Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Page 61
Verkalýðshreyfingin þarf að ná í stórauknum mæli til ungs fólks með
fræðslustarf sitt, ekki síst til þeirra sem eru að hefja störf á vinnumarkaðin-
um. Sérstök ástæða er að vera á verði gagnvart atvinnuleysi og reyna með
öllum mætti að koma í veg fyrir ástand það á vinnumarkaði sem ríkir í ná-
grannalöndum okkar, þar sem heilar kynslóðir ungs fólks eru sviptar einum
frumrétti mannsins, réttinum til vinnunnar.
Efla ber alla útgáfustarfsemi á vegum verkalýðssamtakanna. Sérstaka
áherslu ber að leggja á gerð fræðsluefnis, sem mjög er af skornum skammti
miðað við þarfir og það sem gerist á vegum verkalýðshreyfingarinnar í ná-
lægum löndum.
Mjög brýnt er orðið að semja kynningarefni um verkalýðshreyfinguna til
notkunar í skólum landsins og meðal aðila, sem óska eftir slíkri kynningu.
Almenningur í landinu fær oftast mynd af verkalýðshreyfingunni í gegnum
fjölmiðla, sem að jafnaði hafa meiri áhuga á fréttum en fræðsiu um samtök-
in. Hér hefur hreyfingin tök á að bæta úr með gerð efnis af þessu tagi ásamt
verulegu kynningarátaki, þegar það liggur fyrir.
I fræðslustarfi MFA og verkalýðsfélaganna á næsta kjörtímabili skal
leggja áherslu á eftirfarandi:
— Að fræðslustarfið miði að því að auka fjölbreytni í félagsstarfi stéttar-
félaganna og auki fundarsókn.
— Að MFA skipuleggi fræðslu fyrir trúnaaðrmenn á vinnustöðum með
mismunandi hætti, þannig að henti við ólíkar aðstæður og óskir félag-
anna.
— Að MFA gefi út kynningarefni um trúnaðarmanninn á vinnustað og starf
hans til dreifingar á vinnustöðum.
— Að MFA kynni starfsemi sína með þróttmeiri hætti. Ber sérstaklega að
nefna Félagsmálaskólann og þær námsbrautir, sem þar eru í boði. Einnig
ber MFA að kynna aðrar þær leiðir, sem verkafólki stendur til boða í
hinu almenna skólakerfi til að auka þekkingu sína á félags- og þjóðmál-
um.
Starfsemi sína þarf MFA sérstaklega að kynna á vinnustöðum í samvinnu
við félagastjórnir.
•— Að MFA vinni að gerð kynningarefnis um verkalýðssamtökin, ætlað
ungu fólki og þeim sem eru að hefja störf.
— Að MFA í samvinnu við verkalýðsfélög standi fyrir fræðsluerindum á fé-
lagsfundum og öðrum samkomum félaganna um þau mál, sem ofarlega
eru á baugi og varða hag launafólks.
59