árangurinn varð ekki meiri en raun ber vitni,
stafaði af því að heildarsamtökin báru ekki gæfu til að leggjast á eitt,
þ. e. að knýja í gegn með sameinuðu afli kjarasamninga með raunhæfum
kaupmáttartryggingum.
Um leið og þingið lýsir yfir stuðningi sínum og aðdáun á afstaðinni bar-
áttu BSRB, vill það jafnframt undirstrika áhyggjur sínar vegna þeirrar inn-
byrðis tortryggni, sem virðist ríkja milli þessara heildarsamtaka launafólks í
landinu.
35. þing ASÍ vill fyrir sitt leyti stuðla að víðtæku samstarfi við BSRB í
kjarabaráttunni og beina því til miðstjórnar ASÍ, að stigin verði raunhæf
spor í þeim efnum. Það er skoðun þingsins, að í dag séu allar efnislegar for-
sendur fyrir því, að þessi heildarsamtök launafólks í landinu gangi samstillt
til leiks, með samhæfða kröfugerð hvað varðar meginmál og baráttuáætlun.
VI.
35. þing ASÍ beinir því til félagsmanna sinna, allra þeirra sem skipa raðir
samtakanna og allra annarra bugsandi verkalýðssinna í þessu landi, að kom-
andi mánuðir verði notaðir tili að móta kröfugerð og raunhæfa baráttuáætlun
fyrir endurheimt þess kaupmáttar sem tapast hefur.
Til að slík vinna hafi einhvern félagslegan bakhjarl og þjóðfélagslegan
þunga, verður að mati þingsins að leggja áherslu á eftirfarandi:
1. Heildarsamtökin, ASÍ og BSRB, gangi sameinuð til verksins.
2. Miðstjórn ASI skipuleggi allsherjarumræðu um kröfugerð og baráttuáætl-
un í sérhverju aðildarfélagi sínu. Þetta verði forgangsverkefni miðstjórn-
ar að loknu þessu þingi.
3. Skipulögð verði kerfisbundin umræða í þessu skyni, í grunneiningum
samfélagsins - vinnustöðunum. Skipulag þess starfs verði í höndum ein-
stakra stéttarfélaga og sambanda í samráði við miðstjórn ASÍ.
4. Að þessu stafi loknu verði boðuð kjaramálaráðstefna með þátttöku for-
ystumanna og starfandi trúnaðarfólki úr hinum ýmsu atvinnugreinum,
þar sem saman yrðu dregnar helstu niðurrstöðurnar úr þessu starfi.
Þingið gerir sér það ljóst, að til þess að reisa verkalýðshreyfinguna úr þeirri
54