Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Síða 57
lægð sem ríkt hefur þarf samstillt átak, sem nær til sérhvers' félagsmanns
sem skipar raðir verkalýðssamtakanna.
35. þing ASI skorar á öll aðildarfélög sín að ganga með samhæfðu átaki
og sameinuðum vilja til þessa verks.
Aðrar ályktanir um kjaramál:
Þingið samþykkti eftirfarandi tillögu frá Kristínu Hjálmarsdóttur:
Ályktun um verkmenntun
35. þing Alþýðusambands íslands telur að brýna nauðsyn beri til að sem
fyrst verði komið á fót víðtækri og vel skipulagðri starfsþjálfunar- og verk-
menntafræðslu fyrir verkafólk í sem flestum greinum íslensks atvinnulífs.
Þingið skorar á nýkjörna miðstjórn Alþýðusambands íslands, að hún hafi
frumkvæði að skipulagningu slíkrar starfsþjálfunar- og verkmenntafræðslu,
og jafnframt að hún móti stefnu um hvernig slíkri fræðslu skuli háttað. í
þessu starfi er mikilvægt að miðstjórn hafi sem nánasta samvinnu við lands-
sambönd og aðra þá aðila innan hreyfingarinnar sem láta sig þessi mál varða.
Mikilvægt er að við mótun slíkrar stefnu í verkmenntamálum verkafólks
verði lögð áhersla á, að sú fræðsla sem komið verður á fót, verði tengd þeirri
verkmenntafræðslu sem fyrir er í landinu, og að sem flestum verði gert
mögulegt að njóta þeirrar fræðslu sem í boði er. Hér er um mikilvægt nags-
munamál að ræða fyrir verkafólk, enda ljóst að skipulögð fræðsla og verk-
menntun verkafólks hlýtur að vera stór þáttur í kjarabaráttunni. Slík fræðsla
mun síðar skila sér í bættum kjörum og eiga s;nn þátt í því að efla skilning á
þeim mikilvægu störfum sem verkafólk vinnur.
Tillaga Baldurs Óskarssonar o. fl., flutt breytt af Pétri Sigurðssyni o. fl., var
þannig samþykkt:
Ályktun um nýtt landsstjórnarafl
A undanförnum árum hafa samtökatvinnurekenda beitt sér æ meira á vett-
vangi stjórnmálanna. Þau hafa sett fram heildarstefnu um aðgerðir stjórnvalda
og mótað ítarlegar tillögur í einstökum málaflokkum. Náin samvinna hefur
tekist með forystumönnum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, sem
mynda núverandi ríkisstjórn, og helstu leiðtogum VSÍ, Verslunarráðsins og
SÍS. Það er þetta bandalag sem hefur stjórnað hinni miklu aðför að kjörum
55